![]() |
| (Lykilorðið er nafnið á kisunni sem mamma og pabbi áttu. Ekki íslenskir stafir.) |
|
|
Um mig:
Við erum systkinin Veronika Heba og Nói Fannar. Veronika Heba Smáradóttir kom í heiminn þann 7 júni 2001. Hún var agnarsmá, 2740 gr. og 46, 5 cm, með mikið svart hár, blá augu og alveg ofsalega lík pabba sínum:) Veronika Heba er komin í 1 bekk í Álftanesskóla og finnst rosalega gaman í skólanum. Nói Fannar kom í heiminn þann 4 mars 2008. Hann var töluvert stærri en systir sín, 16 merkur og 51 cm, með mikið ljóst hár og frekar líkur mömmu sinni:)
Veronika: Nafn þetta er latnesk ummyndun nafnsins "Berenice" og merkir sú sem veitir sigur. Heba: Nafn þetta er komið af gríska orðinu "hebus" sem merkir ungur. Nói: Nafn þetta er komið úr biblíunni, af hebreska orðinu "nwh" sem ýmist er talið merkja hvíld eða langlífi. Fannar: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Fann" sem merkir snjór og viðliðnum "ar" sem merkir hermaður.
VERONIKA ER TVÍBURI OG HÉR KEMUR LÝSING Á BARNI Í TVÍBURAMERKINU: 21. maí - 21. júní Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu. NÓI FANNAR ER FISKUR OG HÉR KEMUR LÝSING Á BARNI Í FISKAMERKINU: 19. febrúar - 20. mars Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.
Hér koma síður sem vinir okkar eru með hérna á barnalandi: Hekla og Katla Ísak Leon og Kristín Marý Hafdís Anja Óttar og Kristín |
|
|
Annað:
EINKARÉTTUR SMÁBARNA
Ef mér finnst það flott, þá á ég það Ef ég held á því, þá á ég það Ef ég næ því frá þér, þá á ég það Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana EF það líkist dótinu mínu, þá á ég það
Fjöldi gesta síðan ágúst 2003 |
| Þú ert gestur nr. 25704 |