Ég heiti Einar Már og er byrjaður í skóla


Um mig:

Ég er fæddur á Akranesi þann 4. september 2003 og er því 6 ára töffari.
Mamma mín heitir Steinunn og pabbi heitir Leifur. Við búum í Garðabæ. Ég er í 6 ára bekk í Hofstaðaskóla.
Ég á ömmu og afa í sveit, í Borgarfirðinum og vestur í Ögri, það er mjög gott að fara í sveitina til ömmu og afa.
Við höfum ákveðið að læsa síðunni, þeir sem vilja fá aðgang geta sent mömmu póst á steinunn1@visir.is.







Boðorðin 10- Fyrir foreldra

1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau.
2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem ?krakkann".
3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín.
4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það.
5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir.
6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota því að slíkt skaðar þau.
7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán.
8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki.
9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og þú hefur tilhneigingu til
10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði.













Barnið er ágæt afsökun fyrir ykkur til að gera það sem
beinlínis þykir ekki hæfa fullorðnu fólki.
Nú getið þið legið á bakinu og sparkað fótunum upp í loftið.
Nú getið þið bakað drullukökur. Nú getið þið grett ykkur og geiflað. Nú getið þið dansað, og sungið.
Getu ykkar er engin takmörk sett.
Og þið heimtið ekki önnur laun en dillandi hlátur, gleðióp
eða augu sem galopnast af undrun.









MEYJAN
23. ágúst - 22. september

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.


Þú ert gestur nr. 31943