Velkomin/n á heimasíðuna mína
Ég heiti Guðmundur Auðunn, gaman að fá þig í heimsókn


Um mig:
Ég kom í heiminn þann 17.04.2003 klukkan 20.02. Ferðalag mitt í heiminn gekk bara mjög vel og allir voru svaka kátir. Mamma mín heitir Rúna Guðmundsdóttir og pabbi minn heitir Teitur Ingi Valmundsson. Við búum í rosa sætri risíbúð í Hlunnavogi í Rvk. Þar líður okkur alveg svakalega vel. Ég er í leikskóla og finnst skemmtilegast að leika úti og teikna. Einnig er ég einstakur áhugamaður um risaeðlur og önnur dýr. Ef þig langar að vita meira um mig eða skoða af mér fleiri myndir þá er það velkomið og þú smellir þá bara á slóðana hér til hægri.




Annað:
Stjörnuspáin mín !!!

HRÚTURINN

Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér - það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.





Smá þjóðsaga

Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,mömmu"

Þú ert gestur nr. 60055