Sunnudagurinn 1. febrúar 2009

Gleðilegt ár !!!

Á föstudaginn var haldið upp á día de la Paz (dag friðar) á Spáni og í fleiri löndum. Í leikskólanum hans Ara var föndrað í tilefni dagsins og krakkarnir reyndu að vera góð hvert við annað – gekk víst misvel! Í skólanum hennar Evu var unnið með friðarþema alla vikuna og svo var haldin hátíð á föstudaginn. Krakkarnir máttu mæta í hvítum fötum og svo komu þau fram og sungu, lásu ljóð og fleira. Eva fór með ljóð ásamt bekkjarsystkinum sínum og svo var hún kölluð upp á svið til að taka við verðlaunum. Í vikunni var nefnilega haldin teiknisamkeppni og Eva var einn af vinningshöfunum – hún er svo rosalega flink að teikna stelpan :)

Ari talar út í eitt og það bætast ný orð við orðaforðann á hverjum degi, bæði íslensk og spænsk. Það er oft mjög fyndið að hlusta á hann því að hann er farinn að bæta alls konar aukaorðum inní og svona fullorðins, t.d. einmitt, notalegt, rólegheit, elskan mín, óþægilegt o.fl. "Hæ sí músíkal" er uppáhalds sjónvarpsefnið hans þessa dagana, og hann er jafnvel spenntari fyrir því heldur en Eva. Hann syngur með lögunum og dansar, og reynir að gera listir með körfuboltann sinn eins og strákarnir í myndinni :)

Pabbinn er búinn að vera á flakki í janúar, búinn að fara til Marokkó í nokkra daga og var svo á Íslandi í viku, en hann kom aftur heim á miðvikudagskvöld. Hann stoppar vonandi bara sem lengst heima núna :) 

Mamman er loksins búin að ná að setja inn myndir fyrir síðasta ár og janúarmyndir koma bráðum...

1. febrúar 2009 14:22
Engin athugasemd
Þriðjudagurinn 30. desember 2008

Gleðileg jól :)
Nú er Eva skvísa orðin sex ára og foreldrunum finnst hún bara hafa lengst helling síðustu daga... Það var að sjálfsögðu haldin afmælisveisla henni til heiðurs, en að þessu sinni var hún óvenju fámenn því það voru svo margir sem komust ekki. Það var bara ósköp notalegt og afmælisbarnið kvartaði ekki þó að pakkarnir væru færri en venjulega! Um nóttina fékk Yaiza svo að gista og vinkonurnar voru sko í skýjunum með það.
Hér voru jólin bara ofsalega notaleg. Mæðgurnar fóru í messu á aðfangadag og feðgarnir lögðu sig á meðan, síðan voru eldaðar dýrindis rjúpur og að sjálfsögðu opnaðir pakkar... Ótal pakkar hafa borist í hús undanfarna daga og vikur, bæði afmælis- og jóla- og við viljum bara þakka kærlega fyrir allt þetta fínerí. Hér ríkir mikil kátína með þetta allt saman, hvort sem það eru föt, bækur, dót, dvd-myndir eða annað...
Í gær komu síðan gestir í kotið - Tinna og Stefán ætla að vera hjá okkur í viku og það verður sko fjör ;) Eva tók þeim að sjálfsögðu opnum örmum frá fyrstu mínútu en Ari þóttist vera eitthvað feiminn, entist reyndar bara nokkrar mínútur í því og fór svo að leika og spjalla.
Annars er rigning á Kanarí í dag... við vonum bara að það verði þurrt á morgun því að pabbinn ætlar að kaupa einhver ósköp af flugeldum til að kveðja gamla árið með ;)
Og já, ekki má gleyma að tilkynna að það eru komin tvö ný albúm :)
30. desember 2008 14:14
Engin athugasemd
Miðvikudagurinn 10. desember 2008

