|
|
|
|
| Vid heitum Haukur og Bryndís :) | |
|
Um okkur
Haukur fæddist á sjúkrahúsinu í Glostrup, þann 18.október 2002. Var 3300 gr. og 52 cm.
Bryndís fæddist 03.11 2007 lika i Glostrup. Hun var 3200 gr. og 49 cm. Mamma heitir Rannveig Kristjánsdóttir og pabbi heitir Þorvaldur Anfinnsson Jensen. Haukur er duglegur og uppátækjasamur strákur. Hann er i 3A í Vejlebroskolen. Bryndís er í sama leikskóla og Haukur var í, og þekkjum vid því allt starfsfólkið. Henni líkar vel þar og finnst rosa gaman ad leika inni sem úti. |
|
|
|
Elsku mamma og pabbi Ég er með svo litlar hendur. Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir. Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir. Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt. Ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég tala við þig. Þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar. Ekki vera alltaf að skamma mig, leyfðu mér að gera mistök, án þess að mér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna. Mundu að ég er barn, ekki lítil fullorðin vera. Stundum skil ég ekki það sem þú segir. Ég elska þig svo mikið. Elskaðu mig bara fyrir að vera ég . Ekki fyrir eitthvad sem ég get.
Barn í voginni Barn í voginni er fæddur málamiðlari sem elskar friðinn og vill að öllum komi vel saman. Sáttasemjari leikvallarins er mættur! Með þessum eiginleika fylgir ákveðin nákvæmni og glæsileiki sem hjálpar barni í þessu merki við að komast áfram og fá það sem það vill. Mjög erfitt er að mótmæla og rífast við vogina vegna þess hve sveigjanleg hún er. Þar sem þetta barn er samvinnufúst og í góðu jafnvægi þá á barnið mikið af vinum og allir leika sér saman í sátt og samlyndi. Vogin elskar að eyða tíma sínum með félögunum, því barn í vog er mikil félagsvera sem vill miklu frekar leika sér í hóp en að vera eitt að leika. Vogin er námsfús og fær góðar einkunnir út úr prófum. Þetta barn kemur ávallt vel fyrir og vandar sína framkomu. Vogin getur átt það til að vera hverflynd og óákveðin og þú skalt ekki hika við að taka ákvörðun fyrir barnið þegar það sýnir þessi einkenni. Það er nú bara þannig að barn í voginni hefur tilhneigingu til að setja sig í spor allra sem að málinu koma og því getur verið erfitt að taka "réttu" ákvörðunina. Svo sannarlega fæddur sáttasemjari. Að lokum, barn í voginni á það til að eiga erfitt með einbeitingu, svo hafðu auga með því til að halda því á réttri braut. Vogin 23. september - 23. október Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. |
|
| Þú ert gestur nr. 31977 |