Ég fæddist miðvikudaginn 27,09'00

klukkan 00:25 í Keflavík,

ég var 3340 gr og 48 cm,

ljósmóðirin heitir Aðalheiður Valgeirsdóttir

og mömmu fannst hún æðisleg

og finnst auðvitað enn, :-)

ég var með brúnt hár og dökk blá augu

og líktist pabba mjög mikið.








Annað:
NAGLASAGA

Það var einu sinni lítill drengur sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins. Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið.

Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og nöglunum fjölgaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna. Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum frá því sem lagði nú til að drengurinn drægi út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu. Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.
Faðirinn leiddi son sinn að grindverkinu og sagði: "Þú hefur staðið þig með prýði en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör." Faðirinn hélt áfram: "Vinir þínir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér. Sýndu hversu mikils þú metur þá."

Drengurinn tók þegar ráðleggingum föður síns og sendi til allra vina sinna eftirfarandi orðsendingu: "Þú ert vinur minn og það er mér mikill heiður. Viltu fyrirgefa mér ef ég hef skilið eftir göt í grindverkinu þínu."



Móðurást!

Lítill strákur kom til mömmu sinnar
þegar hún var að taka til kvöldmatinn.
Hann rétti henni miða sem hann hafði
verið að skrifa á.
Mamman þurrkaði sér um hendurnar
og las það sem stóð:

Fyrir að slá blettinn = 500 kr
Fyrir að búa um rúmið mitt
þessa vikuna = 100 kr
Fyrir að fara í búðina = 50 kr
Fyrir að leika við litla bróður minn
á meðan þú fórst í búðina = 25 kr
Fyrir að fara út með ruslið = 100 kr
Fyrir að fá góðar einkunnir = 500 kr
Fyrir að raka garðinn = 200 kr

Á meðan mamman stóð þarna og horfði á strákinn sinn
bíða spenntan eftir því að fá peninginn flugu þúsundir
minninga í gegnum huga hennar. Þannig að mamman náði
sér í penna og skrifaði hinum meginn á miðann:

Fyrir níu mánuðina
sem ég gekk með þig = 0 kr
Fyrir næturnar sem ég sat með þig,

hjúkraði þér, bað fyrir þér = 0 kr
Fyrir tímann og tárin
og kostnaðinn í gegnum árin = 0 kr
Fyrir næturnar sem ég sat andvaka
hrædd um þig og áhyggjurnar
í framtíðinni = 0 kr
Fyrir ráðin og vitneskjuna
sem ég gaf þér
og skólakostnaðinn er ég greiddi = 0 kr
Fyrir dótið, matinn og fötin,
og fyrir að þurrka nebbann þinn = 0 kr

Hún sagði við son sinn, þegar þú leggur þetta allt saman
hvað það kostar mig að elska þig þá er það frítt.

Jæja strákurinn las miðann og leit á mömmu sína
með tárin í augunum og skrifaði á miðann sinn með stórum stöfum

GREITT AÐ FULLU.







Vinarkveðja

Þú hittir ótrúlega margar persónur á lífsleið þinni,
en það eru bara sannir vinir sem skilja eftir spor í þínu hjarta.
Til að geta stjórnað sjálfum þér, notaðu hugvitið.
Til að stjórna öðrum, notaðu hjartað.
Gáfaðar pesónur tala um hugmyndir:
Minna gáfaðar persónur tala um hvað skeði:
Illa innrættar persónur tala illa um aðra.
Sá sem tapar peningum missir mikið. Sá sem missir vin tapar
miklu meira: En sá sem missir trúna á lífið sjálft, missir allt.
Við erum vinir þú og ég, ef þú tekur vin þinn með erum við
þrjú. Við getum stofnað lítinn vinahóp.
Það er jú upphaf og enginn endi.
Njótum lífsins og verum góð hvort við annað því lífið er svo
stutt þrátt fyrir allt og þess vegna ætti ekki að vera tími til
að tala illa um aðra. Öll dýrin í skóginum vilja vera vinir og við
mannverurnar í okkar frumskógi freistinga lífsins viljum líka
vera vinir og góð hvort við annað.
Dagurinn í gær er liðinn,
Morgundagurinn er óvænt ánægja.
Dagurinn í dag er gjöf.





