Annað:
Hér eru vísur sem að Danni afi hefur ort handa mér
Er lítum við hinn litla mann
lífsins göngu hefja
er sú von að ætíð hann
ástúð muni vefja
Þegar þér sígur blundur á brá
biðja þess amma og afi þá
að vaki guðs englar vöggunni hjá
og víki öllu vondu frá
Nú er liðið árið eitt
afadrengurinn knái
öllum sendir brosið breitt
bjarti knúturinn smái
Ég er í bogmannsmerkinu og þetta er sagt um bogmenn:
Barn fætt í bogmanni er trúðurinn í bekknum og er ávallt glatt og mikið fjör í kringum það. Passaðu að hafa ekki glas fullt af vökva í kringum það, því bogamaðurinn á eftir að hella því niður. Þetta barn þarf mikið pláss í kringum sig og getur ekki ímyndað sér heiminn án frelsis. Bogamaðurinn elskar frelsið og ferðalög eru í uppáhaldi. Þú mátt búast við að þetta barn sé fyrst til að skrá sig í allar ævintýraferðir og ekki reyna að svipta því frelsinu. Orkan og ákafinn gera bogamanninn að góðum íþróttamanni. Barn í bogamannsmerkinu er stórhuga og opið fyrir öllu mögulegu og ómögulegu! Bogamaðurinn á mikið af vinum og finnst það yfirleitt gera lífið áhugavert. Það lítur jákvætt á heiminn og fólk og þetta er sennilega sá einstaklingur sem berst fyrir því að allir séu jafnir. Mikilvægt er fyrir bogamanninn að finna fyrir réttlæti og þetta barn vill heyra sannleikann í öllum málum. Barn í bogamannsmerkinu kemur sér oft í klandur vegna þess að það segir eitthvað óhugsað og stundum særir bogamaðurinn þig óafvitandi. Hann meinar ekkert slæmt með þessu! Getur stundum verið erfitt að vera foreldri bogamanns, því hann getur kjaftað óvart frá öllum helstu fjölskylduleyndarmálum. Þrátt fyrir þetta fyrirgefur þú þeim auðveldlega, því bogamaðurinn er svo glaður og gaman að vera í kringum hann. Barn í bogamannsmerkinu er svo ánægt með lífið að það getur ekki beðið eftir að vakna í fyrramálið og byrja nýjan dag.
Þetta er dálítið sniðugt, sérstaklega af því að það er margt til í þessu:
FYRIR MÆÐUR DRENGJA
Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit. Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi. Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá, fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá. Drengur er Sannleikur með óhreinindi í andlitinu, Viska með tyggigúmmí í hárinu og Von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum.
Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra. Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar, viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað til, hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi.
Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn (í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla, laugardagsmorgna og brunabíla. Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma.
Enginn er eins árrisull, og enginn eins síðbúinn til matar og hann. Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu, og dularfullu áhaldi, sem enginn þekkir nema hann.
Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann burtu úr skrifstofunni þinni, en þú getur ekki fengið hann burtu úr huga þér. Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra - freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveim töfraorðum -
HALLÓ MAMMA
ÞÚ ERT LÍKLEGA MÓÐIR...
...ef þú felur þig inni á baðherbergi
til að geta verið ein smástund.
...ef þú hefur verið í trimmgalla alla helgina.
...ef fæturnir á þér festast í klístrinu á eldhúsgólfinu
og þér er alveg sama.
...ef það er líklegra að þú verðir fyrir eldingu
en að þú fáir ótruflaðan 8 tíma svefn.
...ef þú hefur aðeins tíma til að raka annan fótlegginn í einu.
...ef þín skilgreining á góðum degi er að
halda fötunum frá sulli og óhreinindum.
...ef þú þværð barninu í framan með
munnvatnsbleyttum þumalfingrinum.
...ef þú gerir ósjálfrátt tvöfaldan hnút á allt sem þú hnýtir.
...ef þér finnst góð lyktin af soðnum gulrótum með eplamauki.
...ef þú ert farin að kaupa morgunkorn með sykurpúðum.
...ef þér tekst að setja ólíkar tegundir matvæla á disk,
án þess að nokkrar þeirra snertist.
...ef þú vonar að tómatsósa sé grænmeti,
af því að það er það eina sem barnið borðar.
...ef þú byrjar alltaf á að skera matinn þinn í litla bita
og leyfir öðrum að borða af disknum þínum.
...ef þú segir setningar eins og:
"ekki setja pastað í nefið á þér...!""
...ef þú telur skrautsykursmolana
á hverjum kökubita svo allir fái jafnt.