Ritarinn klikkaði nú aldeilis í síðustu færslu, því það gleymdist að segja frá því að hann Ari er barasta hættur með bleyju, takk fyrir! Hún Ana, leikskólakennarinn hans, stakk upp á því fyrir tveimur vikum síðan hvort við ættum ekki að taka bara af honum bleyjuna, svona af því að hann er orðinn tveggja ára. Svo var það bara gert – hann mætti bleyjulaus daginn eftir og var bara vanin af þessum ósið einn, tveir og tíu ásamt Victoriu vinkonu sinni sem er líka nýorðin tveggja ára :) Mamman þorir þó ekki enn að hafa hann bleyjulausan á nóttunni en hún er nú samt yfirleitt þurr á morgnanna.
Á föstudaginn var frí í skólanum hjá Evu og mæðgurnar notuðu tækifærið og skreyttu hátt og lágt. Á laugardaginn var jólatréð síðan skreytt við mikinn fögnuð. Eva var nefnilega svolítið svekkt að vera sú eina í bekknum sem ekki var komin með jólatré. Hér er það yfirleitt sett upp í byrjun desember og okkur fannst þetta nú bara fínn siður til að taka upp í útlandinu ;)
Í dag náði jólastemmningin svo hámarki þegar Eva og mamma skelltu sér í aðventumessu til Jónu Lísu og sungu nokkur jólalög, voða huggulegt...
10. desember 2008 23:08
Engin athugasemd
Fimmtudagurinn 4. desember 2008

Það er helst í fréttum héðan að hann Ari er orðinn tveggja ára!! Alltaf jafn ótrúlegt að halda upp á afmæli barnanna sinna... tíminn líður svo alltof hratt. Það var haldið smá kaffiboð í tilefni dagsins og vinir og ættingjar (já, ættingjar því að Birgitta og Brynjar voru hjá okkur :)) kíktu á snáðann. Hann fékk fullt af góðum gjöfum og allir voru hressir og kátir.
Birgitta frænka og Brynjar litli frændi voru hjá okkur í tvær vikur. Því miður þurfti mamman að eyða hluta tímans í lærdóm (helv*%#”* skóli!) og svo fór restin í veikindi... nei, svona næstum því. Þetta var eiginlega alveg ótrúlegt og læknaheimsóknir með tvo yngstu stubbana heldur margar. Sem betur fer var þetta nú ekkert mjög alvarlegt, en þó mikill hósti, hor og undarleg útbrot! Brynjar þurfti að fá súrefnisgrímu af því að hann var fullur af slími og Ari var greindur með skarlatsótt... sem mamman treysti ekki alveg og fékk annað álit hjá barnaleikni og reyndist þetta þá vera vírus sem olli m.a. roða í andlitinu. Annars náðum við að njóta tímans með gestunum þrátt fyrir veikindi og fórum m.a. í Palmitos Park (dýragarður sem brann í skógareldunum sumarið 2007), að skoða hella, í hjólatúr, til Las Palmas og vorum líka bara í rólegheitum saman heima.
Eva er búin að fá nýjan kennara sem hún er ofsalega ánægð með. Hin fór í eitthvað kennaraskiptidæmi, en þessi nýja er víst voða góð og öskrar ekki neitt eins og hin gerði! Foreldrarnir eru líka ánægðir með breytinguna því að það minnkaði ansi mikið heimalærdómurinn. Skvísan er orðin ofsalega dugleg að lesa og skrifar svakalega vel, svona alvöru skrifstafi sem "leiðast". Svo er hún auðvitað ennþá sami listamaðurinn og teiknar þvílíku listaverkin á færibandi ;)
Og viti menn.... það eru komnar nokkrar "nýjar" myndir ;)
4. desember 2008 13:49
Einn hefur sett athugasemd
Föstudagurinn 7. nóvember 2008

