Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Hafliði Ottó
Hafliði Ottó

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag..  veii

Innilega til hamingju með 6 ára afmælið elsku Hafliði okkar:)

Kveðja, Mamma, pabbi, Kristín, Íris og Hildur.

0 | 15.1.2009 16:43:21 #

bleia
hei þú notarðu ekki bleiu
0
2.6.2010 20:59:35

Verlunarmannahelgin '08

0 | 0 | 20.8.2008 00:01:03 #

Halló!

Jæja það er svolítið langt síðan seinast. Og síðan þá er ég búinn að vera í góðu og löngu sumarfríi frá leikskólanum, í útilegum og að æfa fótbolta. Mér finnst alveg æðislegt að vera í fótbolta, búinn að fá helling af dóti fyrir það sport, föt, skó, legghlífar, markmannshanska, brúsa og svona dót.

Vorum mikið í útilegu í júlí og ég ætla að segja frá einhverjum af þeim útilegum sem við fórum í. Í júní fórum við í sveitina Hólmakot þar sem Inga frænka býr, þar fórum við í 60 afmæli hjá þeim hjónum og gistum svo bara í fellihýsinu úti á túni. Í júlí var svo ættarmót hjá pabba fjöldkyldu, við hittumst öll á Dæli og vorum þar yfir helgi og þar voru systkini pabba og fjölskyldur þeirra. Um verslunarmannahelgina vorum við á Apavatni, fórum á þriðjudegi og komum heim á sunnudeginum. Þar var rosalega gaman að vera og algjör steik þar á miðvikudeginum, um það bil 29°C. Mamma og Kristín reyndar skutust í bæinn með pabba á fimmtudeginum til þess að skutla honum á flugvöllinn því hann var að fara á sjó og á meðan vorum við Hildur Ýr hjá Rakel frænku og co og fórum með þeim í sund. Við fórum svo aftur í útilegu helgina eftir versló í berjatínslu, en núna held ég að við förum ekkert fyrr en á næsta ári.

Núna er svo sumarfríið á enda og ég að fara að byrja á leikskólanum aftur, fer líklegast bara á morgun. Svo byrja ég í skólahóp á þessu ári því að eftir 1 ár fer ég í skóla!:) Og á ég bara að segja ykkur, ég er með lausar tennur:D Jebb, ekki bara eina heldur tvær. Þetta eru frammtennurnar niðri, ég er ekki lítið ánægður með þetta allt saman.

Og svona í lokin þá má ég til með að henda inn einni mynd hérna af mér og nafna mínum Hafliða Brian. Við nefnilega fengum Hafliða nafnið frá sama Hafliða:)

Hafliði Ottó og Hafliði Brian um verlsunarmannahelgina 2008.

  Kveðja Hafliði Ottó Róbertsson

0 | 19.8.2008 23:49:18 #

Júlí 2008

0 | 0 | 19.8.2008 23:22:26 #

Maí 2008

0 | 0 | 19.8.2008 23:15:53 #
Lang-sætasti strákurinn! Flott síða
Abba | 0 | 3.6.2008 00:43:25 #

Hæhæ..

Það er nú kominn tími á update á þessum blessuðu síðum okkar:) Settum inn alveg helling af myndum, 4 albúm, okt-des '07, Áramótin '07-'08, jan-mars '08 og Apríl 2008. Alveg hellingur af myndum að skoða. Annars er allt gott að frétta af okkur krúttunum. Búið að vera mikið um veislur hjá okkur seinasta mánuðinn, Íris systir fermdist 30. mars og var veislan haldin hérna heima, við fórum svo í fermingaveislu hjá Ingibjörgu frænku okkar, Hildur átti svo líka 7 ára afmæli 14. apríl og var með bekkjarpartý og svo var fjölskylduafmæli, Andri Daði átti svo 3 ára afmæli og við fórum í veislu til hans og svo varð hún Júlía Rós 4 ára og við fórum væntanlega í afmæli til hennar! Þannig að það er búið að vera nóg að gera í kökuáti hjá okkur. Núna er komið alveg svakalegt sumar í okkur systkinin og erum við ekkert tilbúin að koma inn klukkan 20:00 á kvöldin til þess að fara að sofa, veðrið orðið svo gott og svona. En það fer að styttast í sumarfrí í skólanum hjá Hildi og ætli Hafliði fái ekki að fara í frekar gott sumarfríi líka:)

Skólinn hjá Hildi hefur gengið mjög vel, hún er búin að læra að lesa og læti:) Ekkert smá dugleg. Hafliði er alltaf sama sjarmatröllið og heillar alla uppúr skónum:) Elskar að knúsa mann, sérstaklega mömmu, pabba og Kristínu, hann segist elska þau mest:) haha..

