-
Til hamingju Jökull Elí með skákmeistarann ;o) go go Jökull !!! knús og kveðja. Guðrún frænka Hellu.Guðrún frænka|12.3.2012 14:07:39
-
Flottur Dagur Ari í blakinu, það er svo skemmtileg íþrótt, áfram Dagur ;o) kv. Guðrún frænka Hellu.Guðrún frænka|12.3.2012 13:58:50
Hæ,hæ sæta familía Mig langaði bara að segja takk fyrir mig kæru vinir og takk fyrir samveruna í gær Knús og kramma Elín Sóley :0)María Brynjólfsdóttir | 0 | 26.2.2012 19:39:01 #
Jökull Elí 9 ára
Í gær átti ég afmæli c",) Þennan góða mánudag var ég staðinn á fætur um 5 leytið og gat bara ekki sofið meira fyrir spenningi! Mamma var ekki alveg á því að ég myndi fara vekja restina af fjsk. svona snemma svo að ég neyddist til að sitja á mér í smá tíma þar til kl. varð 6.30 ;o) Ég var svo ofur glaður með allt sem ég fékk og var ekki lengi að pakka öllu upp. Mætti sæll og glaður í skólann og með flødeboller í hönd handa bekknum. Ég og Dagur Ari komum síðan fljótlega heim eftir að skólinn var búinn því að við vorum á leið í skautahöllina með mömmu og Mána Lár. Máni Lár hélt frí þennan dag og voru hann og mamma því tilbúin þegar við komum heim. Við fengum okkur fyrst eina kökusneið áður en við keyrðum af stað og allir mjög spenntir. Við vorum ekki búin að keyra langt þegar mamma fattaði að við gleymdum hjálmunum okkar heima og snéri við. Það var svo þegar við vorum hálfnuð aftur í átt að skautahöllinni þegar Dagur Ari byrjaði að gubba!!! Úff, Máni Lár var sofnaður og ég kúgaðist og kúgaðist yfir lyktinni á meðan Dagur greyið gubbaði yfir sig allan á meðan mamma reyndi að finna stað til að stoppa bílinn :o/ Þegar við svo náðum heim var Degi Ara skutlað í sturtu, fötunum í þvott og mamma út að þrífa bílinn... Máni Lár svaf þetta allt af sér og þegar mamma ætlaði að taka hann inn var hann alveg ruglaður að vera kominn heim og skildi ekkert í því af hverju við værum ekki að fara á skauta. Við tókum því bara rólega restina af deginum og spiluðum skák og lékum okkur með BeyBlade þar til pabbi kom heim. Þá skruppum við mamma aðeins í Rosengårdcentret til að ná í afmælisgjafirnar mínar í Build a Bear og BR Toys og þar inni voru BeyBlade´s á tilboði sem ég náði að plata mömmu til að kaupa handa mér og Degi Ara :o) Kvöldið endaði svo á kúri í mömmu og pabbabóli með nokkrum afmælis símtölum og var ég mjög ánægður með 9 ára afmælisdaginn minn :o) TAKK fyrir mig allir saman - knus, Jökull Elí.
Sunnudagurinn 29. janúar var dagurinn sem við erum búin að vera bíða eftir í allan vetur. Það var nefnilega kominn pínu snjór hjá okkur og þá ekkert annað í stöðunni en að opna og setja saman jólagjöfina hans Mána Lárs :o) Máni Lár fékk nefnilega Stiga sleða í jólagjöf sem hefur verið vel geymdur upp á lofti í kassanum enda enginn snjór verið hjá okkur. Pabbi setti sleðann samann og Máni Lár tók hann með sér heim til Theu þar sem ML og mamma áttu deit með mæðragrúppunni og löbbuðu þau heim eftir hittinginn í æðislegu veðri :o) Þegar heim var komið vorum við stóru strákarnir á leiðinni út með pabba að renna í "brekkunni" bak við Fraugde kirkju. Mamma og Máni Lár komu því líka með og vorum við þar í dágóðan tíma að renna og leika okkur. Þegar við komum heim héldum við áfram að leika í garðinum á meðan pabbi sletti í pönnukökur og gerði heitt kakó handa okkur...mums :o) Þetta var góður dagur...
