Febrúar 2009
Árni Jökull var mikið að velta því fyrir sér hvar hann fyndi sér konu þegar hann væri orðinn stór. Mamma sagði honum að hann þyrfti nú ekki að hafa áhyggjur af því alveg strax en kannski myndi hann finna hana í skólanum eða í vinnunni eða í Rauða krossinum eins og pabbi gerði. "Nú finnur maður svoleiðis þar?"
Það sem þessum blessuðu börnum dettur (ekki) í hug að spá í...
11.11.2007
Jæja, nú skulum við fara að drífa okkur út áður en við kaupum alla búðina.
Fjölskyldan var á röltinu um Ikea og herramaðurinn var orðinn eitthvað þreyttur á þvælingnum. Eflaust er þetta eitthvað sem hann hefur heyrt mömmu sína segja... en augnablikið var fullkomið:)
29.04'07
"Nú, afsakaðu að ég skuli vera strákur!!"
Mamma var eitthvað að reyna að siða drenginn og fjarlæjga eitthvað sem hún treysti honum ekki alveg til að meðhöndla. Þá fékk hún bara þetta snilldar svar.
29.04´07
"Nú er ég bara búinn að læra alla tölustafina og þá þarf ég ekkert að fara í skóla."
04.02. 2007
Mamma spurði Árna Jökul hvort hann væri "genginn af göflunum." Hann hélt nú ekki:" Gaflar eru á húsum mamma."
05.08.2006
"Ég má ekki brjóta þennan tjaldvagn, þá þurfum við bara að fá okkur fellihýsi..."
Verið var að taka tjaldvagninn í gegn og þrífa hann. Þetta vall upp úr litla manninum þegar hann var að brölta upp í honum.
02.05.2006
"Pabbi ég er búinn að fá nóg af þér, farðu bara að hvíla þig þegar við komum heim."
"Hvaða eiturbras er þetta eiginlega?"
Við vorum í afmæli hjá Steinunni og Árni Jökull var að fylgjast með eldamennskunni hjá afa í eldhúsinu. Maður lærir ýmislegt af Dýrunum í Hálsakógi.
7.janúar 2006
"Pabbi, pabbi - ég ætla bara að hringja á lögregluna... og láta hana taka til í herberginu mínu..."
Árni Jökull var kominn upp á sófaborð og ætlaði að hoppa yfir í sófann þegar pabbi hans stoppaði hann af. "þú getur ekki hoppað hingað, það er alltof langt, þú dettur bara." Þá heyrist í Árna Jökli: "En ég er Íþróttaálfur..."
Ágúst 2005 Árni Jökull spurði mömmu hvort lömbin borðuðu lambakjöt. Mamma átti svolítið bágt með sig en svaraði að það væri ólíklegt. Þau borðuðu jú bara gras.
Hundar borða hundamat og kettir kattamat, hví skyldu lömbin ekki borða lambakjöt!!
Ágúst 2005
Langamma Steina var að fara með faðir vorið fyrir Árna Jökul (hann kann það samt alveg sjálfur). Eitthvað varf hún trufluð í miðju kafi en hélt svo áfram. Þá heyrðist í litla manninum..."Nei, þú gleymdir brauðinu."
2.8.2005
"Mamma, finnst þér gott kaffi?" "Nei" Svarar mamma. "Mamma drekkur ekki kaffi" Þá svarar Árni Jökull: "Bara ömmur drekka kaffi."
19.06.2005 "Ég ætla aðeins að fara að kasta stein í afabíl."
Þessa dagna er Árni Jökull mjög iðinn við að þurfa "aðeins að fara að gera e-ð." Þess má geta að afi var að kaupa nýjan bíl.
26.03.2005
Árni Jökull fékk páskaegg þegar pabbi átti afmæli. Það voru auðvitað gestir á svæðinu en þegar einhverjir óboðnir gestir ætluðu að trufla Árna Jökul við páskaeggjaátið (í herberginu hans) var hurðinni skellt á nefið á þeim :"Ég verð að loka núna."
28.10. 2004 Árni var að fara að sofa en engin snudda fannst þrátt fyrir mikla leit. Litli maðurinn kann ráð við öllu. "Kaupa nýja duddu búðinni."