|
ÉG HEITI SAMÚEL INGI DANEÍLSSON
7 ÁRA SJARMATRÖLL !!!
|
|
Um mig:
Ég heiti Samúel Ingi Daníelson og er fæddur 3. apríl 2001. Mamma mín heitir Elfa María Geirsdóttir og pabbi heitir Daníel Jósefsson. Ég á heima á tveimur stöðum, í Hafnafirði hjá mömmu, Ingó fósturpabba og Sebastían litla bróður mínum aðra hverja viku og í Garðabæ hjá pabba,Ernu, Sunnu og Birtu aðra hverja viku. kíktu endilega á heimasíðu litla bróðurs- Sebastían Mána Litli bróðir Ég var svolítið erfiður við mömmu mína í maganum á henni og var hún mjög veik, af þeirri ástæðu var ég eins og tálguð spíta þegar ég kom í heiminn 2780 gr og 51,5 cm en eins og sést á myndunum á síðunni er ég sko engin spíta lengur. Ég er mikill fjörkálfur og finnst mjög gaman að vera til. Mér finnst skemmtilegast að öllu sem snýst um Spiderman, Bakman,Top trumps,bækur og aðrar ofurhetjur.
|
|
|
Annað:
Ég er í 2 bekk í Hofstaðaskóla í Garðabæ- mér finnst gaman í skólanum og er algjör námshestur. Mér finnst skemmtilegast í list og verkgreinunum og tónmennt. Þegar ég verð stór ætla ég að verða Alfræðingur !!!!
Bara Í Kvöld.... -ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig... -ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu... -ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum... -ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum... -ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig. Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín vegna veikinda eða slysa og mæðra sem dvelja á sjúkrahúsum með börnum sínum og berjast fyrir lífi þeirra. Ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt... ...nema annan dag með þér...
Til allra mæðra: Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér að Guði og segir: Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er ? Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig. En segðu mér, hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur? Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur. En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala ? Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala. En hvað geri ég ef ég vil tala við þig ? Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja. Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig? Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið. En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar? Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér. Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði: Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn ? Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,Mömmu"
Ímynd móður 4 ára ~ Mamma mín getur allt! 8 ára ~ Mamma mín veit mikið! Mjög mikið! 12 ára ~ Mamma veit sko ekki allt! 14 ára ~ Auðvitað veit mamma ekki þetta heldur! 16 ára ~ Mamma? Hún er nú svo gamaldags eitthvað! 18 ára ~ Sú gamla? Hún er nú hálf úrelt! 25 ára ~ Jú, hún gæti vitað eitthvað um það! 35 ára ~ Fáum álit mömmu áður en við ákveðum þetta! 45 ára ~ Hvað ætli mömmu hefði fundist um þetta? 65 ára ~ Ég vildi að ég gæti rætt þetta við hana mömmu!
|
| Þú ert gestur nr. 30320 |