Eins og fram kom í síðustu færslu er Eva byrjuð í 1. bekk, og hún er auðvitað svakalega dugleg þar. Foreldrunum finnst nú samt oft nóg um heimalærdóminn því að á hverjum degi þarf hún bæði að skrifa og lesa heima, stundum mjög mikið. Í september þurfti að kaupa alveg ótal bækur, alveg ótrúlegt ef þau eiga eftir að komast í gegnum þetta allt saman... hún er í ensku, tónlist, stærðfræði, spænsku, kristinfræði og íþróttum (og örugglega einhverju öðru...foreldrarnir hafa ekki séð neina stundaskrá - svolítið öðruvísi en á íslandi).
Fyrir viku síðan var Hrekkjavökupartý í skólanum frá 8 – 10 um kvöldið. Mamman fór þangað með tvær litlar nornir, Evu og Yaizu og svo fékk vinkonan að gista hjá Evu um nóttina. Það var ofsalega mikið fjör. Um daginn fékk Eva líka að gista hjá Yaizu, og það á örugglega eftir að endurtaka þetta einhvern tímann.
Ari byrjaði í leikskólanum sínum í september og það gekk svolítið brösulega fyrst, eins og það gerir líklega hjá öllum. Hann grét svolítið mikið til að byrja með en nú er þetta ekkert mál, hann er bara mjög kátur og glaður þar, enda er hann bara fjóra tíma - frá hálfníu til hálfeitt. Ana, leikskólakennarinn hans segir að hann sé mjög duglegur að syngja með og herma eftir og sé farinn að tala smá spænsku. Það eru líka alltaf að bætast við ný íslensk orð, misskiljanleg, og Eva er eiginlega besti túlkurinn ;)
Annars er búið að vera leiðinlegt ástand á heimilinu undanfarna daga. Seinnipartinn á þriðjudaginn ældi Ari, ekki bara einu sinni, heldur ældi hann á svona 20 mínútna fresti fram yfir miðnætti. Þetta kostaði a.m.k. þrjár sturtuferðir og mikinn fata-, sófa-, púða-, sængur- og koddaþvott. Hann fór svo bara eldsprækur í leikskólann daginn eftir og hefur ekki kvartað síðan. Í gær ældi svo mamman þegar hún var að fara að skutla börnunum í skólann, og var svo slöpp með hita það sem eftir var dags. Þegar Eva kom heim úr skólanum ældi hún siðan líka og var heima í dag sökum slappleika. Þetta er þó allt á réttri leið núna... enda líka eins gott að öllum verði batnað á mánudaginn því að þá koma Birgitta og Brynjar :)
Æi já, svo eru það myndirnar - þær hljóta að fara að skila sér...
7. nóvember 2008 17:15
Alls eru 2 athugasemdir

Miðvikudagurinn 1. október 2008

 

Jæja, er ekki kominn tími til að endurlífga þessa síðu...?

Smá upprifjun fyrst (kannski aðallega fyrir mömmuna að eiga á prenti!)

Annars eru allir bara voða glaðir að vera komnir heim aftur og rútínan komin í gang. Ari er byrjaður í leikskóla, Eva í 1. bekk og mamman í Háskólanum á Akureyri. Pabbinn vinnur og vinnur að venju og heldur uppi námsmönnunum ;)

 

Nú þarf heldur betur að uppfæra albúmin, verður vonandi gert á næstu dögum...

1. október 2008 10:05
Engin athugasemd

Fimmtudagurinn 14. febrúar 2008

Gleðilegt ár!!

Það er ansi langt síðan ritað var í þessa blessuðu dagbók og auðvitað hefur margt og mikið gerst... Það hefur t.d. verið töluverður gestagangur á heimilinu. Adda og Tinna komu í lok desember og voru yfir áramótin og síðan komu amma Sólveg og afi Árni í byrjun árs og voru tæpar þrjár vikur. Að sjálfsögðu var Eva í skýjunum yfir þessum heimsóknum og að venju voru gestir notaðir í sögulestur fyrir háttinn og fleira... Ari var hins vegar hinn versti, allavega til að byrja með, og hékk utan í mömmu sinni sem aldrei fyrr. Það lagaðist þó smám saman og var orðið í góðu lagi þegar gestirnir fóru... nei, nei, kannski aðeins fyrr. Núna er snáðinn allavega orðinn mun skárri í feimninni og spjallar við gesti og gangandi, veifar öllum og gefur fingurkossa hingað og þangað!

