Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Hrefna Og Ari
Hrefna Og Ari

Við erum Hrefna María og Ari Fannar Hilmarsbörn.

Verið velkomin á nýja og betri heimasíðu.


Mamma var orðin þreytt á að skrifa í heimasíður okkar í tvíriti svo hún ákvað að sameina okkur í eitt.



Um Hrefnu Maríu:

Ég fæddist á Landspítalanum 9. júní 1998 og er fyrsta barn mömmu minnar og pabba. Ég var ósköp krumpuð og mömmu fannst ég stór, alveg heilar 15 merkur og 51cm og hún kallaði mig litla tröllabarn. Það var líka réttnefni, svona fyrstu dagana mína hehe. Ég var ljóshærð og bláeygð þegar ég fæddist. Mamma fékk ekki að halda á mér strax því ég andaði of hratt og var í hitakassa fyrstu nóttina, svo braggaðist ég og vel enn þann dag í dag.



Um Ara Fannar:

Ég fæddist í Keflavík 6. des 1999 því mamma vildi endilega eiga mig í vatni. Þessar mömmur! Eins og það sé ekki nóg að hafa sullað í legvatninu í níu mánuði, en nei nei mömmur þykjast vita hvað er best. Sem betur fer gekk allt þó vel og ég drukknaði ekki hehe. Ég varð stærðar strákur, 17 merkur og 56cm, samt fannst mömmu ég lítill miðað við tröllskessuna hana systur mína hehe. Ég var ljóshærður og bláeygður þegar ég fæddist og er það enn.



Við erum alsystkin og búum ein með mömmu. Mamma okkar heitir Selma og er fædd 1979 og pabbi okkar heitir Hilmar og er fæddur 1973. Allar okkar færslur veturinn 2002-2003 bjuggum við á Ísafirði. Nú eigum við heima í Reykjavík og unum okkar hag vel. Ef þið viljið glugga í gamlar færslur í vefdagbókum okkar þá endilega klikkið á nöfnin.

Hrefna MaríaLykilorðið er "skotta"

Ari FannarLykilorðið er "pjakkur"










Hér eru heimasíður vina og vandamanna

Sigvaldi Rafn

Elísabet Una og Kristrún

Ragnar Kristinn

Sævar Freyr

Tara Angelíca

Elísa Sól

Íris Embla

Kolbrún Sara

Kristófer Marcus

Matthías Nökkvi

Nökkvi Páll

Þorsteinn Bjarki


Túttuklón

Hrafntinna Máney

Viktoría Björt

Snædís Björt

Hrafn Ingi

Bumbuskott



TVÍBURARNIR

21. maí - 21. júní



Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.



BOGMAÐURINN

22. nóvember - 21. desember



Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð.



