Velkomin á síðuna okkar !!!

Við heitum Katrín Anna og Lísbet Eva



Við fæddumst með keisara mánudaginn 31. mars 2003 á Landspítalanum í Reykjavík. Katrín Anna fæddist fyrst kl. 13:30 og mínútu síðar fæddist svo Lísbet Eva. Katrín Anna var 3040 gr og 47 cm en Lísbet Eva 2555gr og 45 cm. Fæðingin gekk mjög vel, við komum aðeins við á vökudeildinni og fórum í kassa í ca 2 klst. Við fengum að fara til mömmu eftir stoppið á vökudeildinni og líkaði okkur það mjög vel, við vorum allar þrjár í 7 nætur(mamma neitaði að fara fyrr heim!!) á Landspítlanum við frábæran aðbúnað. Við fórum beint heim í Egilsstaði þegar við útskrifuðumst :0) Áætlaður fæðingadagur var 24. apríl á afmælinu hennar Lísu frænku.
Þegar við vorum 8 mánaða greindumst við með mjólkurofnæmi og Katrín Anna með "vott" af eggjarofnæmi. Við fórum að fá soyamjólk með brjóstamjólkinni þegar við vorum 10 mánaða og líkar okkur hún bara vel. Við erum mjög duglegar stelpur og fórum snemma að hlaupa um, við erum góðar vinkonur þó svo að það slettist annað slagið upp á vinskapinn!!
Við eru loksins byrjaðar í skóla!! Við erum í 2.bekk í Egilsstaðaskóla ásamt 32 öðrum krökkum, einnig erum við í tónlistarskóla 1x í viku.
Við æfum fimleika og fótbolta með Hetti, við fáum aldrei nóg af hreyfingu :o)
Mamma okkar heitir Anna Dís ("75) og er frá Vopnafirði og pabbi okkar heitir (Halldór) Örvar ("73) og er frá Egilsstöðum. Við eigum líka einn stóran bróður sem heitir Antoníus Bjarki og er 14 ára, hann er alveg rosalega góður að passa okkur og leika við okkur.










Við vorum teknar með keisaraskurði sem var búið að ákveða því við vorum báðar sitjandi og vildum ekki snúa okkur. Mamma missti vatnið um kl 8:30, hringdi beint í pabba sem var heima á Egilsstöðum og hann náði fyrstu vél í bæinn. Mamma var send með sjúkrabíl til Reykjavíkur því við ætluðum að fá að fæðast á Akranesi en af því að við teljumst vera fyrirburar máttum við ekki fæðast þar. Fæðingin gekk mjög vel og við vorum í ca 2 tíma inni á vökudeild að jafna okkur og við vorum skoðaðar í bak og fyrir. Í sónar "sást" að eitthvað virtist vera að þörmunum í okkur, einhver stífla en sem betur fer var það ekki rétt.

Læknarnir segja okkur vera eineggja tvíbura en mamma og pabbu voru ekki alveg viss, svo þegar við vorum tæplega 2. ára fórum við í DNA próf til að athuga hvort læknarnir höfðu rétt fyrir sér. 23. febrúar 2005 kom í ljós að við erum eineggja tvíburara þó svo að við erum ekki nákvæmlega eins :)

Mamma og pabbi vissu ekki að við værum tvær fyrr en í 19 vikna sónarnur. Við komum þeim skemmtilega á óvart en Kristbjörgu ömmu var búið að dreyma tvær bleikar rósir sem táknuðu víst okkur : )






Antoníus Bjarki bróðir okkar

Antonía Líf og Ísak Emil frændsystkini okkar

Arnór Daði frændi okkar

Andrea frænka

Aþena Sól vinkona okkar

Sara Líf vinkona okkar

Lára Ösp og Anna Lilja vinkonur okkar

Helga Guðrún og Sigrún Björk vinkonur okkar

Benedikt frændi okkar


Kamilla Huld og Karólína Dröfn frænkur okkar

Kristján Jakob vinur okkar


Arna Karen,Ívar Aron og Róbert Þorri vinir okkar






Endilega Sendið okkur línu





Stjörnumerkið okkar

Hrúturinn er og nefndur ungbarnið í stjörnumerkja hringnum, því merkið er tákn fæðingar eða upphafs. Fólk í þessu merki er líka gjarnan afar upptekið af sjálfu sér, eins og eðlilegt verður að teljast með ungviði. Þarfir þeirra eru einfaldlega mikilvægastar!
En hver getur staðist bros ungbarnsins, eða sakað það um að vera sjálfselskt? Á sama hátt er þessu farið með Hrútinn. Hann er fullkomlega ómeðvitaður um að vera öðrum til ama. Þetta sakleysi er honum meðfætt og það mildar yfirgangssemi hans til muna. Undirferli og illgirni á Hrúturinn ekki til og hann á einnig bágt með að trúa því, að annað fólk hafi þessa eiginleika til að bera. Einstaklingar í Hrútsmerkinu eru þar að auki vonlausir lygarar. Reyni þeir eitthvað slíkt, kemst strax upp um þá.
Fólk í þessu stjörnumerki er yfirleitt auðþekkjanlegt í útliti. Það hefur ákveðna andlitsdrætti, venjulega mjög skarpa, og sjaldan mjúkar eða óreglulegar línur. Augabrúnir ná oft saman yfir nefinu og gjarnan má sjá fæðingabletti eða ör á höfði eða í andliti þessa fólks. Hreyfingarnar eru oftast hraðar og ákveðnar og heilinn fylgir þeim fullkomlega á eftir. Bæði konur og karlar í Hrútsmerkinu hafa breiðar axlir, ganga ef til vill örlítið bogin og eru næstum alltaf að flýta sér. Hrútarnir bera sjálfsöryggið oft utan á sér.
Það er best fyrir Hrútinn að fara reglulega til tannlæknis og láta einnig fylgjast með sjóninni. Hann ætti líka að láta áfengi eiga sig ? ekki eingöngu nýrnanna vegna, heldur ekki síður sökum þess að áhrifin fara illa saman við skapgerð fólks í þessu merki.



Þú ert gestur nr. 63946