ÞAÐ SEM BÖRNIN KENNA OKKUR



Það er skemmtilegra að lita út fyrir línurnar...
Ef þú ætlar að lita á vegginn í stofunni,
þá er betra að gera það bak við sófann...
Það er ekki satt að Súpermann hafi alltaf
borðað grænmeti þegar hann var lítill...
Ef hundinum þínum líkar ekki við fólk,
þá ætti þér ekki að líka það heldur...

Jafnvel þó þú hafir dorgað á bryggjunni í 3 tíma
og ekki fengið neitt nema þara og sólbruna á nefið,
þá hefur þú það a.m.k. betra en ormurinn á hinum endanum...
Stundum þarftu að taka prófið
áður en þú lýkur við að læra...

Ef þig langar í kettling,
þá skaltu byrja á að biðja um hest...

Það er engin skynsamleg ástæða
fyrir því að föt þurfi að passa saman...

Ef hesturinn sem þú ert að teikna líkist meira hundi,
þá skaltu breyta honum í hund...

Taktu frá pláss í röðinni handa vinum þínum...

Bankaðu bara áfram...og áfram...
þar til einhver kemur til dyra...

Að búa um rúmið sitt er mikil tímasóun...
Búðu reglurnar til jafnóðum...

Það skiptir engu máli hver byrjaði...
Haltu fast í það sem þú vilt...

Spurðu "af hverju?" alveg þangað
til þú færð svar sem þú skilur...





Bara í dag....


-ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast
og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...

-ætla ég að leyfa þér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í
fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag...
-ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í, brosa og hrósa þér fyrir
"fullkomna" litasamsetningu...
-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...
-ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið
þitt...
-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur...
-ælta ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið
og þú ferð að suða um hann...
-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór...
-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir
þína hönd...
-ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki
hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...

Bara Í Kvöld....

-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers
vegna mér þykir svona vænt um þig...
-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu
á gólfinu...
-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...
-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó að ég missi þá af
uppáhaldsþættinum mínum...
-ætla ég að dást að þér og vera þakklát fyrir að eiga gersemi eins og þig.
Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín vegna veikinda eða slysa og mæðra sem
dvelja á sjúkrahúsum með börnum sínum og berjast fyrir lífi þeirra. Ég er svo heppin
að eiga þig og bið ekki um neitt... ...nema annan dag með þér...



Hvað er kærleikur???

Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur.
Kærleikur,er hvert bros sem þú gefur.
Kærleikur,er að faðma þann sem grætur.
Kærleikur,er að hugga þann sem syrgir.
Kærleikur,er að gefa þeim sem þarfnast.
Kærleikur,er umhyggja fyrir öllu sem lifir.
Kærleikur,er að biðja fyrir öllum,góðum sem slæmum.
Kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra.
Kærleikur, er að dæma ekki.
Kærleikur, er ljósið sem býr í hjarta þínu.



MAMMA ER KONAN..............

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og lagað til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er vön að hugsa svo
vel um barnið sitt.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar
á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og
gleðst með manni þegar gaman er að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI





PABBI ER MAÐURINN.............

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki
fæðst barn áður.

En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og
annað fólk.

Samt veit hann allt ! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna mammi ýmislegt finnst
honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI





Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Láttu nú ljósið þitt,
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði jesú mæti.
Ó,ljóssins faðir,lof sé þér,
að líf og heilsu gafstu mér
og föður minn og móður.
Nú,sest ég upp,því sólin skín,
þú sendir ljós þitt inn til mín.
Ó,hvað þú,Guð,ert góður.



ELSKU MAMMA PABBI c",)

Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni

Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir

Ekki slá á hendurnar á mér þegar
ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki

Horfðu á mig þegar ég tala við þig
þá veit ég að þú ert að hlusta

Ég hef viðkvæmar tilfinngar
Ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök
Án þess að mér finnist ég vitlaus

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna

Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki það sem þú segir

Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég
Ekki fyrir eitthvað sem ég geri



hei ekki gleyma gestabókinni minni mér finnst svo gaman að
vita hverjir eru að kíkja til mín :-)






Þú ert gestur nr. 15942