Við heitum Kristófer Daði, Embla Eir og Írena Rut





Ég fæddist föstudaginn 8. desember 1995 , kl 2:22. Þegar ég fæddist var ég 3430 gr (tæpur 14 merkur) og 53cm.

Fæðingin mín gekk frekar brösulega. Mamma byrjaði að fá verki 6. desember og ég fæddist ekki fyrr en aðfaranótt 8. desember. Þar sem ég var búinn að borga leigu fyrir 40 vikurnar þá ætlaði ég sko ekkert að yfirgefa staðinn neitt fyrr :/ Ætlaði sko ekki að láta bola mér út svona auðveldlega og endaði mamma því í sogklukku.


Ég var skírður heima hjá mér á Suðurgötunni í Hafnarfirði þann 17. desember´95. Ég var aðeins 9 daga gamall. Villi afi fékk þann heiður að halda á mér undir skírn. Presturinn sem skírði mig heitir Sigurður Haukur Guðjónsson. Hann skírði mömmu mína líka :)

Ég var skírður Kristófer Daði.


Stjörnumerkið mitt er bogmaður









Ég fæddist föstudaginn 18. september 1998, kl 03:20. Þegar ég fæddist var ég 2940 gr (tæpur 12 merkur) og 48.5 cm.

Mamma mín missti vatnið um kl 19 og brunaði þá gamla settið upp á fæðingardeild í einum grænum. Fljótlega eftir komuna á fæðingardeildina duttu hríðarnar niður og ákvað því ljósan að senda pabba gamla heim til að hvíla sig og sagði honum bara að mæta aftur hress og kátur næsta morgun því þá átti að setja múttu í gang. Ljósan hefði betur átt að sleppa því því þegar pabbi var farinn fór allt í gang og pabbi missti af fæðingunni minni. Honum var sko nær að hlusta á þessa ljósu :Þ


Ég var skírð í Víðistaðakirkju í Hfj þann 17. október '98. Þá var ég orðin mánaða gömul. Guja amma fékk þann heiður að halda á mér undir skírn. Presturinn sem skírði mig heitir Sigurður Haukur Guðjónsson.

Ég var skírð Embla Eir.


Stjörnumerkið mitt er meyja.








Ég fæddist fimmtudaginn 21. ágúst 2003, kl 14:55. Þegar ég fæddist var ég 3765 gr (rúmur 15 merkur) og 52 cm.

Fæðingin mín gekk rosa vel og var mamma voða fljót að eiga mig. Mamma missti vatnið kl 11:15. Vorum komin á spítalann kl 12:15 og ég var komin í heiminn kl 14:55. Mamma mín stóð sig eins og hetja þennan dag þessi elska. Fór í gegnum fæðingu mína án verkjalyfja, studdist aðeins við nálastungur :)
Pabbi minn var svo hissa hvað þetta gekk allt vel og fljótt fyrir sig að þegar hann er að segja öðru fólki frá upplifun sinni af fæðingunni þá segir hann alltaf að þetta hafi bara verið eins og mútta hafi bara verið að gera nr 2 en ekki að fæða barn hehehehe.



Ég var skírð í Lágafellskirkju í Mosó þann 5. október '03. Þá var ég orðin rúmlega mánaða gömul. Mamma fékk þann heiður að halda á mér undir skírn. Presturinn sem skírði mig heitir Jón Þorsteinsson.

Ég var skírð Írena Rut.

Stjörnumerkið mitt er ljónið.







Mamma okkar heitir Ásta. Litla skonsan á heimilinu á pabba sem heitir Sumarliði og eldri grísirnir eiga sama pabbann og hann heitir Kristján. Flókið ekki satt :)
Írena Rut á bróðir sem heitir Emil Agnar. Við erum svo heppinn að við fáum að deila honum með henni :) Okkur þykir nefnilega líka svooooo vænt um hann. Hann á líka heimasíðu hér á barnalandi. Þið getið fundið linkinn inn á síðuna hér fyrir neðan.
Við eigum líka frábær frændsystkini sem búa í Oskarström í Svíþjóð. Þau heita Sara Margrét og tvíburabræðurnir Valur og Brynjar. Daði bróðir mömmu á þau. Linkurinn þeirra er líka hér fyrir neðan. Endilega kíkið á þau öll :)

















Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmanns krílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmanns barn er iðulega á kafi í allskonar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogamann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annarsvegar og ábyrgðarkenndar og aga hinsvegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmanns barnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur orðið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni.











Barn í meyjarmerkinu er vinnusamt svo að þú getur bókað að það er nóg að gera í kringum það. Þetta barn getur látið leik líta út fyrir að vera vinna og öfugt, svo að þú veist oft ekki alveg hvað er í gangi. Ekki hafa áhyggjur samt, meyjan sér um að klára sín verkefni, hvort sem það er að laga til í herberginu eða spila skák. Barn í meyjunni er vísindalegt að eðlisfari og er líklegra til að takast á við verkefni um stjörnur og tungl heldur en að planta grænmeti í garðinn. Þessi verkefni meyjunnar munu ganga vel, því að meyjan er haldin fullkomnunaráráttu og veit ekki hvað það er að mistakast. Þessari leit að fullkomnun fylgir oft smámunasemi svo að oft má misskilja þegar að meyjunni gengur gott eitt til. Barnið í meyjarmerki vill borða baunir, en það þurfa að vera bestu fáanlegar baunir (þessu barni getur þóst vera illt í maganum). Meyjan er þrifaleg og vill hafa fínt í kringum sig og ekki bara sitt herbergi heldur allt húsið og öllu raðað í röð og reglu. Ekki slæmt að hafa eina meyju á heimilinu? En þegar allt kemur til alls þá vill barn í meyjarmerkinu helst hafa hlutina einfalda ( ís í brauðformi án dýfu og alls), skipulag og fær ánægju út úr vel unnu verki.













Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.















Sara,Valur og BrynjarEmil Agnar Tinna frænkaAuðunn Logi Frændi
Viðar,Dagur og Arna KatrínHafsteinn VilbergsHeiðmar MániViktoría Mörk
Eva LísaBjarki JónElísabet HelgaJulian Carl
Angela RánSunna ÍsfeldDiljá Dröfn



Bullið hennar mömmu



Ólafur Jóhann frændi


Prinsinn hennar Kötu



Hjálparsíðan góða



Ágústenglar



Börn fædd 2003





Áður en þú varðst til

þráði ég þig.

Áður en þú komst í heiminn

elskaði ég þig.

Áður en þú hafðir lifað eina

stund hefði ég fúslega

dáið fyrir þig.

Þú ert kraftaverk lífsins.





Það læra börn sem þau búa við!!!!


Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.


Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.


Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.


Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.


Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.


Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.


Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.


Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.


Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.


Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.


Það barn sem býr við álúð og vináttu, lærir að elska.






Elsku mamma og pabbi


Ég er með svo litlar hendur. Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.


Fæturnir á mér eru svo stuttir. Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir.


Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt. Ég skil það ekki.


Horfðu á mig þegar ég tala við þig. Þá veit ég að þú ert að hlusta.


Ég hef viðkvæmar tilfinningar. Ekki vera alltaf að skamma mig.


Leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vitlaus.


Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um verðu fullkomið. Elskaðu mig fyrir að reyna.


Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera. Stundum skil ég ekki það sem þú segir.


Ég elska þig svo mikið. Elskaðu mig bara fyrir að vera ég. Ekki fyrir eitthvað sem ég geri.






Þú ert gestur nr. 71082