online

Ég heiti Jón Aðalsteinn og á pabba & mömmu sem elska mig út af lífinu:)


Um mig:


'Eg fæddist þann 24. júni 2002. Mamma varð svoldið mikið veik þannig að það var ákveðið að ég kæmi snemma í heiminn. Klukkan 13:03 sá ég svo heiminn í fyrsta sinn og líkaði það nú ekki alltof vel, því það tók mig maður og byrjaði að troða slöngu upp í nebbann minn. Hann mældi mig og ég var 2476 gr og 47 cm, dökkhærður og með stór blá augu(þau komu betur í ljós seinna). Fyrstu dagana mína bjó ég á vökunni og fékk brjósta mjólkina hennar mömmu í sondu gegnum nebbann minn. Ég var svo duglegur að stækka, þannig að ég var verðlaunaður með því að fá að flytja heim til pabba og mömmu, mikið voru þau nú ánægð að fá mig loksins heim:)




Ég var skírður Jón Aðalsteinn þann 21.09.'02 af séra Hjálmari Jónssyni. Hann skírði mig heima hjá mér og gaf mér Vísu í gjöf:



Óskið drengnum ykkar þjóni,

undir takið bræður, systur:

Alltaf vaki yfir Jóni

Aðalsteini Drottin kristur.









Annað:




Núna ætla ég að segja ykkur aðeins frá fjölskyldunni minni. Pabbi minn heitir Ólafur Helgi Ingason og mamma mín heitir Siggerður Gísladóttir. Afi minn og amma mín sem búa á Hornafirði heita Gísli Eysteinn og Jónína, en afi minn og amma í Reykjavík heita Ingi Björn og Magdalena. Ég á langafa í Stykkishólmi sem heitir Kristinn. Einnig á ég langömmu og einn langafa hér í Reykjavík sem heita Margrét og Guðmundur.



Ég á hund sem heitir Monró og dverghamstur sem heitir Fabregas.





Mamma er konan sem heldur í hendina

á manni fyrstu árin en hjartað alla ævi.





































































Til allra mæðra:



Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér að Guði og segir: Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er ? Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann býður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig. En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur. Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðurðu hamingjusamur. En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala ? Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkur tíma heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala. En hvað geri ég ef ég vil tala við þig? Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja. Ég heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig? Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið. En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar. Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó munég alltaf vera við hlið þér. Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði: Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn? Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara "Mömmu".



Yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins:
"Öll börn eiga sinn rétt"

1.grein
Öll börn eiga sama rétt á öruggu og heilbrigðu lífi, hvar sem þau alast upp í heiminum. Fullorðið fólk á að sjá til þess að öllum börnum líði vel hvort sem þau eru svört eða hvít, rík eða fátæk, stelpur eða strákar.

2.grein
Öll börn eiga rétt á frelsi, vernd og virðingu og að fullorðið fólk hjálpi þeim að þroskast og læra það sem kemur að gagni í lífunu og í samskiptum við annað fólk.

3.grein
Öll börn eiga rétt á að eignast nafn og föðurland.

4.grein
Öll börn eiga rétt á að lifa við öryggi. Þau eiga öll sama rétt á heilsugæslu, nógum mat, heimili og umhyggju. Þess vegna þarf þjóðfélagið að hlúa vel að mæðrum og börnum þeirra.

5.grein
Öll börn sem eru fötluð á einhvern hátt eiga rétt á sérstakri hjálp, menntun og umönnun.

6.grein
Öll börn þurfa ást, skilning og öryggi til að getað þroskast. Best er ef börn geta alist upp hjá foreldrum sínum. Ef það er ekki hægt á samfélagið að bera ábyrgð á þeim. Samfélagið á líka að hjálpa fátækum foreldrum að koma börnum sínum til manns.

7.grein
Öll börn eiga rétt á því að ganga í skóla. Í skólanum eiga þau að læra að þroska hæfileika sína og skilning. Þau eiga líka rétt á að geta leikið sér og stundað holl áhugamál.

8.grein
Ef óhamingja dynur yfir eiga öll börn rétt á því að vera meðal þeirra fyrstu sem fá aðstoð og vernd.

9.grein
Öll börn eiga rétt á því að vera vernduð gegn ofbeldi og misnotkun. Það á líka að hlífa börnum við erfiðri vinnu sem spillt getur heilsu þeirra og þroska.

10.grein
Öll börn á að vernda gegn vanrækslu og mismunun vegna kynþáttar, trúrarbragða eða annars. Börn eiga að læra að skilningur, umburðarlyndi, friður og vinátta milli þjóða stuðlar að vellíðan og betri heimi.



sendu mömmu póst
Þú ert gestur nr. 31187