Velkomin til okkar
Við heitum Emma og Friðrik






Bara í dag
-ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast
og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...

-ætla ég að leyfa mér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúin fyrir nýjan dag...

-ætla ég að leyfa þér að velja í hvaða föt þú ferð í... brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu...

-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...

ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt...

-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út og blása sápukúlur...

-ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þessa að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...

-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór...

-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...

-ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær aftur þegar þú sérð ekki til...


Bara í kvöld

-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...

-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu og ekki verða reið út af vatninu í baðinu...

-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða stjörnurnar á himninum...

-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt, þó svo að ég missi þá af uppáhalds þættinum mínum...

-ætla ég að dást af þér og vera þakklát að eiga gersemi eins og þig.







Sporðdrekinn

Þegar barn í sporðdrekanum lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því að það þarf athygli. Foreldrar meiga búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásagjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhnegingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heðarlega fram við hann.


Munið að skrifa í gestabókina, það er svo gaman að sjá hverjir kíkja á mig:-)

Þú ert gestur nr. 13260