|
|
![]() |
|
Ég fæddist þann 27. apríl 2004 eftir að hafa látið mömmu og pabba bíða eftir mér í níu daga, ofan á mánuðina níu. Ég þóttist reyndar ætla að koma í heiminn 10 dögum fyrr en það var bara plat. Ég vóg 4260 g eða 17 merkur og mældist 52 cm við fæðingu. Þegar ég fæddist snörlaði svolítið í mér og ég grét ekki kröftuglega. Ljósmóðirin saug tvisvar upp úr mér en snörlið lagaðist ekki. Því var ég sendur pínu stund á vökudeildina en sem betur fer reyndist ekkert að. Mamma og pabbi voru alveg ónýt yfir því að vera Þorralaus í 3 klst og ánægjan var mikil þegar ég kom aftur til þeirra. Mamma mín heitir Arngunnur Ylfa og pabbi heitir Valgarður en er iðulega kallaður Valli. Ég á eina stóra systur sem heitir Iðunn og er hún 7 ára. Iðunn er besta stóra systir í heimi og elskar hún mig voða mikið og er alltaf að segja mér það. Svo er hún líka mjög dugleg að hjálpa mömmu og pabba að sjá um mig. Hún er fyndnasta stóra systirin í öllum heiminum. Ég er svo orðinn stóri bróðir því mamma mín fæddi hana Nínu Rakel þann 31. október 2008. Ég dýrka hana og dái og segi henni á hverju degi hvað hún sé falleg og hve mikið ég elski hana. Ég er í leikskólanum Rauðaborg og elska hreinlega að fara í leikskólann. Ef ég fengi að ráða þá væru sko engar helgar. Hérna eru vinir mínir og ættingjar: Iðunn systir Agnes Halla Anna Dúfa og Gunnar Arndís María Aron Bergur Aþena Ugla Benedikt Snær Bryndís Pálína & Katrín Diljá María Frosti & Fanney Gunnhildur Bjarnveig og Kristófer Jónas Hafsteinn Már Hildur Embla Hrafnkell Emil Ívan Elí Jakob Páll & Emilý Júlíus Arnar Matthías Leó Nína Rut Sigmundur Nói Sunneva Rún Tryggvi Gautur og Fjóla Rannveig Þröstur Jón Æsa Sigurbjörg
|
|
|
|
|
Þorri Nafn mitt er það sama og eitt nafnanna á gömlu íslensku mánuðunum. Þorrinn er fjórði mánuður vetrar og hefst á bóndadegi á föstudegi í 13. viku vetrar, sem getur verið á bilinu 19. - 26. janúar. Þorranum lýkur á þorraþræl sem er laugardagurinn fyrir konudag og tekur þá góa við. Nafn þetta er einnig gælunafn karlmannsnafna sem byrja á "Þor-". Þetta er sagt um afmælisdaginn minn: 27. apríl Þú ert aðsópsmikill og yfirráðagjarn að eðlisfari. Stefnufesta þín og þolgæði ættu að skapa þér velgengni í lífinu. Þú ert fljótur að skipta skapi og átt bágt með að umbera svik og rangleitni. Þú ert tilfinningaheitur og hefur ríka ásthneigð, en þér er ósýnt um að gera ást þína að sýningarvöru.
Nautið 20. apríl - 20. maí Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. "Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?" Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því. |
|
| Þú ert gestur nr. 32033 |