![]() |
|
|
Um mig:
Tristan fæddist þann 4. júní 2000, hann var 16,5 merkur og 56 cm, sem sagt í stærri kantinum. Lúkas fæddist 25 júlí 2005, hann var tæpar 18 merkur og 56 cm sem sagt í ennþá stærri kanntinum :o) Mamma okkar heitir Elva Björk og pabbi okkar heitir Guðmundur Freyr, þau eru nú bara alveg ágæt.
![]() ![]() ![]() Elsku mamma og pabbi! Ég er með svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar,svo að ég geti fylgt þér eftir. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt, ég skil það ekki. Horfu á mig þegar ég tala við þig, þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar. Ekki vera alltaf að skamma mig, leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vera vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég er að teikna eða rúmið sem að ég bý um verði fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna. Munda að ég er bara barn,en ekki fullorðinn. Stundum skil ég ekki það sem þú segir. Ég elska þig svo mikið. Elskaðu mig bara fyrir að vera ég, ekki fyrir það sem ég geri! |
|
|
Annað:
ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA Áður en ég varð mamma borðaði ég matinn á meðan hann var heitur, gekk í hreinum fötum og gat spjallað í rólegheitunum í símann. Áður en ég varð mamma gat ég farið seint í háttinn, sofið út um helgar, greitt mér daglega og gengið um íbúðina án þess að stíga á leikföng. Áður en ég varð mamma velti ég því aldrei fyrir mér hvort pottaplönturnar á heimilinu væru eitraðar. Áður en ég varð mamma hafði enginn kúkað, pissað eða ælt á mig. Áður en ég varð mamma hugsaði ég skýrt, hafði fullkomið vald yfir líkama mínum og tilfinningum og svaf alla nóttina. Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei haldið grátandi barni föstu til þess að læknir gæti sprautað það eða tekið úr því blóðprufu. Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei brostið í grát við að horfa í tárvot augu og þekkti ekki þá hamingjuflóðbylgju sem getur sprottið af einu litlu brosi. Áður en ég varð mamma sat ég aldrei langt fram á nótt og horfði á barn sofa eða hélt á sofandi barni vegna þess að ég tímdi ekki að leggja það frá mér. Áður en ég varð mamma vissi ég ekki hvað ein lítil vera getur haft mikil áhrif á líf manns og hversu óendanlega sárt það er að geta ekki kippt öllum vandamálum í lag. Áður en ég varð mamma vissi ég ekki að ég gæti elskað svona heitt og hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri. Áður en ég varð mamma þekkti ég ekki þetta einstaka samband móður við barn sitt og gleðina sem fylgir því að gefa svöngu barni brjóst. Áður en ég varð mamma vaknaði ég ekki tíu sinnum á nóttu til þess að aðgæta hvort allt væri ekki örugglega í lagi. Áður en ég varð mamma hafði ég ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum, sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir því að eiga barn |
| Þú ert gestur nr. 36901 |