Velkomin í heimsókn á heimasíðuna okkar
Við erum þrjú þróttmikil systkini á Akureyri


Um okkur:
Ég, frumburðurinn, heiti Hannes Snævar og er fæddur á FSA sunnudaginn 2. mars 2003 kl. 5.49. Ég var 16 merkur og 51 cm. Hárið mitt er ljóst og augun eru stór og blá. Ég er afar stoltur stóri bróðir og er átta ára. Ég er í 3. bekk í Brekkuskóla.

Svo kem ég, prinsessan Katrín Karlinna - tvíburi, fædd 9. júlí 2008. kl. 15.10. Ég var 14,5 merkur og 50 cm. Hárið er dökkt og augun blá. Ég kom á undan litla bróa í heiminn. Er nú orðin þriggja ára og er á leikskólanum Hólmasól.

Ég er yngstur, Bergur Magnús heiti ég - tvíburi, fæddur 9. júlí 2008 kl. 15.30. Ég var 13,5 merkur og 50 cm. Hárið var dökkt og augun blá. Ég kom í heiminn heilum 20 mínútum á eftir systur minni. Nú er ég þriggja ára og orðinn ljóshærður víkingur. Ég er á leikskólanum Hólmasól ásamt Katrínu systur minni en við erum ekki saman á deild þar sem Hólmasól er kynjaskiptur leikskóli.

Foreldrar okkar heita Harpa Sveinsdóttir og Sigmundur Kristberg Magnússon og við búum á Akureyri. Mamma okkar
er Vopnfirðingur og pabbi er Hvergerðingur. Mamma vinnur í Menntaskólanum á Akureyri. Hún kennir þýsku en pabbi er starfar við á nemendagarða MA og VMA.





Annað:
Endilega skrifið okkur línu í gestabókina
Þú ert gestur nr. 50495