| Velkomin á heimasíðuna okkar!!!! Við erum sætu systkinin Ísak Leó og Emilía:) |
| (Leyniorðið er nafnið hans pabba án séríslenskra stafa) |
|
|
Um mig:
Ísak fæddist föstudaginn 18. maí 2001 á landspítalanum. Hann var 3430 gr. og 51 cm og var alveg æðislega mikið krútt og rosalega góður. Hárið var svarbrúnt með hvítum lokk en er núna orðið skollitað, augun hans eru alveg himinblá og falleg. Ísak var alltaf búin að eiga heima hjá ömmu og afa hólastekk en svo flutti fjölskyldan til Danmerkur í september 2002. Ísak er byrjaður í Mårslet skóla og er í 0.C. og þar finnst honum rosalega gaman að vera. Hann er svo duglegur að hann keyrir einn í skólarútunni í 25 mínútur bæði í og úr skólanum... hann er nefnilega orðinn 6 ára töffari og svo duglegur. Emilía er litla systir hans Ísaks sem fæddist 15 júní 2007... þannig hún er alveg glæný. Hún fæddist 2860 gr og 49 cm. Hún er með fallega blá augu eins og bróðir sinn og dökkt hár. Þau eru alveg svakalega góð systikini og Ísak getur ekki hætt að knúsa hana og kyssa:)
Okkur finnst mjög gaman í Danmörku en við söknum samt stundum að geta hitt allar ömmur okkar og afa og frænkur og frændur, sem eru öll svo góð við okkur og okkkur þykir svo rosalega vænt um. |
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 19301 |