Afmælisveisla
Laugardaginn, þann 28. janúar sl. héldum við Simon upp á afmælið okkar saman heima hjá Simon. Að þessu sinni buðum við bara strákunum í bekknum þar sem Mai gat ekki haldið upp á afmælið með okkur og það var líka mjög skemmtilegt :o) Dagurinn byrjaði þó ekki eins vel. Mamma hafði gert 2 afmæliskökur handa okkur strákunum deginum áður og þegar við vorum að fara í afmælið sá pabbi um það að setja þær í svona kökubox, en hann gleymdi að festa lokið á botninn svo að þegar mamma var að fara með aðra kökuna út í bíl þá flaug kakan úr boxinu og smassaðist á jörðina og kökudiskurinn brotnaði :o( Það var ekkert við því að gera nema að bruna til bakarans í Dalum og kaupa nokkra íslenska snúða sem að eru alltaf jafn vinsælir hjá krökkunum :o) Festen byrjaði á því að narta í pinnamat eða rúgbrauðsmat, bollur, niðurskornar agúrkur og gulrætur. Því næst lékum við okkur aðeins í spilum áður en við héldum út á leikvöll til að fá okkur frískt loft og leika aðeins í þessum litla snjó sem við vorum svo blessuð með að fá hingað til DK. Þegar við komum aftur inn eftir útiveruna voru mættir tveir töframenn, Morten og Jesper, sem að gjörsamlega heilluðu okkur strákana upp úr skónum með alls kyns trixum og öðrum spilagöldrum. Þetta fannst okkur gaman c",) Eftir klukkutíma trylleri var tími fyrir afmælisköku og smá leik á eftir þar til gestirnir voru sóttir. Við Simon vorum rosalega ánægðir með afmælisdaginn og sérstaklega gjafirnar sem við fengum því að við fengum svo marga peninga ;o) Það voru flestir sem að komu með pening og fengum við heilar 180 kr. hvor!
Seinna um kvöldið var svo kúrt í mömmu og pabba bóli yfir barna MGP sem var í sjónvarpinu...dejligt!
Til hamingju með daginn þinn í gær elsku Jökull Elí. knús og kram.Guðrún og co | 0 | 31.1.2012 10:53:37 #
Janúarmánuður er búinn að líða hratt! Mamma hætti hjá Muuto um miðjan mánuðinn og hefur staðið í eldhúsinu að baka bollur, kökur, skinkuhorn og fleira síðan - og við góðar undirtektir hjá okkur :o) Það varforeldrafundurí leikskólanum hjá Mána Lár þar semMiebar góðar sögurnar af ML. Hún sagði að henni fyndist hann á undan sínum aldri að mörgu leiti og t.d. væri hann mikill humoristi og gerði stundum grín af/og með fóstrunum og það finnst þeim frekar fyndið :o) Ég, Jökull Elí, er að æfa á fullu fyrirMGPhátíðina sem verður haldin næstu helgi hjá SFO og er mikil spenna fyrir hátíðinni...Degi Ara langaði ekki að vera með þar sem hann þjáist af sviðsskrekk af eigin sögn ;o) Við héldum síðan heimabíó dag hér einn góðan sunnudag og buðum Leonóru Sóley og Rakel Köru að koma til okkar að horfa á myndina"Sveppi og töfraskápurinn" sem að okkur fannst rosalega skemmtileg.Jette og Briangiftu sig í ráðhúsinu hérna í Odense þann 14. janúar sl. og fór mamma í athöfnina...Jette er mamma Lucasar sem er með Mána Lár í mæðragrúppu og í leikskólanum :o)
Julle Tulle på besøg den 10. desember 2011
Rétt fyrir jólin fengum við góðan gest í heimsókn. Julle Tulle er lítil jólamús sem kom heim með Mána Lár úr leikskólanum en hann ferðast í blárri tösku til allra krakkanna í leikskólanum. Við vorum svo heppin að hafa Julle Tulle hjá okkur yfir heila helgi við mikinn fögnuð hjá ML :o) Í töskunni hans Julle Tulle var lítil bók sem að við áttum að skrifa í hvað við gerðum af okkur þennan tíma sem hann var í heimsókn en hann Julle Tulle á það til að stríða stundum ;o)
Halløjsa! Jeg gik hjem med Máni i dag :o) Det er fredag og Máni havde planer med at vi to kun se Disney show sammen. Vi fik lidt slik i en skål, men jeg fik ikke noget slik!!! Máni sagde at jeg ikke havde nogen tænder til at spise slik med, så jeg blev lidt ked af det :o( Men Máni´s mor sagde at vi skulle dele sliken som vi endte med at gøre :o) Máni faldt hurtig i søvn i sofaen og imens han sovede hoppede jeg op på ham og løb rundt på hans ryg og ben, hihihi. Så blev jeg træt og faldt selv i søvn...ZZzzzz.
