Vertu velkomin/n

Við erum systkinin Emilía Björk og Benedikt Einar ;o)


Um okkur:
Emilía fæddist þann 23. janúar 2004, lét alla bíða eftir sér í sléttar tvær vikur :) en biðin var vel þess virði. Hún fæddist klukkan 12:00 í Hreiðrinu og Margrét ljósmóðir og Hermína ljósmóðurnemi tóku á móti. Fæðingin gekk vel, við fórum upp á Hreiður um þrjú um nóttina og hún kom á hádegi daginn eftir :o) Þegar hún fæddist var hún 13 merkur og 49 cm.

Bobba ljósmóðir og Sara ljósmóðurnemi komu svo til okkar fyrstu dagana og þær eru frábærar ;o)

Benedikt Einar fæddist þann 15. desember 2007, tveim dögum eftir settan dag. Hann fæddist klukkan 14:27 í baði á Hreiðrinu. Pabbinn var viðstaddur ásamt Bobbu ljósmóður og Grétu ljósmóðurnema. Mamman tók sjálf á móti honum í heiminn. Vatnið fór um þrjú um nóttina en hann fæddist um einum og hálfum tíma eftir fyrsta verk. Þegar hann fæddist var hann 14 merkur og 52 cm.

Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðir kom til okkar fyrstu dagana eftir og okkur finnst hún líka frábær.

Mamma heitir Anna Margrét og er að læra hjúkrunarfræði í Háskóla Íslands og pabbi heitir Gunnlaugur Reynir og vinnur hjá OgVodafone og ég er fyrsta krílið þeirra ;o)





Annað:
Þið sem þekkið okkur, ekki vera feimin við að sækja um aðgang að vefdagbókinni og albúminu ;o)

Verið svo dugleg að skrifa í gestabókina!!!

Þú ert gestur nr. 30274