Emilía litla systir mín
Anja Ísis besta frænkuvinkona mín
************************************************
Ég heiti Bjartey Líf Þorgeirsdóttir ég fæddist á sjúkrahúsinu á Akranesi kl:01:47 þann 8.apríl 2003.
Ég var 3955gr og 52cm, ljósmóðir mín heitir Hafdís Rúnarsdóttir hún var yndisleg við mig og mömmu á meðan að þetta allt saman gekk yfir.
Mamma var komin með 2vikur yfir tímann þannig að hún var sett af stað, og var með alveg bullandi hríðir í 1dag. Svo var alltaf verið að ath hvort ég væri nú ekki að fara koma en þá komst það í ljós að ég var bara með hendina fyrir neitaði bara að koma út ;)
Svo mamma mín var tekin með bráðakeisara bara skelt inná skurðstofu og svæfð gat ekki séð neitt, hún sá mig ekki fyrr en morguninn eftir.
Mamma var svo skorin aftur upp vegna þess að það var blóð ennþá í maganum hennar og það mátti bara ekki snerta hana þá "öskarði" hún bara, þannig að hún var bara skorin upp aftur. Og við þurfum að vera á spítalnum í viku, mamma var orðinn svoldið þreytt á spítalamatnum =)



Mamma mín heitir Hafdís Björk Jónsdóttir (Dísa) 1986
Pabbi minn heitir Ásbjörn Skarphéðinsson (Ási) 1985,
Systir mín heitir Emilía Ásbjörnsdóttir (Emma litla) 2008
Við búum öll saman í Kópavogi:)

Alvöru pabbi minn heitir Þorgeir Elvar Hilmarsson (Geiri) 1981,
Kærastan hans heitir Sigrún Birna Sigurðardóttir 1992
þau búa saman í Reykjavík :)




21. mars til 19. apríl

"Hrúturinn er og nefndur ungbarnið í stjörnumerkjahringnum, því merkið er tákn fæðingar eða upphafs. Fólk í þessu merki er líka gjarnan afar upptekið af sjálfu sér, eins og eðlilegt verður að teljast með ungviði. Þarfir þeirra eru einfaldlega mikilvægastar!

En hver getur staðist bros ungbarnsins, eða sakað það um að vera sjálfselskt? Á sama hátt er þessu farið með Hrútinn. Hann er fullkomlega ómeðvitaður um að vera öðrum til ama. Þetta sakleysi er honum meðfætt og það mildar yfirgangssemi hans til muna. Undirferli og illgirni á Hrúturinn ekki til og hann á einnig bágt með að trúa því, að annað fólk hafi þessa eiginleika til að bera. Einstaklingar í Hrútsmerkinu eru þar að auki vonlausir lygarar. Reyni þeir eitthvað slíkt, kemst strax upp um þá.

Fólk í þessu stjörnumerki er yfirleitt auðþekkjanlegt í útliti. Það hefur ákveðna andlitsdrætti, venjulega mjög skarpa, og sjaldan mjúkar eða óreglulegar línur. Augabrúnir ná oft saman yfir nefinu og gjarnan má sjá fæðingabletti eða ör á höfði eða í andliti þessa fólks. Hreyfingarnar eru oftast hraðar og ákveðnar og heilinn fylgir þeim fullkomlega á eftir. Bæði konur og karlar í Hrútsmerkinu hafa breiðar axlir, ganga ef til vill örlítið bogin og eru næstum alltaf að flýta sér. Hrútarnir bera sjálfsöryggið oft utan á sér.

Það er best fyrir Hrútinn að fara reglulega til tannlæknis og láta einnig fylgjast með sjóninni. Hann ætti líka að láta áfengi eiga sig - ekki eingöngu nýrnanna vegna, heldur ekki síður sökum þess að áhrifin fara illa saman við skapgerð fólks í þessu merki."



Hvað er kærleikur???
kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur
kærleikur, er hvert bros sem þú gefur
kærleikur, er að faðma þann sem grætur
Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir
kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast
kærleikur, er að bera umhyggju fyrir öllu sem lifir
kærleikur er að biðja fyrir öllum, góðum og slæmum
kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra
kærleikur er að dæma ekki
kærleikur er ljósið sem býr í hjarta þínu......



Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki það sem þú segir



Ég elska þig svo mikið, elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir eitthvað sem ég geri.....


Amma er oft eldgömul en getur líka verið um 42 ára:)










Ég elska þig svo mikið
og mig langar svo til að segja þér af hverju

Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig
Þú ert besta mamman í öllum heiminum
Ég á þér svo margt að þakka
Ég er svo stolt yfir því að vera dóttir þín

Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda
Þú lýsir upp líf mitt
Frá þér streymir kærleikur og hlýja
Þú ert skilningsrík
og viskubrunnur þinn er óþrjótandi

Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna
Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag
ef ég hefði ekki átt þig að

Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda
og hvenær ég þarf uppörvun
Þú þekkir mig svo vel
Ég veit að til þín get ég alltaf leitað

Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig
Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut

En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig



ÞÚ ERT BEST
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ!
Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.
Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.




Mig langar svo til að segja þér hve kær þú ert mér
og hve mikils virði þú ert í mínum augum
Ég tel mig lánsama/-nn að hafa fengið að kynnast þér
Ég væri ekki sú/sá sem ég er í dag nema vegna þín

Þú hefur leitt mig í gegnum lífið
þurrkað tár mín og huggað mig á slæmum tímum
Þú hefur stórt hjarta, fullt af visku
Þú hefur hjálpað mér að ná draumum mínum

Ég vildi að ég gæti gefið þér þann hæfileika að geta
séð sjálfan þig með augum annarra
Þá myndir þú sjá hve sérstakur þú í rauninni ert

Takk fyrir að vera til
Takk fyrir að vera til staðar
Takk fyrir að vera þú

Ég elska þig pabbi





**EINKARÉTTUR SMÁBARNA**



Ef mér finnst það flott, þá á ég það

Ef ég held á því, þá á ég það

Ef ég næ því frá þér, þá á ég það

Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það

Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir
að vera þitt

Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana

EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það.


Nöfnin mín þýða


BJARTEY

Nafn þetta er myndað úr forliðnum "Bjart" sem leiddur er af lýsingarorðinu bjartur, og viðliðnum "ey" sem merkir hamingja, - heppni.

LÍF

Nafn þetta er komið hingað frá Norðurlöndum og er það þá
skrifað "liv" og merkir það að lifa, - líf.



Þú ert ljósið sem skærast skín
í mínu lífi, elsku stelpan mín
og ég þakka fyrir þig á hverjum degi
og vona, að lengi enn ég njóta þín megi
Þú ert lítill engill sem mér var sendur
svo fullkomin, að mér fallast hendur
Og ég skal gera mitt besta til að sýna þér
að alltaf þú eigir vísan stað í hjarta mér
Og hjartað slær núna hraðar í mér
Þakka þér Faðir, sem allt sér
Af lotningu ég fyllist er ég lít hana á
stúlkuna sem Hann, lét mig fá
Og alltaf er ég lít á þig, svo sæt og fín
þá get ég alltaf undrast, að þú ert dóttir mín
Og þú mátt vita, ef vökvar tárin kinn
Að alltaf sé opinn faðmur minn.





Mikið er ég lítil og sæt hérna :)




Getið sent mömmu minni e-mail hérna:)