Om lørdagen kunne Máni ikke finde mig og ledede efter mig overalt i huset. Det var så først når Mánis mor skulle hente noget i køleskabet at hun skreg når hun lukkede køleskabet op fordi der var JEG at hygge mig med vindruer og de smagede rigtig godt. After det åbnede vi Mánis julekalender hvor jeg fik også lidt chokolade at smage – mums! Máni var SÅ god til at lege sammen med mig hele dagen og spillede musik for mig inde på sit værelse og så viste han mig hvordan man spiller Super Mario i Nintendo. Inden vi skulle i seng fik jeg lidt mælk men jeg kunne ikke lade være med at drille lidt og fandt på at farve mælken i blå farve! Det syntes Máni være meget sjovt.
Søndagen startede jeg med at bage en kage sammen med Máni og hans mor. Resten af dagen tog vi det stille og roligt, spiste god mad og om aftenen fik vi en godnat historie om julemanden inden vi gik i seng :o) Tak for en dejlig weekend og jeg glæder mig til næste gang. Mange hilsner fra Julle Tulle :o)
Elsku Jökull Elí Hjartanlegar hamingjuóskir mwð daginn. Knús frá okkur í lækjarberginu. kv HULDAHulda | 0 | 30.1.2012 22:26:42 #
-
Elsku Jökull Elí, Til hamingju með 9 ára afmælið elsku vinur. Kærar kveðjur, amma og afiOdda amma og Elli afi|30.1.2012 11:33:52
-
Elsku Jökull Elí, Til hamingju með afmælið þitt. Njóttu dagsins í dag sem og allra hinna. Afmælisknús frá okkur öllum í Fjallalindinni.Hann á afmæli í dag...|30.1.2012 11:03:04
-
Elsku Jökull Elí, hjartanlega til hamingju með 9 ára afmælisdaginn þinn, og njóttu dagsins vel. Afmælisknús og kossar. Amma, Afi og Perla.Blásalir|30.1.2012 07:27:29
-
Til lukku með skákverðlaunin Jökull, frábær árangur :) Ég á líka einmitt mynd af Arnóri á sama aldri og Dagur er núna, að klifra í dyragættinni heima hjá ömmu sinni á Hellu, skemmtilegt :) knús á ykkur öll.Guðrún frænka, Hellu|24.1.2012 14:12:34
Áramótinvoru frekar róleg hérna hjá okkur í ár. Við vorum á náttfötunum nánast allan daginn á meðan foreldrar okkar pökkuðu jólunum niður og gerðu hreint í húsinu. Síðan var eldaður góður matur og sprengt nokkrar sprengjur. Þegar klukkan var að verða átta um kvöldið gat Máni Lár ekki meira og sofnaði! Við stóru strákarnir kíktum aðeins út með stjörnuljós og sprengjur og fengum okkur síðan heimalagaðan ís um kvöldið. Klukkan var ekki orðin meira en tíu þegar Dagur Ari var sofnaður og ég náði heldur ekki að halda lengur út en til klukkan hálf tólf! Það var því fámennt en góðmennt þegar nýja árið sló inn c",) Á nýársdag var tekinn "annar" í gamlárs þar sem við vorum öll úti með sprengjur og stjörnuljós og það var gaman :o)
Á milli jóla og nýarsfór pabbi að vinna einn dag svo að mamma fór með okkur strákana í hyggetur til Köbenhavn og það fannst okkur gaman c",) Við tókum lestina þangað yfir með nesti og afþreyingu í tösku. Þegar við komum upp fra Nørreport Station mættum við hinum konunglegu hermönnum sem voru að fara ganga yfir tilAmalienborgþar sem Margrét danadrotting, prins Henrik og allir hinir eiga heima :o) Við vorum einmitt á leiðinni þangað til að sjá vaktaskiptin hjá hermönnunum svo að þetta passaði allt saman mjög vel og við fylgdum þeim sem sagt alla leiðina að höllinni :o) Okkur fannst soldaterne mjög áhugaverðir og flottir og við tókum fullt af myndum af þeim. Fullt af spurningum ullu upp úr okkur eins og af hverju væru hattarnir þeirra svona stórir og af hverju meiga þeir ekki hreyfa sig úr stað?!? Eftir þetta gengum við upp aðAmagertorvog gæddum okkur á GIGA pönnukökum með Nutella (eða påtella eins og Máni Lár kýs að kalla það), þær voru algjört MUMS! Því næst kíktum við í stóru dótadeildina í Illum og sáum þar fullt af dóti sem við höfðum aldrei séð áður. Einnig kíktum við í Disney búðina sem olli ekki vonbriðgðum hjá okkur ;o) Eftir það fórum við áPost og Telemuseumþar sem við sáum fullt af gömlum símum, frímerkjum, útstillingum, ljósumyndum ofl. Okkur fannst alla vega mjög gaman á safninu :o) Því næst gengum við uppStrøgetog "duttum" inn í ameríska nammibúð sem hafði margar girnilegar vörur að geyma og við gátum að sjálfsögðu ekki staðist freistinguna ;o) Að lokum settumst við niður og fengum okkur að borða áður en við héldum aftur heim á leið með lestinni. Á leiðinni heim spurðum við mömmu hvort að við gætum ekki aftur haldið svona hyggedag...og það mjög fljótlega c",)
Jólin
Í ár voru jólin tekin fyrir á ca. korteri ;o) Mamma og pabbi voru að vinna langa daga og þegar mamma loks náði heim í hús var búið að loka öllum búðunum. Við það fór allt úr böndunum og á Þorláksmessu átti eftir að kaupa jólagjafir, skreyta tréð, pakka inn, þrífa, kaupa í matinn og margt margt fleira.
