Ég heiti Aron Fannar


Um mig:
Ég fæddist á Landspítalanum
í Reykjavík
þann 14. júní, 2003, kl. 12:18.
Ég var 13 merkur og 50 cm og algjört krútt.

Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir
Rannveig og með henni var líka nemi sem heitir Ásthildur,
mamma segir að þær hafi báðar verið alveg frábærar!!!
Svo var líka fæðingalæknir sem heitir Guðmundur,
hann kippti mér út með sogklukku í restina
því mamma mín og ég vorum orðin svo
þreytt eftir 40 klukkutíma átök.



Foreldrar mínir eru bæði frá Selfossi og heita
Helga Guðmundsdóttir og Birgir Rafn Sigurjónsson.
Við búum þar öll þrjú saman í húsinu okkar og höfum það mjög gott.
Við lágum sængurleguna á Sjúkrahúsinu á Selfossi
og það var yndislegt að vera þar, allir svo góðir við okkur.




Annað:
Ég á nú orðið litla systur, hún fæddist 16.mars, 2007 og hún heitir Eydís Arna. Mér finnst hún algjört æði og er mikið góður við hana. Ég er á leikskólanum Hulduheimum, mér finnst voða gaman þar og á marga góða vini þar sem koma stundum í heimsókn til mín.






Endilega kíkið á síðuna hennar Eydísar:




Eydís Arna litla systir mín




Þú ert gestur nr. 55747