0 | 12.3.2010 01:55:37 #
  • hæhæ krakkar...takk fyrir síðast...gaman að skoða myndir hérna...:) vildi bara skiljaeftir mig spor hérna..:) bið að heilsa Selmu mömmmu ykkar..:) kveðja Sigga Sif og Haraldur Sveinn
    Sigga Sif og Haraldur Sveinn..
    |
    14.4.2008 23:06:30
  • Gleðilega páska dullurnar mínar. Vonandi eru páslarnir skemtilegir og þið búin að fá páskaegg við sjáumst í mat hjá pabba og sjöfn á mogrun Kveðja á briggjuna. Amma og afi Kef.
    Guðlaug E. Hallbjörnsdóttir
    |
    0
    |
    8.4.2007 14:00:56
  • Hrefna og Ari, Gleðilega páska og hafðu það gott um páskana. Páskakveðjur, Kristófer Marcus.
    Karenina Kristín Chiodo
    |
    0
    |
    8.4.2007 12:12:42
Hæhæ dúllur! Takk fyrir síðast, það var ofsalega gaman að fara í sumarbústað með ykkur síðustu helgi! Langaði bara að kvitta fyrir mér ;o) Knús til ykkar beggja!
Sólrún Birna | 0 | 30.1.2007 14:47:26 #
  • Elsku Hrefna og Ari Gleðileg Jól og farsælt komandi ár. Jólakveðja,Rannveig og fjölsk
    Ranveig Elsa Jonsd
    |
    24.12.2006 13:36:20
  • Hæ Hrefna María og Ari Fannar! Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þakka liðin ár. Jólakveðja Aldís Lóa, Andri Ómar og mamma
    Aldís Lóa og Andri Ómar
    |
    24.12.2006 09:52:48
  • Elsku Hrefna og Ari, Gleðileg Jól og farsælt komandi ár. Jólakveðja, Kristófer Marcus.
    Karenina Kristín Chiodo
    |
    0
    |
    23.12.2006 22:10:25
  • Hæhæ ég gerði síðuna hjá vini þínum og var bara að skoða síðurnar og ákváð að kíkja endilega kiktu á síðuna mína www.barnaland.is/barn/50426
    Fanney
    |
    0
    |
    6.12.2006 21:06:40
  • Eslku Ari minn, hjartanlega til hamingju með 7 ára afmælið, sjáumst á eftir Kær kveðja frá ömmu og afa á Bryggjunni
    Helga amma
    |
    6.12.2006 14:28:37
  • Elsku Ari Fannar! Innilega til hamingju með afmælið í dag. Vonandi hefurðu það sem allra best í dag sem og aðra daga. Koss og knús í kotið þitt, kv. Karen og Ragnar Kristinn.
    Karen
    |
    6.12.2006 12:11:13
  • Elsku Ari Fannar, Innilega til hamingju með daginn :) Vonandi áttu góðan og skemmtilegan dag. mbk.Ásta&Nökkvi
    Ásta S. Sturludóttir
    |
    0
    |
    6.12.2006 12:00:49
Hæ hæ krakkar, langt síðan ég sá ykkur síðast. Ætlaði að kíkja á nýjustu ævintýrin ykkar en mamma ykkar virðist ekki vera dugleg að uppfæra síðuna um þessar mundir :) Sjáumst brátt!!
Sigga Lára | 0 | 20.7.2006 21:44:11 #
  • Hææ flott síða hjá ykkur en ég var að fara skoða heimasíðu vinkonu minnar og ég klikkaði ófart á þessa síðu en endilega kvittið í gestabókina hjá mér inná www.blog.central.is/_zorana_ eða þá inná barnaland.is og þar sem á leita skrifið bara Zorana og þá komist þið inná síðuna ok en nenni ekki að skrifa meira....Bææ....en ekki gleyma gestabókini...;)
    Zorana
    |
    14.6.2006 21:58:12
  • Gat verið...degi of seint, en hér kemur það:) Elsku Hrefna María, til hamingju með afmælið í gær. Vonandi hafðirðu það ofsalega gott. Bið að heilsa mömmu og Ara Fannari. kv. Karen frænka
    Karen Ragnarsdóttir
    |
    0
    |
    10.6.2006 08:47:47
  • Elsku Hrefna María, Innilega til hamingju með daginn. Vonandi áttu yndislegan og skemmtilegan dag skvísa. mbk.Ásta&Nökkvi
    Ásta&Nökkvi
    |
    9.6.2006 14:11:12
  • Þið eruð nú meiri snúllurnar bæði tvö. Bið að heilsa mömmu, Maria
    Maja í Keflavík
    |
    24.5.2006 23:08:05
  • Hæ krílin okkar. Smá kveðjur frá Flórida. Þetta eru rosa flottar myndir af ykkur en hvað eruð þið að gera með þessa ketti? Héðan er allt gott að frétta sól og blíða og það var voða gaman á skipinu. þetta var svo stórt skip að það tók 2900 farþega og 1000 manna áhöfn. Við komum heim á sunnudag og sjáumst vonandi fljótlega. Kveðja til allra amma og afi Flóridafarar
    Guðlaug E. Hallbjörnsdóttir
    |
    0
    |
    19.5.2006 13:28:48
  • Hæ, hæ, Kvitta fyrir mig. Gaman að skoða myndirnar hjá ykkur. Kær kveðja, Kristófer Marcus.
    Karenina Kristín Chiodo
    |
    0
    |
    14.5.2006 11:04:43
  • Hæhæ sætu krakkar! Takk fyrir síðast, það var ofsalega gaman að sjá ykkur í gær, þið voruð svo sæt og flott! Þið eruð líka orðin svo stór og dugleg! Knús til ykkar beggja og ég bið að heilsa mömmu ykkar ;-)
    Sólrún Birna
    |
    7.5.2006 17:25:42