Við heitum Hólmfríður, Björn Hermann og Friðgeir
VELKOMIN Á HEIMASÍÐUNA OKKAR!


Um mig:
Hólmfríður fæddist 21 júlí 2003 kl 15:34 og var 17 merkur (4280 gr) og 55cm og með mikið hár. Hólmfríður átti að koma í heiminn 7 júlí. Þegar meðgangan var orðin fullar 42 vikur var mamma gangsett, eftir að hafa verið sett af stað var hún 9 klst að koma Hólmfríði í heiminn og allt gekk vel. Hólmfríður var skírð á sjúkrahúsinu daginn eftir fæðingu af séra Braga Skúlasyni. Hólmfríður er skírð í höfuðið á langömmu sinni. Pabbi hélt á Hólmfríði undir skírn og ömmurnar héldu skírnaveislu þegar Hólmfríður var 6 daga gömul.

Björn Hermann fæddist 22 september 2004 kl 20:21 og var 13 merkur (3270g) og 52 cm og með mikið hár. Hann átti að koma í heiminn 18 sept, þannig að mamma og pabbi biðu bara í fjóra daga. Mamma var búin að vera með verki frá því um kl 4 um morguninn. kl 19.30 missti hún vatnið og þá var um að gera að drífa sig af stað. Við komum uppá fæðingardeild kl 19:50 og ég var kominn í heiminn 1/2 klst síðar. Allt gekk svakalega vel og við fórum heim af sjúkrahúsinu 4 klst síðar. Björn Hermann var skírður í Víðistaðakirkju 2 dögum eftir að hann fæddist af séra Braga Ingimarssyni. Björn Hermnn er alnafni afa síns. Pabbi hélt á Birni Hermanni undir skírn. Ömmurnar héldu skírnaveislu þegar Björn Hermann var 4 daga gamall.

Friðgeir fæddist 24 maí 2008 kl 16:54 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Friðgeir var 18 merkur (4560 gr) og 56 cm, hann átti að koma í heiminn 13 maí, þannig að meðgangan var 41 vika og 4 dagar. Vatnið fór klukkan 6:20 um morguninn, mamma og pabbi voru mætti uppá HSS klukkan 9. Mamma var með smá verki en ekki nægilega mikla svo klukkan 15 þurfti hún að fá oxýtósín dreypi í æð til að koma hríðunum almennilega í gang. Fæðingin var frekar erfið enda stór strákur á ferðinni og engin verkjalyf. Við fórum heim af fæðingardeildinni þegar Friðgeir var 6 klst gamall - heima er best! Friðgeir var skírður laugardaginn 7 júní af séra Báru Friðriksdóttir í Kálfatjarnarkirkju í Vogunum. Friðgeir er ekki skírður í höfuðið á neinum, mamma hélt á honum undir skírn. Skírnaveislan var haldin sunnudaginn 15 júní og þá var nafnið mitt gert opinbert.

Pabbi okkar heitir Hermann Sigurður Björnsson og er Ísfirðingur. Mamma okkar heitir Júlía Rós Atladóttir og er Eskfirðingur. Þau hittust á miðri leið og við búum saman í Vogunum. Við erum svo heppin að pabbi átti tvö börn áður en hann hitti mömmu okkar. Þannig að við eigum tvö eldri systkini. Alexander fæddur 14 desember 1992 og Irma Lind fædd 15 desember 1993. Því miður þá búa þau á Ísafirði, þannig að við sjáum þau alltof sjaldan :(




Hólmfríður - Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Barn í krabbamerkinu er feimið og viðkvæmt að eðlisfari og vill frekar leika inni í sínu herbergi heldur en að fara út og takast á við hina “ógnvænlegu” veröld. Þessi börn eru einnig tilfinninganæm og bresta auðveldlega í grát ef hlutirnir ganga ekki eins og þau vilja eða ef gengur á einhverju í fjölskyldunni. Þessi börn vilja ró og næði í kringum sig. Þar sem barn í krabbanum heldur sig nálægt heimili sínu má búast við að það hangi svolítið í pilsfaldinum hjá mömmu fram eftir aldri. Það getur þó verið kostur þar sem krabbinn elskar að hjálpa til. Móðureðli er ríkt í krabbabörnum og þau hugsa vel um yngri systkini sín ef þau eiga yngri systkini. Þetta barn er fædd barnapía og er vanalega með öll börnin í hverfinu í eftirdragi og hefur ofan fyrir þeim með allskyns leikjum. Þetta barn býr yfir frábæru minni og því er nám og próf leikur einn. Krabbinn getur stundum verið erfiður í skapinu og þá er best að leyfa honum að vera í friði. Stundum vorkennir barn í krabbanum sér rosalega og verður jafnvel svolítið latt en það varir yfirleitt stutt. Oftast er voðalega gaman í kringum krabbann. Barn í krabbamerkinu er yfirleitt heimakært og er mikið fyrir fjölskyldulífið og er sá einstaklingur í fjölskyldunni sem finnst skemmtilegast í fjölskylduboðum og á ættarmótum.

