Eva: "Mamma. Þú ert bara alveg eins og Lína langsokkur!"
Mamma: "Nú, af hverju segirðu það?"
Eva: "Af því þú ert með svona doppur í andlitinu eins og hún!"
Ekki alveg með orðaforðann á hreinu, veit núna að þetta heita freknur...
(September 2007)
"Hey! Ég sá svona reykistöng...!"
Eva var að setjast inn í bílinn og sá sígarettu á götunni... greinilega ekki mikið reykt í kringum hana!
(September 2007)
Eva var að fara að sofa og mamman var að kyssa hana góða nótt. En Eva vildi ekki sleppa takinu. Mamma: "Jæja, nú þarf ég að drífa mig í sturtu, og svo kíki ég á þig á eftir." Eva: "En það er engin skítalykt af þér!"
(Janúar 2007)
Amma og afi voru í heimsókn og einhvern morguninn var Eva að fylgjast með ömmu mála sig.
Morguninn eftir vildi hún svo endilega fá að skoða snyrtibudduna aftur og spurði:
"Amma ætlarðu ekkert að föndra þig í dag...??"
Er mála ekki að föndra?!
(Desember 2006)
Mamman er ófrísk og tekur alltaf vítamín á morgnanna.
Eva var að fylgjast með því einn daginn og spurði svo:
"Mamma, hvað er þetta?"
Mamma: "Þetta er vítamín"
Eva: "Jaá, þetta er vítaþín!"
Ekki furða að maður ruglist smá...
(Júlí 2006)
Eva var að leira og bjó til margar litlar kúlur.
Mamman spurði: " Eru þetta bollur? Ertu bakari?"
Eva svaraði frekar hneiksluð: "Neih, ég er bakara!"
Best að hafa það á hreinu, hún er sko ekki strákur!
(Júní 2006)
Eva var stödd í verslanamiðstöð og var nýbúin að pissa. Mamman spurði hvort hún hefði nokkuð gleymt að þvo hendurnar.
Eva: "Jú, ég gleymdi því. Og ég gleymdi líka að vinda þær..."
Mamma: "Ha, vinda? Þú meinar þurrka, með handklæði."
Eva: "Nei, svona vinda, með vindi!"
Auðvitað... það eru nú ekki handklæði í verslanamiðstöðvum, bara svona vindur! (Mars 2006)
Eva var með tagl í hárinu þegar hún kom heim úr leikskólanum einn daginn.
Mamma: "Hver var að greiða þér?"
Eva: "Enginn. Aline var bara að tagla mig!"
Miklu einfaldara að búa bara til sögnina "að tagla" heldur en að segja "setja í mig tagl", og svo var hún ekki með neina greiðu!
(Febrúar 2006)
Eva: "Mamma, ég á systur."
Mamma: "Nú, hver er það?"
Eva: "Bríet"
Mamma: "Nei, hún er ekki systir þín, hún er frænka þín. Kannski eignast þú einhvern tímann systur. Kannski þegar þú verður fjögra eða fimm ára..."
Eva: "Já. Þá missi ég allar tennurnar!"
Miklar pælingar varðandi fjölskyldutengsl og fleira
(Janúar 2006)
"Þetta er eins og flott sjónvarp!"
Eva sat í bílnum á leiðinni til Las Palmas og var að horfa út um bílgluggann. Greinilega margt fallegt að sjá.
(Janúar 2006)
"Nei, mamma. Ekki syngja með tásunum, bara með munninum!"
Mæðgurnar voru að syngja með barnalögum og mamman mátti sem sagt ekki stappa taktinn með fótunum...
(September 2005)
Eva var á klósettinu og vildi fá frið á meðan. Mamman sagðist bara ætla fram en þá heyrðist í þeirri litlu: "Farðu bara að elda mamma!"
Mamman: "Nei það er alltof langt, ég get ekki farið niður þegar þú ert ein á klósettinu"
Eva: "Farðu inní herbergi að leika þér eitthvað!"
Hefur greinilega heyrt þetta einhvern tímann, og fannst herbergið vera passlega langt frá!
(Ágúst 2005)
"Eva skeina moco"
Skvísan sat á klósettinu og var að pissa. Tók svo smá pappír til að snýta sér (moco er hor á spænsku!).
(Maí 2005)
"Sjáðu, þykjustu mótorhjól!"
Eva var að labba með mömmu sinni úr leikskólanum og sá reiðhjól...!
(Apríl 2005)