| Velkomin á heimasíðuna okkar |
|
|
Ég er orðin 5 ára skvísa
Elfa Sif kom í heiminn þann 17.janúar 2004 kl: 15:45. Hún fæddist í Hreiðrinu 13 dögum fyrir áætlaðan tíma. Guðlaug Pálsdóttir ljósmóðir og Esther Ármannsdóttir ljósunemi tóku á móti henni. Hún vóg 2885 gr og var 47 cm. Við gistum í Hreiðrinu yfir nóttina og fórum svo heim þegar hún var orðin sólarhringsgömul. Anna Eðvaldsdóttir var ljósmóðirin okkar á meðgöngunni og svo kom hún til okkar eftir að við komum heim. Við vorum rosalega ánægð með hana. Hún sagði að Elfa Sif væri pínkulítil og sæt með undirhöku :) Elfa Sif fæddist með dökkskollitað mikið hár, algjör prinsessa !!! Elfa Sif fékk gulu og þurfti í fara í ljós á 4.degi til að hjálpa henni að losna við hana. Hún var í ljósunum í hálfan sólarhring en þá kom barnalæknirinn og útskrifaði hana úr ljósunum og 5 daga skoðuninni :) *Elsku yndislega dóttir okkar* Við vitumt að við eigum ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar okkar. En nú langar okkur til að segja þér hvað við elskum þig mikið. Okkur langar til að segja þér hug okkar. Við vitum ekki hvar við værum ef við hefðum ekki fengið þig inn í líf okkar. Þú ert okkur allt. Þú ert súrefnið okkar, andardrátturinn okkur og löngun okkar til að lifa. Hamingja okkar hófst með komu þinni í þennan heim. Í dag horfum við á þig og erum hissa á því hvað þú ert raunverulegur. Við erum svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf okkar, og að fá að hafa þig okkur við hlið í gegnum lífið. Þú ert gullið okkar, fjársjóðurinn okkar. Við höfum reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina. Við reynum að meta þig að verðleikum. Þú hefur kennt okkur svo margt um lífið, sem við annars hefðum farið á mis við. Hvar værum við án þín? *Við elskum þig elsku dóttir okkar* Nú og að eilífu. Mamma & pabbi Ég er 3ja ára grallaraspói hihi.....
Andri Thor kom í heiminn þann 26. maí 2006 kl:15:28 Hann fæddist einnig í Hreiðrinu 10 dögum fyrir áætlaðan tíma. Anna Eðvaldsdóttir ljósmóðirin okkar tók á móti honum. Hann vóg 3470 gr og var 51 cm. Við gistum í Hreiðrinu yfir nóttina og fórum heim þegar hann var tæplega sólarhrings gamall. Hann fæddist með dökkt hár og er sannkallaður prins !!! Anna ljósmóðirin okkar kom svo til okkar dagana á eftir eins og með Elfu Sif. Okkur finnst alveg æðislegt að hafa haft sömu ljósmóðurina báðar meðgöngurnar okkar og sængurlegu og toppurinn var að fá hana í fæðingunni líka :) *Elsku yndislegi sonur okkar* Við vitumt að við eigum ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar okkar. En nú langar okkur til að segja þér hvað við elskum þig mikið. Okkur langar til að segja þér hug okkar. Við vitum ekki hvar við værum ef við hefðum ekki fengið þig inn í líf okkar. Þú ert okkur allt. Þú ert súrefnið okkar, andardrátturinn okkur og löngun okkar til að lifa. Hamingja okkar hófst með komu þinni í þennan heim. Í dag horfum við á þig og erum hissa á því hvað þú ert raunverulegur. Við erum svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf okkar, og að fá að hafa þig okkur við hlið í gegnum lífið. Þú ert gullið okkar, fjársjóðurinn okkar. Við höfum reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina. Við reynum að meta þig að verðleikum. Þú hefur kennt okkur svo margt um lífið, sem við annars hefðum farið á mis við. Hvar værum við án þín? *Við elskum þig elsku sonur okkar* Nú og að eilífu. Mamma & pabbi Stoltu foreldrar okkar heita Hlynur Elfar og Sif. Þau eru lang lang lang best í öllum heiminum. Þeim finnst þau eiga fallegustu og bestu börn í öllum alheiminum. Við búum öll saman í Mosfellsbæ, og erum mjög ánægð þar. Heimsins besti pabbi - er pabbi okkar !!! Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt !! Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Pabbi er besti maður í heimi. Heimsins besta mamma - er mamma okkar !!! Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi. Fjölskyldan
|
|
|
|
Skírn Elfu Sifjar Sunnudaginn 15.febrúar 2004 var Elfa Sif skírð í Lágafellskirkju í heimabænum okkar Mosfellsbæ. Það er hægt að segja að það sé í höfuðið á pabba en hann heitir Hlynur ELFAR, og afa, sem heitir Þröstur ELFAR og svo henni mömmu minni SIF. Skírn Andra Thors Sunnudaginn 11. júní 2006 var Andri Thor skírður í Lágafellskirkju eins og systir sín. Nafnið er algjörlega út í loftið, mömmu og pabba fannst það bara svo fallegt og passa mér vel. Nöfnin okkar þýða : ELFA Nafn þetta er dregið af orðinu "elfur" sem merkir á. Einnig gæti það tengst orðinu "Álfur" í merkingunni huldumaður. Einnig getur það verið stytting nafnsins "Elvira" frá Norðurlöndum og merkir hin hvíta. SIF Nafn þetta er komið úr goðafræðinni og var ekki farið að nota það sem eiginnafn fyrr en á síðustu öld. Nafnið merkir frændkona. ANDRI Norrænt nafn er merkir skíði. THOR Önnur ritmynd af nafninu "Þór" sem er þrumuguðinn úr norrænni goðafræði. Stjörnumerkin okkar Steingeitin 22. desember - 19. janúar Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar. Barn í steingeit Barn fætt í steingeit hagar sér eins og fullorðinn frá því að það fæðist. Sá sem fylgist með verðbréfamarkaðnum fyrir fjölskylduna, litla viðskiptaveran á heimilinu. Þessi einstaklingur er fæddur frumkvöðull og er ávallt með áætlun í gangi. Áætlun um að vera kóngur í ríki sínu, ná á toppinn. Þú getur bókað að þessi áætlun er ítarlega útfærð og í smáatriðum. Við hverju máttu búast af barni fæddu í steingeit? Fyrst og fremst, viðskiptamanni með stórar viðskiptaáætlanir! Það er barn fætt í steingeit sem setur upp sölubás og ræður "starfsmenn" til að vinna fyrir sig. En þú þarft ekki að óttast neitt, því að steingeitin er réttlát og hugsar vel um þá sem hjálpa henni. Varkárni og ábyrgð eru þessu barni eðlislægt og það fer ekki út í neitt sem á ekki góða möguleika á að ganga vel. Barn fætt í steingeit lætur aðra um að klífa fjöll og vill sjálft hafa báðar fætur á jörðinni (enda er steingeit jarðarmerki, þrátt fyrir allt). Ef þú ert að leita þér að einhverjum til að passa fyrir þig, þá er steingeitin góður kostur. Steingeitinni fer vel að hugsa um aðra og heldur öllu í röð og reglu. Þetta barn leitar ávallt að fullkomnun og vinnur mikið til að ná fullkomnun. Þetta barn skaltu taka alvarlega og fylgjast vel með, því það er líklegt til að ná mjög langt í lífinu. Tvíburarnir 21. maí - 19. júní Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.
|
| Þú ert gestur nr. 58164 |