| Velkominn í heimsókn á heimasíðuna mína |
| Ég heiti Hilmir Guðni og er kallaður GUÐNI |
|
|
Um mig:
Halló nú er ég orðinn 6 ára og kominn í skóla og á enþá í smá basli með lifrina mina,en nú erum við fjölskyldan á leið til Pittsburgh að láta laga það og þá hætta þessar endalausu blæðingar.
Halló ég heiti Hilmir Guðni Heimisson og fæddist á Landspítalanum 19. júní 2003. Mamma mín heitir Hrefna og pabbi minn heitir Heimir svo á ég tvo eldri bræður þá Ella og Trausta og tvær eldri systur Söndru og Heklu Gná. Þegar ég var 1 mánaða þá greindist ég með sjaldgjæfan lifrasjúkdóm sem heitir Biliary hypoplasia. Núna er ég á spítala í Bandaríkjunum nánar tiltekið í Pittsburg með mömmu og pabba. Það hefur ekki funndist nein nógu góð lifur í mig (enda er ég alveg einstakur) svo það var ákveðið að ég fengi bút af lifrinni hennar mömmu. Á meðan við erum hérna þá er Hekla systir mín í Reykjavík með ömmu. |
|
|
Annað:
Til allra mæðra:
Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér að Guði og segir: Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er ? Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig. En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur. Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðurðu hamingjusamur. En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala ? Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkur tíma heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala. En hvað geri ég ef ég vil tala við þig ? Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja. Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig ? Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið. En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar? Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér. Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði: Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn ? Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,Mömmu" |
| Þú ert gestur nr. 95376 |