Um mig:
Ég, Jökull Elí, er lítill keisari sem fæddist fimmtudaginn 30. janúar 2003 kl. 07:49 og var heil 3155 grömm og 50 cm langur. Það fannst mömmu og pabba glæsileg útkoma.
Milli bróðirinn ég, Dagur Ari, fæddist þriðjudaginn 21. september 2004 og það var 3 vikum fyrir áætlaðan dag. Ég kom í heiminn kl. 23:47 og var 2967 grömm og 49 cm.....ekki svo langt frá tölunum hans JE.
Minnsti stubburinn ég, Máni Lár, fæddist keisari laugardaginn 09. ágúst 2008 og lét alla bíða eftir mér í 9 daga c",) Þó að ég sé yngstur þá fæddist ég stæðstur af okkur bræðrunum eða 3450 grömm og 52 cm og það kl. 21:31 á Odense Universitetshospital í Danmörku.
Mamma okkar heitir Elva Hrund og pabbi Elmar Þór. Mömmu og pabba finnst þau eiga sætustu, yndislegustu og duglegustu stráka í öllum heiminum. Enda erum við bræður algjört konfekt c",)
Við fluttum til Odense í Danmörku þann 7. júlí 2005. Mamma okkar og pabbi eru búin að vera mennta sig síðustu ár og nú tekur eitthvað óvænt og spennandi við. Ég, Jökull Elí, er byrjaður í 1. klasse i Tingkærskolen í Fraugde og Dagur Ari í 0. klasse. Máni Lár er hjá yndislegri dagmömmu sem heitir Marianne og unir sér mjög vel þar á daginn.
|