Við heitum Tristan Máni 5 ára, Sylvía Eik 2 ára og Diljá Dís 1 árs Við erum búin að breyta lykilorðinu þar sem var á er núna a


Um mig:
Tristan Máni fæddist á Landspítalanum aðfaranótt föstudagsins 20 júní klukkan 03:14 árið 2003, alveg á réttum degi samkvæmt sónarnum. Ævintýrið byrjði á 34 viku þegar ljósmóðirin sagði að Tristan Máni væri búinn að skorða sig með hausinn niðri, bakið vinstra megin, rassinn upp í loftið og væri tilbúinn að koma í heiminn. Svo fer mamma í fæðinguna og var að reyna að ýta Tristan Mána út þegar í ljós kom að hann var með rassinn á undan sér, hann hafði fintað alla uppúr skónum því hann var búinn að sitja fastur frá 34 viku á rassinum. Hann var því tekinn með bráða keisara. Þegar Tristan Máni fæddist var hann 4180 gr. og 53,5 cm, hárið var svart og augun blá. Ljósmóðirin sem tók á móti Tristan Mána og sá hvenig hann lá heitir Guðrún S. Ólafsdóttir og útskrifaðist hún einmitt sem ljósmóðir daginn eftir fæðingu Tristan Mána ;) Hún er sko algjör hetja því það voru fleiri ljósmæður og fæðingalæknar sem sáu ekki í hvað stemmdi.

Sylvía Eik mætti í heiminn 16.11.2005 2 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag sinn allt gekk mjög vel og fórum við heim daginn eftir fæðinguna. Þegar Sylvía fæddist var hún 50 cm og 3330 gr. Hún var með blá augu og brúnt hár.

Diljá Dís fæddist 15.05.2007. Hún kom í heiminn 2 dögum eftir settan dag. Allt gekk vel en frekar fljótt fyrir sig......spíttist hreinlega út og var í sjokki fyrista klukku tímann eftir að hún kom í heimin, grét og grét litla skinnið ;). Diljá dís var 52 cm og 3700 gr, hún var með dökkblá augu og mikið svart hár.

Mamma okkar heitir Inga Jóna Ingimundardóttir (78) og pabbi okkar heitir Sigtryggur Rúnar Ingvason (70). Þeim finnst við fallegustu börn í heim og erum við litlu gullmolarnir þeirra


Lilypie 4th Birthday Ticker









Börnin okkar

Elsku yndislegu börnin okkar.
Við vitum að við eigum ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar okkar.
En nú langar okkur til að segja ykkur hvað við elskum ykkur mikið.
Okkur langar til að segja ykkur hug okkar.
Við vitum ekki hvar við værum ef við hefðum ekki fengið ykkur inn í líf okkar.
Þið eruð okkur allt.
Þið eruð súrefnið okkar, andardrátturinn okkar og löngun okkar til að lifa.
Hamingjan okkar hófst með komu ykkar í þennan heim.
Í dag horfum við á ykkur og erum hissa á því hvað þið eruð raunveruleg.
Við erum svo ótrúlega heppin að hafa fengið ykkur inn í líf okkar, og að fá að hafa ykkur, okkur við hlið í gegnum lífið.
Þið eruð gullið okkar, fjársjóðurinn okkar.
Við höfum reynt að læra sem mest af ykkur í gegnum tíðina.
Við reynum að meta ykkur að verðleikum.
Þið hefið kennt okkur svo margt um lífið, sem við annars hefðum farið á mis við.
Hvar værum við án ykkar?

Við elska ykkur elsku börnin okkar, nú og að eilífu

Mamma og pabbi









Annað:
Nú er Tristan Máni oðinn 4 ára töffari. Sylvía Eik verður 2 ára í nóvember og eru þau saman á Nátturuleikskólanum Hvarfi í Kópavogi þar sem við eigum heima. Þeim finnst voða mikið sport að vera saman á leikskóla, þau eru miklir vinir og finnst æðilegt að leika sér saman. Diljá Dís verður bara heima með mömmu að hjálpa henni við lærdóminn fyrsta árið sitt :o)






Barn í tvíburanum

Barn í tvíburamerkinu er snöggt í hreyfingum eins og svipu sé veifað, þó svo að flesta hreyfinar séu uppávið. Þetta barn er alltaf á leiðinni upp á eitthvað. Talandi um orku og virkni! Þetta barn fer lét með að gera 3 hluti í einu og er líklegt til að gera þá alla vel. Hægt er að segja um barn í tvíburamerkinuað það sé mjög klókt og komi sífellt á óvart. Það er einnig ósvífið og gæti komið heim með kettling með slaufu um hálsinn (sem það fann) og fært mömmu sinni að "gjöf". Sætt ekki satt? Það sem þessu barni leiðist er að hafa ekkert að gera, svo vertu vissu um það að stundatafla þess sé alveg þétt skipuð (íþróttir, klúbbar, útivist o.s.frv.) Vegna þess hve barnið er upptekið og hefur margt fyrir stafni þá eignast það marga vini. Tvíburanum líkar að vera trúðurinn í bekknum og gerir í því að gretta sig og segja brandara. Tvíburinn er fyndin og býr yfir góðum húmor. Hugur hans ferðast á ógnarhraða og auðvelt er að örva. Vertu vissu um að hann hafi alltaf nóg að lesa. Fyrir utan lesturinn þá hefur barn í tvíburamerkinu einnig mikla unun á því að tala, segja brandara og taka þátt í íþróttum, og það vill gera þetta allt núna strax. Þegar þú reynir að sjá fyrir þér barn í tíburamerkinu þá skaltu hugsa um Línu Lansokk. Hallaðu þér aftur, dragðu andan djúpt og taktu þátt í fjörinu




***************************************************

Sjáðu hvað ég á


Með hvítvoðung í fangi
liggur hún stofunni í
ljósbleikt hörundið roðnar....

Um nótt varst þú byrta
gargandi her
ómældan sársauka, skapaðir mér....

Í enda er upphafið að leyta
nú liggur þú hér
vafinn af brjósinu heita...


Fingur um mig grípa
starandi undrandi á
sjáðu hvað ég hef skapað

já sjáðu hvað ég á....


Þetta fallega ljóð er eftir hana Jórunni frænku mína

***************************************************






PABBI ER MAÐURINN....

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og
annað fólk.
Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI !!!!!






MAMMA ER KONAN...

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel
um barnið sitt.
Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst
með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!



ELSKU MAMMA OG PABBI

Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni

Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir

Ekki slá á hendurnar á mér þegar
Ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki

Horfðu á mig þegar ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta

Ég hef viðkvæmar tilfinningar
Ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök
Án þess að mér finnist ég vitlaus

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna

Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki það sem þú segir

Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég
Ekki fyrir eitthvað sem ég geri






Litla systir mín ;)



Andrea


Anton Þór og Júlíus Örn


Birta Dís og Huldar Einar


Davíð Helgi frændinn


Elín vinkona mín


Harpa Karin


Ingavar Andri og Elín Rósa


Jason Bjarni og Róbert Óliver


Magnús Blöndal


Lúxsystkynin Tanja, Ísak og Óðinn Breki


Júníbörn


Hjálpasíða Ísabellu Eir


Síða með fallegum orðum

















Þú ert gestur nr. 47298