Hæ hæ þá er stóri strákurinn minn

orðinn 7 ára og hefði einhver trúað

því fyrir 8 vikum að hann færi á skagamót

að keppa í fótbolta .Markið var alltaf

sett á að vera batnað 18 júni þegar

skagamótið væri og fara allavega og

horfa á strákana keppa en minn maður

var með allan timann og gaf hinum ekkert

eftir.Hann er stórt kraftaverk þessi elska.

það er ótrúlegt að vera á svona móti og hlusta á foreldrana, það er ju mjög misjafnt hverjar kröfurnar eru hjá foreldrum og ekki margir sem hafa verið í okkar sporum fyrir svona fáum vikum,okkur fannst allir leikirnir skemmtilegir hvort sem þeir töpuðu eða unnu þeir skemmtu ser mjög vel og það er fyrir mestu.bestu kveðjur 

23.6.2010 | 01:45

Hæhæ Héðan er allt gott að frétta og litli stóri strákurinn minn fór á fótboltamót á laugadaginn og gekk bara mjög vel.Það má segja að hann hafi hlaupið á viljanum frekar en getunni en allt fór þetta vel. Vonum að þið hafið það öll sem best í sumar  bestu kveðjur HG.

 

16.5.2010 | 22:53

GLEÐILEGT SUMAR. Héðan er allt gott að frétta.Guðni útskrifaðist á föstudag og er núna bara á göngudeild í blóðprufu 1 sinni í viku.Helgin hefur bara gengið vel og allt lofar góðu.bestu kveðjur

 

 

25.4.2010 | 23:34

Góðan daginn hér er allt að gerast Guðni var kominn með blóðsýkingu og er búinn að fá rosa pensilin skammta og það er búið að taka pikklínuna úr honum og setja upp venjulega nál svo nú verður hann að standa sig í að borða því hann fær enga næringu í æð bara vökva núna.Hann er orðinn hitalaus og hefur ekkert ælt í dag .það þora ekki margir að heimsækja hann svo dagarnir eru svolítið lengi að líða en kennarinn hans kíkti á hann í gær og hann er alltaf svo glaður þegar einhver kemur úr skólanum.

Takk fyrir stuðninginn og allir sem hafa komið TAKK

T

 

17.4.2010 | 14:43

Hæhæ hér er vonandi allt á réttri leið hann er ennþá að fá að borða en er búinn að vera svo slappur og móður og vildi bara sofa í dag og engin matarlist og 38.7 í hita svo það var kallaður til læknir og þá byrjaði prinsinn bara að æla og rett á eftir allt niður svo það var niðurstaðan að hann er kominn með pest ,og er bara lasinn en vonandi verður hann fljótur að jafna sig á þessu og heldur áfram að vinna á hinu vandamálinu sínu

15.4.2010 | 14:54

Hæ hæ hér er allt að gerast  Guðni er byrjaður að borða og allt gengur ágætlega en hann er mjög lár í hvitum blóðkornum og flögum  og hann fekk blóðnasir á sunnudaginn og  hrapaði niður í blóði(úr 86 í himógl í 71)svo hann fekk bæði blóð í dag og gær.En goðir hlutir gerast hægt.Hugurinn er svo miklu meyri en getan svo hann fer oft frammúr sér

 

13.4.2010 | 22:59

Hæ hæ heðan er allt betra að frétta .Það hefur ekki þurft að setja nítt dren i Guðna og hann fekk hafragraut í gærkvöldi og aftur í morgun og svo verður bara prufað hægt og rólega .Við bara biðjum til guðs að vökvinn sé hættur að koma.Hann er í skólanum nuna hér á spítalanum að undirbúa sig svo hann komist sem fyrst í rimaskola. bestu kveðjur

7.4.2010 | 11:02

það er ótrúlegt hvað er lagt á suma.Þetta er búið að vera mjög erfitt hjá Guðna ,hann hefur ekkert mátt borða nema 10 hlaupkalla á dag og drekka vatn en núna er búið að taka það af honum og hann má ekkert fá og það drenar ennþá fullt hjá honum en það á að taka drenið og sjá hvað gerist,hann er búinn að vera með sykingu í kviðvökvanum og skurðinum siðan í síðustu viku og hefur verið á mjög sterkum syklalyfjum siðan það fattaðist og þess vegna verður að taka drenið en trúlega verður sett nytt seinna ,hversu fljótt fer eftir hvenær vökvinn fer að valda óþægindum.þegar vökvinn er orðinn of mikill á hann erfitt með öndun,hann er orðinn leiður og finnst læknarnir ekki vera að lækna hann bara ger honum lifið erfitt.Guðni hresstist mikið í dag þegar Andri vinur hans kom í heimsókn.Guðni er svo lár í blóðflögum að það má enginn koma til hans með kvef eða sykingu. bestu kveðjur og takk fyrir kveðjurnar og stuðninginn