Eva er alltaf jafn dugleg, en foreldrunum finnst hún stundum vera heldur mikið að flýta sér að fullorðnast, farin að tala um að missa tennur, klippa hárið stutt, mála sig og eiga kærasta...hmm... Annars er búið að vera mikið fjör hjá henni undanfarið í karnivalundirbúningi í skólanum. Á þriðjudaginn var svo var hátíð og eftir það þrír frídagar. Nú eru líka vinir frá Íslandi á svæðinu og Áróra (að verða 7) og Eva ná alveg ótrúlega vel saman. Þær eru búnar að fara í bæjarferðir og út að borða saman, leika sér í sundlaugagarðinum og svo fékk Áróra líka að gista í Evuherbergi.

Það er alltaf mikill kraftur í Ara og hann er duglegur að príla og vill helst alltaf ganga um allt sjálfur, en hann getur alveg dundað sér heilmikið líka, þá helst við eldhúsverkin og önnur heimilisstörf s.s. að sópa og taka úr og setja í þvottavél. Hann er samt ekki að flýta sér að tala, mamma er mest notað og babba af og til en annað er frekar óskiljanlegt! Tennurnar hrúgast í hann þessa dagana og eru nú orðnar 12.

Pabbinn er staddur á Íslandi þessa stundina og kemur aftur eftir tvo daga, alltaf eitthvað að flækjast... Annars langar mömmuna mikið í ferðalag núna – til Köben af því að Birgitta og Davíð voru að eignast æðislegan lítinn snúð ;) Hún ætlar að skella sér fljótlega til að kíkja á hann...

Svo kemur restin af janúarmyndunum fljótlega.

14. febrúar 2008 23:16
Engin athugasemd

Sunnudagurinn 23. desember 2007

Já, fimmti afmælisdagur Evu er liðinn... Um síðustu helgi var haldin heljarmikil veisla, hún bauð fjórum bekkjarsystkinum og fleiri vinum og foreldrum, hátt í þrjátíu manns – og þvílíkt fjör! Hún fékk margar góðar gjafir og var hæstánægð með daginn. Á afmælisdaginn sjálfan var hún svo heppin að það var frí í skólanum vegna veðurs (rigning..!) þannig að hún hafði nægan tíma til að opna gjafirnar sem komu í pósti og skoða þær. Jebbs.. skvísan bara orðin fimm ára! Síðasti skóladagurinn fyrir jól var á föstudaginn og þá var skemmtun og stofujól, smákökur og gaman. Kennarinn er voða ánægð með Evu og hún fékk mjög góðar "einkunnir" (það eru ekki beint einkunnir, heldur frekar upptalning á því sem hún er búin að læra).

Annars hefur ýmislegt gerst síðan síðast, t.d. afmælisveislan hans Ara og Danmerkurferð. Veislan hans var aðeins fámennari og rólegri en Evu og hann fékk margar góðar gjafir, aðallega bíla ;) Svo hefur hann verið að taka upp pakka af og til sem berast með póstinum og finnst það agalegt sport. Ari er bara sprækur, mjög mikill grallari og vottar líka fyrir smá frekju stundum ;)

Köbenferðin var ofsa skemmtileg. Það voru farnar nokkrar ferðir upp og niður Strikið með Birgittu og Davíð, kíkt í aðventukaffi til þeirra, heimsóttur nýfæddur strákur Hörpu og Guðjóns og farið í jólatívolí. Eva kom á óvart og var alveg óhrædd í tækjunum, hún dró Davíð með sér í allt sem hún mátti prófa og meira til, henni fannst þetta ótrúlegt stuð! Mamman hætti sér svo í rússíbanann og pabbinn fór í eitt himinhátt tæki líka.

En nú eru bara jólin að koma og allir spenntir, ekkert stress á þessum bæ... Gleðileg jól!

Nokkrar myndir komnar í desemberalbúm, en fullt væntanlegt!

23. desember 2007 21:49
Engin athugasemd

Fimmtudagurinn 15. nóvember 2007 – Ari 1 árs!!

 

Vá hvað tíminn flýgur áfram... litli stubburinn okkar orðinn eins árs strax! Annars finnst Evu nú ekkert stutt síðan hann fæddist, finnst bara eins og hann hafi alltaf verið hjá okkur. Þar sem pabbinn þurfti að fljúga af stað í vinnuferð í dag, var afmælisveisluhaldi frestað þar til á sunnudaginn. Hann kemur nefnilega heim aftur á laugardagskvöld og fer svo aftur á sunnudagskvöld þannig að það verða nokkrir klukkutímar á sunnudaginn fyrir kaffiboð ;)

Allir annars eldsprækir og kátir, og afmælisstrákurinn slakar sjaldan á - labbar út um allt, klifrar upp á allt og fiktar í öllu...