Aðfangadagur rann upp og rétt eftir hádegi kom Ari frændi okkar frá Horsens :o) Hann var hjá okkur öll jólin og það fannst okkur strákunum EKKI leiðinlegt ;o) Nú aðfangadagur var nýttur í það sem ekki náðist að gera deginum áður eins og að skreyta jólatréð sem var gert hérna um fimmleytið! Jamm, bara skreytt korter fyrir jól getum við sagt c",) Þetta hefst þó allt saman og við fórum í jólabað, fín föt og settumst niður til að borða góðan mat. Það var það sama á boðstólnum og í fyrra eða kalkún með öllu tilheyrandi... Það þurfti ekkert að segja okkur tvisvar að byrja opna gjafirnar enda spennan orðin mikil. Við fengum svo margar fínar gjafir og þökkum kærlega vel fyrir okkur :o*
Jökull Elí
- Mamma og pabbi:Sony MP3 spilara
- Dagur Ari og Máni Lár:Hummel skó og Puma boxer nærbuxur
- Jólasveinninn:Pokemon möppu og Pokemon öskju + sport sokka og Pokemon pakka
- Amma Bryndís og afi Örvar:UrbanEars heyrnatól
- Perla:Bókina "Af hverju gjósa fjöll"
- Aníta Sif og Tinna Dögg:Fjarstýrða þyrlu
- Elísa Björg og Arnór Ingi:Pin art
- Ari frændi:Bókina "Olfert og Olfert - Megasnyd og mælkesnot"
- Amma Odda og afi Elli:Hummel galla
- Balli frændi:Bókina "Jón Oddur og Jón Bjarni"
Dagur Ari
- Mamma og pabbi:Sony MP3 spilara
- Dagur Ari og Máni Lár:Hummel skó og Puma boxer nærbuxur + sport sokka og Pokemon pakka
- Jólasveinninn:Pokemon möppu og Pokemon öskju
- Amma Bryndís og afi Örvar:UrbanEars heyrnatól
- Perla:Bókina "Já, þessi Emil"
- Aníta Sif og Tinna Dögg:Fjarstýrðan svifdisk
- Elísa Björg og Arnór Ingi:Pin art
- Ari frændi:Bókina "Om natten"
- Amma Odda og afi Elli:Hummel galla
- Balli frændi:Bókina "Litlu greyin"
Máni Lár
- Mamma og pabbi:Stiga sleða
- Dagur Ari og Máni Lár:Hummel skó og Strumpa
- Jólasveinninn:Strumpahús bakarastrumps + Toy Story sögusafnið
- Amma Bryndís og afi Örvar:Nintendo 3D
- Perla:Bókina "Komdu höldum veislu"
- Aníta Sif og Tinna Dögg:Toy Story 3D teiknibretti
- Elísa Björg og Arnór Ingi:Pin art
- Ari frændi:Bókina "Historier med fut i"
- Amma Odda og afi Elli:Hummel galla
- Balli frændi:Bókina "Ég er klárastur"
Jafnframt vann Jökull Elí Danmarks spilið þegar hann fékk jarðaber falið í ísnum sínum sem við gæddum okkur á um kvöldið. Eftir hamaganginn var slakað á fyrir framan sjónvarpið á meðan aðrir húsmeðlimir lognuðust út af :o)