En jæja þetta er komið nóg í bili.

Kveðja Hafliði Ottó og Hildur Ýr!:)

0 | 9.5.2008 17:00:19 #

Apríl

0 | 0 | 9.5.2008 14:48:19 #

Jan-Mars '08

0 | 0 | 9.5.2008 14:40:38 #

Áramótin '07-'08

0 | 0 | 9.5.2008 14:35:01 #

Okt-des '07

0 | 0 | 9.5.2008 14:19:12 #

Gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir það gamla.  Ætlum bara að koma með smá söng hérna fyrir mig:D  Ég er nefnilega orðinn 5 ára stór strákur:)  Svo var afmæli fyrir mig á leiksólanum í dag og líka fyrir Erling Snæ og Tinnu Hrönn.  Erling frændi átti afmæli í gær og Tinna í dag.  Þetta var rosalega gaman.  Í afmælisgjöf frá mömmu og pabba fékk ég LEGO lest á teinum sem ég fjarstýri, ekkert smá flott.

 

Hann á afmæli í dag

Hann á afmæli í dag

Hann á afmæli hann Hafliði Ottó

Hann á afmæli í dag.

 

Hann er 5 ára í dag

Hann er 5 ára í dag

Hann er 5 ára hann Hafliði Ottó

Hann er 5 ára í dag.

 

Veiiii ekkert smá stór:D

 

Kveðja Hafliði Ottó afmælisstrákur og fjölskylda 

0 | 15.1.2008 17:51:01 #

Til hamingju með 5 ára afmælið sætastur:* Kv.Kristín systir
Kristín Björg | 0 | 15.1.2008 00:29:59 #

Gleðileg Jól og Gott og farsælt komandi ár

Þakka liðnar stunir á árinu sem er að líða.

Jólakveðja Hafliði Ottó og Fjölskylda 

0 | 24.12.2007 17:37:11 #

Júní - Sept.

0 | 0 | 17.10.2007 20:50:17 #

HæHæ..

 

Það er svo sem ekkert mikið að frétta en allt gott bara:)..  Svolítið langt síðan það komu inn fréttir seinast..

Ég er bara á leikskólanum á morgnanna frá 9 til 14, svaka stuð..  EFtir leikskóla er ég svo stundum að leika við Erling Snæ eða Vigni Berg.. 

Núna eru mamma og pabbi á Ítalíu og Kristín systir er að passa okkur..  Mamma er með Kvennakór Suðurnesja í kórakeppni þarna úti..  Þau fóru á Laugardaginn og koma heim á Sunnudaginn, hlakka ekkert smá mikið til:)

Svo vorum við að kaupa bíl, Land Cruiser, mér finnst hann ekkert smááá flottur, ekta jeppi fyrir mig!:)

En jæja ég læt þetta duga í bili;)

 

-Hafliði Ottó 

0 | 15.10.2007 23:06:25 #

hafliði otto flot siða bæ bæ
hildur | 0 | 29.9.2007 13:12:23 #

Feb-Maí 07

0 | 0 | 10.6.2007 14:25:29 #

Hæhæ..

Ætlum bara að skrifa fyrir okkur Hildi saman í þetta skiptið.   Núna er sko kominn tími á smá fréttir af okkur.   Þó svo að það hafi svo sem ekkert mikið gerst, en samt eitthvað:)

Núna er Hildur útskrifuð af leikskólanum, hún hætti um mánaðarmótin á leikskólanum og er þá bara ein heima hjá mömmu og pabba á meðan Hafliði er á leikskólanum.

Núna erum við á Patró, Hafliði afi dó seinasta sunnudag og erum við að fara í jarðarför hjá honum:( Annars er voða gamanað hitta Ottó Ara og allt hitt fólkið á Patró.   Eða það sem við erum búin að hitta, erum bara nýkomin, 2 tímar síðan...

En jæja ætli þetta sé ekki komið gott í bili, við reynum svo að láta heyra í okkur oftar..

Kveðja Hildur Ýr og Hafliði Ottó.

0 | 9.6.2007 20:23:34 #

Hæ hæ krúsí krúsí strákurinn okkar:) Alltaf jafn sætur töffari;) Kv Andri Daði frændi og Jóna Rúna frænka
Jóna Rúna Erlingsdóttir | 0 | 6.5.2007 20:16:00 #