Myndir koma innan skamms!

15. nóvember 2007 22:53
Engin athugasemd

Miðvikudagurinn 31. október 2007

Um daginn fór mamman í viðtal til kennarans hennar Evu og fékk að sjá hvað skvísan er búin að vera að gera. Eva er alveg ofsalega dugleg stelpa og kennarinn sagði að hún ætti sko ekki eftir að eiga í neinum vandræðum með námsefni vetrarins. Hún sagði að hún væri svo skýr og flink stelpa, og ótrúlega dugleg að teikna og lita og skrifa, svo svakalega vandvirk. Það eina neikvæða var að hún er svolítið lengi að vinna (af því að hún vandar sig svo mikið) og gleymir sér stundum við að spjalla við vinkonurnar... en það er allavega gott að hún á góðar vinkonur ;)

Annars er bara allt fínt að frétta af Evu, hún byrjar í dansi í næstu viku og kannski fær hún að prófa fimleika bráðum líka. Svo er frí hjá henni í skólanum á morgun og föstudaginn þannig að helgin verður löng...

Ari er farinn að labba. Það eru reyndar gamlar fréttir, um tvær vikur síðan! Hann var sko farinn að ganga svona 10 skref í einu, en um leið og hann datt fannst honum miklu betra að skríða. Þegar hann uppgötvaði svo hvernig á að standa upp úti á miðju gólfi, þá fór hann bara að ganga um allt. Svo nálgast fyrsti afmælisdagurinn hans óðfluga, ótrúlegt en satt, en hann er nú ekkert að flýta sér að byrja að tala... hann bablar auðvitað svolítið, segir stundum "mamamama" og "va" þýðir Eva. Uppáhaldshljóðið er hins vegar "ba". Stundum koma mörg í röð og þá hljómar það eins og pabbi, en annars þýðir það bara allt milli himins og jarðar. "Ba" getur t.d. þýtt bolti og bað og svo segir hann þetta alltaf ef hann vill borða eða drekka. Svo eru ýmis konar hljóð sem hann gefur frá sér, t.d. blæs hann alltaf ef hann sér pott á hellu, frussar ef hann sér bíl og svo segir hann "mu" eins og kusa (það hljómar samt meira "bvvuu"), einhvers konar "mjá" og svo frussar hann þegar hann er spurður hvað hesturinn segir. Hann er líka mikill dansari og byrjar alltaf að dilla sér þegar hann heyrir skemmtileg lög, það er samt ekki sama hver er- Mika og Rihanna eru í uppáhaldi! Eva hefur líka mikinn áhuga á tónlist og er farin að þekkja helstu poppstjörnurnar með nafni, bæði spænskar og alþjóðlegar, og jafnvel lögin líka þegar hún heyrir þau í útvarpinu...
31. október 2007 22:35
Alls eru 3 athugasemdir

Laugardagurinn 22. september 2007

Ein færsla, svona í tilefni dagsins ;)

Nú hefur daglega rútínan tekið við hjá fjölskyldunni eftir langt langt sumarfrí. Mamman og krakkarnir voru á Íslandi tæpar átta vikur og pabbinn fékk líka óvenjulangt frí þetta árið. Það var bara frábært að geta verið svona lengi hjá ættingjum og vinum og æðislegt að vera í litlu íbúðinni í kjallaranum sínum. Auðvitað voru samt einhverjir sem ekki var hægt að hitta nógu oft og aðrir sem maður missti alveg af... en það er því miður alltaf svoleiðis. Það var nóg að gera í garðframkvæmdum og var þetta fína gras sett kringum húsið, fullt af trjám, hellulagt, og útbúinn stígur og bílastæði. Evu fannst auðvitað svaka gaman að hitta alla og ofsa sport að mega bara labba sjálf á milli húsa, alein. Ara fór mikið fram og stórafrekin hittu oft á 13. dag mánaða. Hann byrjaði nefnilega að skríða þann 13. júní, svo 13. júlí stóð hann sjálfur upp (við sófa og fór að labba meðfram stuttu síðar), og 13. ágúst fór hann sjálfur upp stigann hjá ömmu og afa, á milli hæða. Hann sýndi auk þess alls konar kúnstir s.s. hvað hann er stór, að vinka, klappa og svo fann hann upp fína grettu sem sló í gegn hjá nærstöddum. Auðvitað fjölgaði líka tönnunum, og þær eru orðnar 5 núna – en sú fimmta fannst í morgun ;)

