Velkomin á heimasíðuna mína
Ég heiti Lúkas Jói og er 5 ára töffari sem er stóri bróðir


Um mig:
Lilypie 5th Birthday Ticker
Loksins lét prinsinn sjá sig en hann lét bíða eftir sér í 10 daga. Mánudaginn 9 febrúar áttum við að mæta á spítalann í gangsetningu en þess þurfti ekki því strákurinn ákvað sjálfur að nú væri tími til að láta sjá sig. Eftir 12 tíma streð kom í ljós að höfuðið var ekki rétt skorðað svo þá var ákveðið að fara í keisara. Allt gekk vel og allir glaðir. Þjóðverjunum fannst hann stór, 4150 gr og 53 cm, en það er nú bara algengt á Íslandi. Það vakti mikla eftitekt hversu stórar hendur og fætur hann hefur, "grosse fusse, grosse fusse" ómaði um deildina. Stráknum var strax gefið nafnið Lúkas sem er dýrlinganafn og alveg út í loftið en í sumar fórum við svo til Íslands þar sem prinsinn var skírður og þá bættist nafnið hans afa, Jóhannes, við. Foreldrunum fannst ekki annað hægt þar sem afi er bestur í öllum heiminum. Við köllum hann samt næstum alltaf bara Lúkas en stundum Lúkas Jói þar sem allt nafnið er soldið langt :)







Annað:
Hér er Lúkas glænýr með pabba sínum.

"Pabbi minn heitir Alexander Petersson og spilar handbolta i Flensburg, Þýskalandi. Hann er fæddur i Riga, Lettlandi og þar á ég ömmu, afa og fullt af ættingjum og vinum. Pabbi er samt Íslendingur eins og mamma, Eivor-Pála Blöndal, en hún er fædd á Islandi þar sem ég á lika ömmu og afa og miklu fleiri ættingja sem geta ekki beðið eftir að hitta mig."










Þú ert gestur nr. 68604