31.3.2010 | 22:48

Hæhæ héðan er allt eins að fretta.Guðni er bara svangur og langar í mat en hann er ennþá á tærfljótandi og það drenar ennþá jafn mikið frá honum svo við bara bíðum og vonum,Hann var rosa ánægður um helgina því á laugadaginn kom Sindri vinur hans og bekkjabróðir í heimsókn og það styttir daginn rosalega bara að hitta vinina og svo var minn lika mjög ánægður með sig þegar Sigurbjörg kennarinn hans kom og hann ætlar að lesa aðeins í dag og kannski kikja á skólastofuna her niðri á eftir ef vel liggur á honum.Guðni er með næringu í æð í 20 tima á sólahring og vonadi nær hann fljótt upp þreki hann var orðinn svo vannærður og buinn að lettast um 20 prósent af þyngd sinni á 4vikum og mátti ekki alveg við því.en við vonum bara það besta .bestu kveðjur

22.3.2010 | 08:30
Hæhæ héðan er allt fínt að frétta ,ferðin gekk vel og Guðni var rosalega duglegur á leiðinni og við vorum komin á barnaspítala hringsins klukkan 8.30 i morgunn .Hann fékk smá sjokk þegar hann fattaði að hann þurfti að vera í einangrun í nokkra daga af því hann er að koma af spítala í útlöndum.En verst þótti honum að fá ekki fara á leikstofuna en þetta kemur allt vonandi fljótt .Bestu kveðjur
17.3.2010 | 23:42
Hæ við leggjum í hann í dag kl 12 og það er buið að tala við flugfélagið fyrir okkur og það er allt fullt en það verður gert það sem hægt er fyrir okkur. takk fyrir hjálpin allir sem hafa verið að þvi og takk fyrir kveðjurnar það er voða gott að lesa þær
16.3.2010 | 13:07
þá er komið að því síðasta nóttin á cildrens og drengurinn kominn með svima og læti vegna þess að hann drekkur ekki nóg en hann hefur lofað að drekka betur á morgun.Hann var að fá blóðþinnigarsprautu sem hann á að fá á 12 tima fresti og við eigum að gefa honum um borð í flugvelinni í lærið.Mikið værum við til í að Ólöf væri með á leiðinni heim til öryggis en þeir segja að hann eigi að geta þetta drengurinn ef hann verður duglegur að drekka.Ég ætlaði að athuga hvort ég gæti fengið betri sæti í flugvélinni á morgun og borgað með puntum en ég gleymdi því ,það er margt að hugsa og margt að gerast hér .Akkurat núna þegar ég er að skrifa þetta var verið að ákveða að gefa honum vökva með næringunni því hann er of þurr.Bless í bili og við látum vita þegar við erum komin á barnaspítalann heima.Bestu kveðjur 4XHG
16.3.2010 | 02:59
Jæja þá styttist í heimferð og allir spenntir fyrir því ,Guðni varð mjög spældur hjarna áðan þegar hann fattaði að hann mætti ekki borða þegar hann kæmi heim því hann væri búinn að biðja Ella bróðir að baka súkkulaðibita kökur handa ser og svo væri ég búin að lofa að gefa honum kjúkling í rjómaostasósu .Hann heldur að hjúkkurnar sínar heima verði mikklu betri við hann heldur en þær amerisku,og gefi honum að borða:) En annars litur þetta ágætlega út ,skurðurinn er ekki alveg gróinn og það vessar svolitið úr honum og drenið fyllist ennþá en ekki eins fljótt. Hann las 4 lestrabækur í dag þvi þegar hann sá lestraspjaldið sitt fór hann alveg í minus og gret yfir þvi að hann hefði ekki lesið þennan og þennan dag svo við redduðum þvi og deildum þessum 4 á dagana:)maður bara reddar ser........ Her er spilað ólsen ólsen og veiðimaður og þjófur út í eitt og litaðar myndir á fullu. Hann var mikið að velta því fyrir ser áðn hvenær hann mætti fara á fótboltaæfingu??????? Það er margt í gangi hjá þessum litla dreng. Við erum ekki búin að fá svar hvort það kemur hjúkrunarkona á móti okkur til Boston eða ekki,eða hvort það er allt í lagi að vera vökvalaus svona lengi því hann er mjög óduglegur að drekka.Bestu kveðjur frá Pittsburgh
15.3.2010 | 05:15
Hæhæ nú er þetta allt að koma við erum farin að fá leifi af spítalanum milli 10 og 19 og við tæmum bara drenið þegar á að gera það og þá er betra að drepa timann á nyjum stöðumen það er alstaðar fólk að borða og hann finnur allstaðar matarlykt og talar mikið um allt sem hann ætlar að borða þegar hann má borða .Við skruppum á visindasafnið í dag og fórum svo í biltur að skoða Pittsburgh svo þetta var finn dagur.bestu kveðjur
13.3.2010 | 05:39
Hæ aftur ég get vist ekki stækkað letri í dag einhver bilun á siðunni en Guðni er kominn aftur í frí og við ættlum að kíkja út .hann á að vera mættur aftur á spítalann kl 8 bestu kveðjur frá Pittsburgh
12.3.2010 | 16:17



júní '10 | maí '10 | apríl '10 | mars '10 | febrúar '10 | desember '06 | október '06 | apríl '06 | janúar '06 | desember '05 | nóvember '05 | september '05 | ágúst '05 | júlí '05 | júní '05 | maí '05 | apríl '05 | febrúar '05 | desember '04 | nóvember '04 | október '04 | júní '04 | apríl '04 | mars '04 | febrúar '04 | janúar '04 | desember '03 | nóvember '03 | október '03 | september '03