Fyrsti skóladagur Evu þetta haustið var 7. sept. og hún var bara spennt að byrja aftur. Foreldrarnir voru svolítið stressaðir af því að hún var svo náin kennaranum sínum í fyrra og ekki var á hreinu hvort hún yrði aftur núna. En þrátt fyrir nýjan kennara var hún bara svona hæstánægð með þetta allt saman, bara spennt að hitta alla vinina aftur og byrja í 5 ára bekk. Eva og Yaiza hafa líka verið límdar saman síðan Eva kom aftur, og mikið leikið eftir skóla.

Ari er sprækur sem lækur og skríður um allt, röltir áfram meðfram öllu og sleppir sér stundum. Hann er þó (sem betur fer) ekki farin að ganga ennþá, en það er ekki langt í það. Hann fór til læknis í vikunni og vóg þá 8.800 g og mældist 72 cm (10 mánaða). Svo eru þau mæðgin líka byrjuð aftur í sundi 3svar í viku, en miðað við það hvað hann er yfirleitt mikill glanni, þá er hann frekar mikill kjúklingur þar ennþá, orðinn svolítill mömmustrákur...

Núna er heimilið pabbalaust, en það er bara stutt í þetta skiptið. Hann skrapp til Marokkó í gær og kemur aftur í kvöld. Á morgun er ætlunin að fara í rennibrautagarð og fá svo gesti í grill.

Undanfarnar vikur hafa smám saman bæst myndir í albúmin, nokkrar aftast í júní, og svo sumarfrísalbúmið. Nokkrar sumarmyndir í viðbót eru væntanlegar og svo koma septembermyndir fljótlega...

22. september 2007 17:05
Engin athugasemd

Sunnudagurinn 1. júlí 2006

Nú styttist heldur betur í Íslandsfrí fjölskyldunnar. Lent verður í Keflavík aðfararnótt miðvikudags og stoppað fyrir sunnan þar til á föstudag, en þá verður stefnan tekin á Austurlandið þar sem dvalið verður það sem eftir er sumars!! (Þetta er reyndar bara planið fyrir börnin og mömmuna, en pabbi kíkir eitthvað líka!)

Annars er Eva búin að vera í fríi síðan 20. júní. Þá voru skólaslit og skemmtun á skólalóðinni. Þegar kom að því að kveðja kennarann varð Eva ofsa leið og fór að gráta, henni finnst Reyes svo frábær, og vonandi kennir hún Evu bara aftur næsta vetur.

Ritari klikkaði alveg á því að skrifa í júní (tölvan biluð...) en þessi mánuður var barasta mjög viðburðaríkur og of langt mál að telja allt upp núna... skoða bara albúmið;)

Það komu t.d. gestir, Ísabella, Díana og Atli skutust eina helgi frá Tenerife og það var voða gaman að fá þau. Því miður var pabbi bara ekki heima til að hitta þau. Það var m.a. farinn smá útsýnisrúntur með þau, í krókódílagarðinn, á markað, út að borða, í sund og tívolí. Á markaðnum fékk Ísabella fléttur í hárið og þá var Evu lofað að hún fengi svoleiðis áður en hún færi til Íslands. Í gær fóru mæðgurnar því á markaðinn aftur og nú er skvísan svona rosafín með flétturnar sínar, vonandi endast þær þangað til hún lendir á Íslandi...

