Annað:
ELSKU MAMMA OG PABBI
Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni
Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir
Ekki slá á hendurnar á mér þegar
Ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki
Horfðu á mig þegar ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta
Ég hef viðkvæmar tilfinningar
Ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök
Án þess að mér finnist ég vitlaus
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna
Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki það sem þú segir
Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég
Ekki fyrir eitthvað sem ég geri
LITLU HENDURNAR MÍNAR
Litlu hendurnar mínar
langar að gera svo margt,
þegar ég læri og leik mér
og lifi frá degi til dags,
við að klæða mig, klippa og föndra
og kætast til sólarlags.
Fingraförin mín set ég
á flesta staði hér,
þau tákna ást mína á öllu
en einkum svo heita á þér.
Svo gerðu það-ekki afmá þau öll-
þau auðkenna hver ég er.
Litlu hendurnar mínar
listmuni búa til
og marga merka hluti
til marks um það sem ég vil.
Litlu hendurnar mínar
löngum vaxa svo skjótt
er tíminn líður og líður,
líður svo undurfljótt.
Litlu hendurnar mínar
leikandi við svo margt fást
en ekkert þó jafnast á við
er hendurnar mínar,
lokast um þínar
og umlykja alla okkar ást.
![]()
|