Ég heiti Margrét Ólafía


Um mig:






Pabbi minn heitir Guðmundur Magnús og mamma heitir Jóna Sigríður svo á ég stóra systir, hana Ragnheiði Dís 9 ára. Ég átti að koma í heiminn 27. júlí en ákvað að láta bíða eftir mér í 12 daga og fæddist á Landsspítalanum þann 8. ágúst 2003 klukkan 13:36. Ég var 3370 grömm (13.5 merkur) og 50,5 cm... og lang fallegasta barn sem sögur fara af (finnst mömmu og pabba allavega).











LJÓNIÐ

23. júlí - 22. ágúst



Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.







sendu mér póst







Annað:


ÞAÐ LÆRA BÖRNIN SEM ÞAU BÚA VIÐ


Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.

Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.

Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.

Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.

Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.

Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.

Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.

Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.

Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.

Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.

Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.




LOFAÐU SJÁLFUM ÞÉR


Að láta alla vini þína finna að þeir séu mikils virði.

Að horfa á bjartari hliðar lífsins og að láta óskir þínar rætast.

Að hugsa aðeins um það besta, vinna að því besta og búast við hinu besta.

Að vera jafn áhugasamur um velgengni annara, eins og þína eigin.

Að gleyma mistökum fortíðarinnar og stefna að betri árangri í framtíðinni.

Að vera alltaf glaðlegur og eiga bros handa öllum þeim sem þú mætir.

Að gefa þér svo mikinn tíma til að þroska sjálfan þig að þú hafir engan tíma til að gagnrýna aðra.

Að vera of stór fyrir áhyggjur, of öruggur fyrir reiði, of sterkur fyrir ótta og of hamingjusamur til að leyfa vandamálum að festa rætur.




ÞJÓÐSAGA


Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.Barnið snýr sér að Guði og segir:

Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?

Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hann bara ,,mömmu"




ELSKU MAMMA OG PABBI


Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni

Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir

Ekki slá á hendurnar á mér þegar
Ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki

Horfðu á mig þegar ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta

Ég hef viðkvæmar tilfinningar
Ekki vera alltaf að skamma mig

Leyfðu mér að gera mistök
Án þess að mér finnist ég vitlaus

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna

Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki það sem þú segir

Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég
Ekki fyrir eitthvað sem ég geri




Persónuleikatréið mitt

ASKUR - METNAÐUR


Manneskjan er óvenju aðlaðandi, lífleg, hvatvís og kröfuhörð. Hún tekur ekki gagnrýni vel, er mjög metnaðargjörn, og býr yfir góðri greind og hæfileikum.

Manneskjan leikur sér að örlögum sínum og er sjálfhverf á stundum. Henni hættir til að láta heilann ráða ferðinni í stað hjartans, en er trygg í ástum og tekur náin kynni mjög alvarlega.

Ekki gleyma gestabókinni minni





Jóna Guðný stóra frænka

Gunnar Þór

Maron Fannar

Gabriel frændi

Rúnar Örn

Pétur Einar frændi

Ragnar Már frændi

Eva Marín frænka

Ísar Logi vinur minn

Anna Lena frænka og splunkunýja systir hennar

Björk nýjasta vinkona mín

Dagmömmudraumar

Guðmundur Auðunn

Katrín Vísa frænka




Hérna koma svo fleiri flottar síður

Hjálparsíða Ísabellu og Fannars

Hreyfimyndir Maríu



Þú ert gestur nr. 40470