Fyrir viku síðan skaust fjölskyldan svo til Tenerife og var þar tvær nætur á ofsa fínu hóteli. Þar voru líka Jenni, Thor, Hekla Björk og Elísabet og Evu fannst sko ekkert leiðinlegt að hitta þau. Hún var reyndar sjóveik í ferjunni yfir, en fékk meðal fyrir heimferðina og þá gekk allt ælulaust fyrir sig. Á föstudaginn var svo síðasta sundæfingin hennar. Hún var með öðru sniði, partý í San Fernando-sundlauginni. Þar fengu þau að busla og renna sér fyrst, og svo var matur handa öllum, hoppukastalar og andlitsmálun. Áður en heim var farið fengu krakkarnir svo viðurkenningarskjal.

Ari fór í 7 mánaða skoðun um daginn og vóg þá 7.850 g og mældist 69 cm. Pabbinn kom heim 12. júní eftir rúmlega 4 vikna fjarveru og Ari ákvað að bíða með að byrja að skríða, fór bara af stað daginn eftir að pabbi kom. Hann er orðinn ansi sprækur, skríður nú um allt, sest og leggst og veltir sér á alla kanta og stendur upp í rúminu sínu. Núna síðustu daga er hann búinn að vera lasinn, með háan, hita, hor og með í maganum, og í gær kom svo fyrsta tönnin, þannig að einhvern hluta af veikindum og pirringi má líklega rekja til hennar.

Sjáumst ;)

1. júlí 2007 21:02
Engin athugasemd

Fimmtudagurinn 31. maí 2006

Hæ hó...

Allt ágætt að frétta héðan... pabbinn reyndar ekki á svæðinu, búinn að vera í burtu alltof lengi – næstum 3 vikur og óvitað hvenær hann kemur aftur, vonandi í næstu viku.

Eva er búin að vera ofsa stillt og dugleg að hjálpa mömmu sinni í pabbaleysinu og hún er alltaf jafn kát og hress í skólanum sínum. Næsta mánudag styttist skóladagurinn um klukkutíma (búin 13:15) og verður svoleiðis til 20. júní, en það er síðasti skóladagurinn. Skvísan er líka byrjuð að æfa sund tvisvar í viku og finnst það svaka gaman. Hún er svo dugleg, stekkur óhrædd útí og syndir margar ferðir í 25 metra laug – með kút og kork. Yaiza vinkona er líka í sundi og Daniel vinur Evu sem býr hérna á móti. 

Ari er alveg rosalega hrifinn af systur sinni og það lifnar yfir honum um leið og hann sér hana. Það er meira að segja nóg að heyra bara í henni hlæja, þá verður hann líka rosakátur. Hann fór í 6 mánaða skoðun um daginn, fékk sprautu eins og venjulega, kokteil með sex mismunandi bóluefnum - úff. Hann var alveg ótrúlega duglegur og grét bara pínu. Hann var orðinn 7.450 g og 66 cm. Nú er hann líka farinn að fá að borða þrisvar á dag, fær stundum graut og ávaxtamauk en best finnst honum samt heimatilbúna grænmetismaukið og hann er líka farinn að fá kjöt útí það. Hann er nú reyndar ekki mjög duglegur að borða, fær sér bara nokkrar skeiðar og vill svo bara brjóstið sitt. Til að hann fari að borða meira þarf hann að fara í straff á daginn, og bara fá að súpa á kvöldin og morgnanna. Sjáum til hvernig það gengur... Já og ekki má gleyma... Eva er ekki sú eina sem er að æfa sund! Ari og mamman fara þrisvar í viku til Arguineguin og busla þar, og líka Soraya og Bára mamma hennar. Hann er langyngstur en er algjör hetja og búinn að kafa alveg fullt ;) Og svo er örugglega bara dagaspursmál hvenær hann byrjar að skríða, svo sterkur strákur...

Annars er búið að panta flug til Íslands, múttan og börnin mæta á klakann 4. júlí en pabbinn veit enn ekki hvenær hann kemst...

31. maí 2007 21:58
Einn hefur sett athugasemd

Mánudagurinn  23. apríl 2006

Þá er það mánaðarlega færslan...