Björn Hermann - Meyjan
23. ágúst - 22. september

Barn í meyjarmerkinu er vinnusamt svo að þú getur bókað að það er nóg að gera í kringum það. Þetta barn getur látið leik líta út fyrir að vera vinna og öfugt, svo að þú veist oft ekki alveg hvað er í gangi. Ekki hafa áhyggjur samt, meyjan sér um að klára sín verkefni, hvort sem það er að laga til í herberginu eða spila skák. Barn í meyjunni er vísindalegt að eðlisfari og er líklegra til að takast á við verkefni um stjörnur og tungl heldur en að planta grænmeti í garðinn. Þessi verkefni meyjunnar munu ganga vel, því að meyjan er haldin fullkomnunaráráttu og veit ekki hvað það er að mistakast. Þessari leit að fullkomnun fylgir oft smámunasemi svo að oft má misskilja þegar að meyjunni gengur gott eitt til. Barnið í meyjarmerki vill borða baunir, en það þurfa að vera bestu fáanlegar baunir (þessu barni getur þóst vera illt í maganum). Meyjan er þrifaleg og vill hafa fínt í kringum sig og ekki bara sitt herbergi heldur allt húsið og öllu raðað í röð og reglu. Ekki slæmt að hafa eina meyju á heimilinu? En þegar allt kemur til alls þá vill barn í meyjarmerkinu helst hafa hlutina einfalda ( ís í brauðformi án dýfu og alls), skipulag og fær ánægju út úr vel unnu verki.


Friðgeir - Tvíburi
21. Maí - 20. Júní
Barn í tvíburamerkinu er snöggt í hreyfingum eins og svipu sé veifað, þó svo að flestar hreyfingar séu uppávið. Þetta barn er alltaf á leiðinni upp á eitthvað. Talandi um orku og virkni! Þetta barn fer létt með að gera 3 hluti í einu og er líklegt til að gera þá alla vel. Hægt er að segja um barn í tvíburamerkinu að það sé mjög klókt og komi sífellt á óvart. Það er einnig ósvífið og gæti komið heim með kettling með slaufu um hálsinn (sem það fann) og fært mömmu sinni að “gjöf”. Sætt, ekki satt? Það sem þessu barni leiðist er að hafa ekkert að gera, svo vertu viss um að stundatafla þess sé alveg þétt skipuð (íþróttir, klúbbar, útivist o.s.frv.) Vegna þess hve barnið er upptekið og hefur margt fyrir stafni þá eignast það marga vini. Tvíburanum líkar að vera trúðurinn í bekknum og gerir í því að gretta sig og segja brandara. Tvíburinn er fyndinn og býr yfir góðum húmor. Hugur hans ferðast á ógnarhraða og auðvelt að örva. Vertu viss um að hann hafi alltaf nóg að lesa. Fyrir utan lestur þá hefur barn í tvíburamerkinu einnig mikla unun af því að tala, segja brandara og taka þátt í íþróttum, og það vill gera þetta allt núna strax. Þegar þú reynir að sjá fyrir þér barn í tvíburamerkinu þá skaltu hugsa um Línu Langsokk. Hallaðu þér aftur, dragðu andann djúpt og taktu þátt í fjörinu.

Ófædd - Ljón
23 júlí - 22 ágúst
Barn í ljónsmerkinu elskar að vera á sviði meira en nokkuð annað. Ef þú ert að leita að barni til að leika aðalhlutverkið í skólaleikriti þá skaltu ekki leita frekar því að ljónið er til! Barn í ljónsmerkinu er mjög skapandi og það er líklegt til að setja sjálft upp leikrit og þá sér það um allar hliðar sjálft, þ.e. leikmyndina, leikinn, tónlistina o.s.frv. Þar sem ljónið er ávallt í forystu, þá á barn í ljónsmerkinu marga vini, eða eru þetta fylgjendur? Allavega, þá fer það ekki fram hjá neinum hver ræður hér! Ljónið er gjafmilt og líkar vel að deila frægð sinni með félögum sínum. Þú getur bókað að þetta barn slær í gegn, hvernig á það annars að verða Lion King? Helstu kostir ljónsins eru bjartsýni og gott lundarfar. Þetta barn trúir því almennt að lífið sé yndislegt og að hlutirnir gangi upp fyrir það. Barn í ljónsmerkinu hefur andstyggð á gagnrýni og vill helst ekkert af henni vita. Ljónið er einnig mjög stolt og vill standa sig vel, svo að þegar það kemur fram fyrir áhorfendahóp þá leggur það sig 100% fram. Einnig þegar barn í ljónsmerkinu fer í skóla þá stendur það sig vel, því það vill alltaf vera best. Ljónið er vinsælt og sjarmerandi og þú getur treyst lífi og fjöri í kringum þessi börn.
Þú ert gestur nr. 96360