| Velkominn á síðuna mína |
| ~ Lilja Björg Ólafsdóttir ~ |
|
|
~Það er komið NÝTT lykilorð inn á síðuna, sendið mail á netfangið helgakr@internet.is ~
Ég fæddist á Landspítalanum þann 15. október 2003 kl. 17.03, ég var 3680 gr. og 51 cm. Ég er með blá augu og ljósbrúnt hár. Mamma mín heitir Helga Kristín Björgólfsdóttir (´80) og er hún uppalin á Akranesi (fótboltabænum mikla) og pabbi minn heitir Ólafur H. Helgason (´80) og er kallaður Onni. Ég og mamma búum á Akranesi með Atla sem er kærastinn hennar mömmu. Atli á stelpu sem heitir Bjarney Birta og hún er 12 ára. Óskabrunnur ófæddra barna Brunnur þessi mun geyma óskir tileinkaðar ófæddum börnum. Lítið barn er ekki sjálfgefinn hluti í lífi hverrar manneskju. Stundum þurfum við að bíða lengi og ef til vill eru börnin í okkar lífi ekki okkar eigin börn, heldur litlar hendur sem læðist í lófa okkar verða þannig gleði lífsins. Á meðan við bíðum eigum við ótal góðar óskir. Innan stundar mun lítið barn fæðast í þennan heim og því munu fylgja hlýjar hugsanir okkar allra. Ég er óskabarn...
Ég og mamma við óskabrunninn.... |
|
|
Ljóð sem Halli frændi samdi handa mömmu og pabba þegar ég fæddist: Einu sinni var allt svo einfalt hér Unga fólkið lék og skemmti sér En indælt líf ykkur ætlað nú Að eiga saman í ást og trú. Gleðitár í taumum rennur Taumlaus ást í hjarta brennur Himneskt ljós í heiminn nú Hamingjuský í ykkar bú. Nú bleyjuskipti við Bítla sánd Breyting mikil er í nánd Að ala upp barn þið ætlið nú Í anda Guðs og góðri trú. Bjart og fagurt ljós nú logar Fyrir litla stúlku í merki Vogar Góða elsku ástin gráttu ei nú Gjöf frá Guði ertu sönn og trú.
Viktor Bjarki Embla Karen Þorsteinn Ólafur Jónína Björk og Elísabet Árný Victoria Lind Gabríel Bjarmi Stefán Ingi Matthías Örn Ester Eir Katrín Nicola og Jónas Arnar og Andri Júlíussynir Kolbrún Halla Árni Björn Jónas frændi |
| Þú ert gestur nr. 30502 |