Við erum Eva og Ari


Um okkur:
Eva fæddist á Landspítalanum þann 19. desember 2002 kl. 12:51 eftir 38 vikna meðgöngu. Hún átti sem sagt að koma í byrjun janúar, en hana langaði svo í jólapakka... og að vera ári eldri! Þegar hún fæddist var hún ósköp lítil og pen, 3.035 gr og 49 cm. Eva er í 2. bekk í skóla sem heitir Colegio Alma's og er ofsalega dugleg.

Ari kom í heiminn á Clínica Santa Catalina á Gran Canaria þann 15. nóvember 2006 kl. 12:50. Hann kom þremur dögum eftir áætlaðan fæðingardag en var samt voða lítill, 3.150 gr og 49 cm. Hann er kraftmikill strákur og er nýbyrjaður í sama skóla og Eva.

Systkinin eiga heima á Kanarí (Gran Canaria) með mömmu og pabba en reyna að heimsækja ættingja á Íslandi eins oft og þau geta.




Annað:
Pabbi okkar heitir Egill og er frá Eskifirði. Amma og afi á Eskifirði heita Sólveig og Árni.

Mamma heitir Guðrún og hún er frá Reyðarfirði. Amma og afi á Reyðarfirði heita Jórunn og Rúnar.

Svo eigum við líka þrjár langömmur og einn langafa.

Þú ert gestur nr. 48256