Ásdís Embla, Addi Már og fjölskylda í USA


Um mig:
Ferðlag Ásdísar Emblu hófst 24. nóvember 2002. Embla, eins og hún er alltaf kölluð heimavið, hefur komið víða og búið á Íslandi, Í Hollandi, í Maryland í Bandaríkjunum og nú í úthverfi Boston einnig í Bandaríkjunum. Undanfarið hefur hún notið þess að vera heima með múttunni og ferðast mikið í Bandaríkjunum, Mið-Evrópu og um Ísland en nú er skvísan byrjuð í Liberty School í Braintree. Embla er fullorðinsleg, ákveðin og klár 8 ára skvísa sem að fer sínar eigin leiðir heimafyrir en er mjög feimin og ljúf út á við.

Arnar Már fæddist mánudaginn 2. febrúar 2009 á Howard County General Hospital (Johns Hopkins Medicine) í Columbia, Maryland. Hann vóg 8 lbs og 5,5 oz (3785 gr) og mældist 20 in. (51cm). Höfuðmálið við fæðingu var 36,5 cm.
Addi Már er afar athafnasamur og fjörugur lítill strákur sem veit nákvæmlega hvað hann vill. Hann fer í leikskóla þrisvar sinnum í viku á Hugs Plus í Braintee og líkar það vel. Helsta áhugamál hans er að stela mat frá öðrum sem er girnilegri en sá sem mamma hans sendir hann með:-D











Annað:

Á síðunni getið þið fylgst með Emblu, Adda Má og fjölskyldu takast á við ný heimkynni í Bandaríkjunum og fengið að sjá myndir af öllu því skemmtilega sem á daga hennar drífur....

Þú ert gestur nr. 40056