Þetta er heimasíða Gunnars Magnúsar og Emilíu Önnu



Um okkur:

Emilía Anna:


Mamma byrjaði að fá hríðir um kl. 19 á sunnudagskvöld. Kl 6.30 um morgunin eftir alveg svefnlausa nótt fóru hún og pabbi upp á spítala og þá var hún komin með 5 í útvíkkun og allt leit vel út. Við vorum sett beint inn á fæðingarstofu og kl. 13.48 kom ég í heiminn. Hraust, hress og kát. Ég var 3500 gr. eða 14 merkur og 51 cm að lengd. Við gistum svo á hreiðrinu og vorum komin heim morguninn eftir.


Gunnar Magnús:

Ég átti að koma í heiminn 9. október en þar sem mamma greindist með meðgöngueitrun var hún sett af stað og fæddist ég 7. október. Fæðingin fór hratt af stað og byrjuðu hríðarnar klukkan 7 og ég fæddist klukkan 20.05. Ég var 12 merkur og 49,3 cm. Ég þurfti að fara upp á vökudeild þar sem fæðingin gekk svolítið erfiðlega í lokin og var ég tekinn með töngum. En ég stoppaði bara stutt þar og var kominn til mömmu og pabba klukkan 23.00.







Annað:
Mamma mín heitir Anna María og er hjúkrunarfræðingur og pabbi heitir Gunnar Magnús og er viðskiptafræðingur.
Við búum ásamt Skottu og Nölu, hundunum okkar, í Reykjavík.














Vogin 23. september - 23. október



Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.









Tvíburar 22. mai - 21. júní




Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.





G. Gunnar frændi
Inga Bríet Björnsdóttir. Nýjasta frænkan okkar.
Heiðrún Sunna Snorradóttir
Iðunn Ragnarsdóttir
Vaka
Magnús Ari
Jökull Elí & Dagur Ari
Þorgerður Katla og Pétur Þór
Erika Líf Káradóttir
Magnús Þór

Þú ert gestur nr. 43336