Við heitum Aron Örn og Valur Þór


Um okkur:


Lykilorðið er nafnið á bróður mömmu

Við fæddumst á sjúkrahúsi Keflavíkur þann 20 janúar 2004. Aron Örn var 10.5 merkur/2590 46 cm kl 10.11. Valur Þór 10.5/2620 46 cm kl 10.12. Við vorum búnir að vera í 38 vikur og 6 daga í mallakútnum á mömmu og vorum því alveg tilbúnir að koma í heiminn. Við erum rosalega góðir. Mamma og pabbi eru ótrúlega stolt og ánægð með okkur. Mamma okkar heitir Margrét Arnbjörg og er fædd og uppalin á Akranesi og Pabbi heitir Hákon Ólafur og er keflvíkingur í húð og hár. Við búum í Reykjanesbæ. Núna erum við orðnir 7 ára prinsar. Alveg ótrúlega duglegir og flottir strákar. Við erum í Heiðarskóla.









Emilía,Katrín og Gabríel
Hulda Björg
Hildur Björg
Litla Ljón
Rósant Freyr
María S. Ísabella
Árni Sævar
Helga Rún
Hannes Arnar
Bríet Björk
ófætt barn Auðar og Gulla




Annað:







Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.


Þú ert gestur nr. 62035