Velkominn á heimasíðuna okkar
Við erum systurnar Rakel Sara 7 ára og Hulda Vala 3 ára


Um okkur systur
Rakel Sara fæddist 29 janúar 2003 á Landspítalanum við Hringbraut. Hún var 2729 g og 49 cm við fæðingu. Henni lá svo mikið á að hún kom mánuð fyrir tímann og þar sem hún sat sem fastast þurfti að taka hana með keisara. Eins og flest börn var hún með svarblá augu en þetta litla hár sem hún hafði var dökkbrúnt. Í dag er Rakel alger gullmoli, finnst mömmu og pabba. Hún vil gera flest sjálf enda ferst henni flest vel úr hendi. Mamma og pabbi segja að Rakel hafi erft það besta úr þeim báðum. Hún er opin, skemmtileg, uppátækjasöm og klár stelpa:)


Hulda Vala kom í heiminn 29 júlí 2006 eftir 39 vikna meðgöngu á FSA. Hún var 3205 g og 51 cm við fæðingu. Hár hennar var dökkt og augun dökkblá. Hún tók langan tíma í það að koma sér í heiminn eða heila 29 tíma. En þetta hafðist allt á endanum og fór vel. Hulda sýnir snemma að hér er á ferðinni kona með skap en hún á það til að öskra eins og ljón þegar henni þykir. En þegar hún er ánægð er hún hið yndislegasta og þægilegasta barn sem brosir framan í heiminn.




VATNSBERINN

20. janúar - 18. febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.


LJÓNIÐ

23. júlí - 22. ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.
Þú ert gestur nr. 22220