...ef þú velur veitingastaði eftir gæðum
barnamatseðilsins og dótinu sem fylgir með.
...ef þú ferð á fætur kl 5:30 á hverjum degi,
hefur ekki tíma til að borða
(hvað þá að drekka eða fara á klósettið)
og samt tekst þér að þyngjast um 5 kíló!
...ef símtölin þín eru sífellt slitin í sundur af setningum eins og:
"Ekki skrifa á vegginn!"
"Ekki nota köttinn fyrir fjall!"
"Nei, skrifborðið á ekki að vera í sófanum!"
"Hættu að toga í hárið á systur þinni"
"Bíddu aðeins á meðan ég næ í þráðlausa símann,
ég þarf að skipta á barninu/gefa barninu að borða/ finna barnið!!"
...ef þú nærð að hlaupa í gegnum alla íbúðina
(og um leið setja barnið í stólinn sinn, hoppa yfir tvö öryggishlið, velta þremur taukörfum, hrasa um leikfang,
hundinn og bolta á ganginum) og svara símanum
áður en kviknar á símsvaranum.
Um leið hefur þú öðlast réttindi til þáttöku í fjölþraut
og átt góða möguleika á að vinna gullið!
...ef þú hefur litlar áhyggjur af bauki og bramli,
en fyllist skelfingu ef allt er hljótt.
...ef þú heyrir rödd móður þinnar þegar þú segir:
"Nei, ekki þegar þú ert í sparifötunum!"
...ef þú ert hætt að gagnrýna uppeldi
móður þinnar á þér og syskinum þínum.
...ef þú ert farin að raula Disney-lög yfir uppvaskinu.
...ef þú færð barnapíu til að komast loksins út með manninum þínum
og eyðir svo hálfu kvöldinu í að athuga hvernig gengur heima.
...ef þú segir á hverjum degi: "Ég er ekki rétta manneskjan í þetta starf"
en myndir samt ekki vilja skipta um hlutverk við nokkurn annan.
Einhver sagði...
-Einhver sagði að það tæki um 6 vikur að komast aftur í eðlilegt ástand eftir fæðingu barns......Einhver veit ekki að um leið og þú verður móðir heyrir "eðlilegt ástand" sögunni til.
-Einhver sagði að mæður þekki móðurhlutverkið af eðlishvöt......Einhver hefur aldrei þurft að versla í fylgd þriggja ára barns.
-Einhver sagði að móðurhlutverkið væri leiðitamt......Einhver hefur aldrei ferðast í bíl eknum af unglingi með ökuleyfi.
-Einhver sagði að ef þú ert "góð" móðir muni barnið líka "verða gott"......Einhver heldur að barni fylgi leiðbeiningar og ábyrgðarskírteini.
-Einhver sagði að "góðar" mæður hækkuðu aldrei róminn við börnin sín......Einhver hefur aldrei farið út í garð rétt í tæka tíð til að sjá barnið sitt sparka fótbolta í gegnum eldhúsglugga nágrannans.
-Einhver sagði að menntun væri óþörf í móðurhlutverkinu......Einhver hefur aldrei þurft að hjálpa 10 ára barni við að leysa stærðfræðiverkefni.
-Einhver sagði að það væri ómögulegt að elska fimmta barn eins mikið og fyrsta barn......Einhver á ekki fimm börn.
-Einhver sagði að öll svör við vandamálum tengdum börnum sé hægt að finna í bókum......Einhver hefur aldrei séð barn troða baun í nef sitt eða eyra.
-Einhver sagði að erfiðasta kafla móðurhlutverksins væri lokið við barnsburð og fæðingu......Einhver hefur aldrei horft á eftir krílinu sínu fara eitt inn í stóra byggingu á fyrsta skóladegi, eða stíga upp í flugvél á leið í fyrsta íþróttakeppnisferðalagið sitt.
-Einhver sagði að mæður geti unnið verk sitt með augun lokuð og aðra hönd fyrir aftan bak......Einhver hefur aldrei þurft að halda tuttugu 5 ára gríslingum ánægðum í barnaafmæli.
-Einhver sagði að mæður geti sleppt hendinni þegar börn þeirra giftast......Einhver veit ekki að hjónaband felur í sér nýjan son eða dóttur til að elska.
-Einhver sagði að starfi mæðra sé lokið þegar yngsta barnið fer að heiman......Einhver á engin barnabörn.
-Einhver sagði að móðir þín viti vel að þú elskir hana svo það sé óþarfi að tyggja á því......
Einhver er ekki móðir.
|