Fjölskyldan fór til Íslands um páskana, mamman var með börnin í fríi en mjög mikið var að gera hjá pabbanum og lítið slakað á... Flugið gekk alveg ótrúlega vel þrátt fyrir pabbaleysi báðar leiðir því að gott fólk var samferða. Og auðvitað svo stillt börn ;) Á Íslandi var ofsa gaman eins og alltaf, vinir og vandamenn heimsóttir, fermingarveislur, afmæli, heitapottsferðir, snjókarlagerð og fjör. Eva og Bríet voru eins og samlokur, mjög duglegar að leika og síðan Eva kom heim aftur hefur “Þykjustu-Bríet” verið mikið inni á heimilinu... Annars var skvísan alsæl að komast aftur í skólann og hitta vini sína á Kanarí. Hún er líka búin að fara nokkrum sinnum í sund og finnst það æði, nú er farið að hlýna og sumarið fer að koma og þá verða sundlaugarnar passlegar aftur – eru flestar svo kaldar á veturna.

Ari fór í fimm mánaða skoðun og sprautu fyrir viku síðan, er kominn yfir sjö kíló - stór strákur. Nú er hann líka orðinn svo duglegur að velta sér, ef hann er lagður á gólfið þá tollir hann svona eina mínútu á bakinu og er svo kominn á magann. Hingað til hefur hann bara orðið mjög pirraður, en í gær tókst honum að velta sér aftur yfir á bakið í fyrsta skipti.

Á laugardaginn hittust svo fimm íslenskar grasekkjur ásamt börnum sínum og það var grillað og spjallað, mjög fínt og Eva kynntist íslenskri stelpu sem er nýflutt hingað með fjölskyldunni. Hún heitir Elma Lilja og er sjö mánuðum yngri en Eva, og þær eiga sko örugglega eftir að leika saman mjög fljótlega aftur... Pabbi er sem sagt ekki heima, búinn að vera í burtu í viku og ekki alveg vitað hvenær hann kemur aftur heim, vonandi bara sem fyrst...

Nýjar myndir komnar...;)

23. apríl 2007 11:28
Engin athugasemd

Fimmtudagurinn  22. mars 2006

Ari vann sér það til frægðar þriðjudaginn í síðustu viku að velta sér yfir á magann alveg sjálfur – ofsa duglegur. Tveimur dögum síðar var svo læknisskoðun hjá honum og sprauta í tilefni fjögurra mánaða afmælis... þar mældist hann 62 cm á lengd og 6.600 g á þyngd, og það er bara alveg á meðalkúrfu samkvæmt íslenskum stöðlum :) Hann er alltaf samur við sig, sefur mjög lítið á daginn – kannski svona þrjá hálftíma lúra, en sem betur fer sefur hann vel á nóttunni. Yfirleitt er hann sofnaður um níu og vaknar svo svona sjö-hálfátta (reyndar með heldur mörgum drekkupásum...) Hann er mikil félagsvera, og þegar fleiri en tveir eru saman komnir þá neitar hann bara að sofa, gæti misst af einhverju fjöri ;)

Eva er ofsalega ánægð með litla brósa sinn og er yfirleitt mjög blíð og góð við hann. Stundum gleymir hún sér og knúsar hann heldur fast. Hún er líka mjög dugleg í skólanum, og á morgun verður sko spennandi dagur því þá verður farið í sveitaferð.

Annars bara ekkert sérstakt að frétta, jú nýbúið stórafmæli hjá pabbanum og bara allt í góðum gír, nema hvað Eva og pabbi eru kvefuð með hor og hósta!

Nýbúið að bæta í marsalbúmið :)

22. mars 2007 15:42
Engin athugasemd



febrúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | október '08 | febrúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | júlí '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | febrúar '07 | janúar '07 | desember '06 | nóvember '06 | október '06 | september '06 | júlí '06 | júní '06 | maí '06 | mars '06 | febrúar '06 | janúar '06 | desember '05 | nóvember '05 | október '05 | september '05 | ágúst '05 | júní '05 | maí '05 | apríl '05 | mars '05 | febrúar '05 | janúar '05 | desember '04 | nóvember '04 | október '04 | september '04 | ágúst '04 | júlí '04 | júní '04 | apríl '04 | mars '04 | febrúar '04 | desember '03 | nóvember '03 | október '03 | september '03