Velkomin vinir og vandamenn.
Við erum systkinin Guðrún Helga og Þorkell Máni


Lykilorðið á síðuna er gælunafn pabbans.

Þorkell Máni fæddist á Landspítalanum 21. mars 2007. Hann fæddist á 29. viku og vó tæplega 7 merkur. Þorkell Máni er rauðhærðurog ofsalega fallegur Hann bjó á vökudeild Landsspítalans í 88 daga. HAnn er mjögvær strákur sefur vel og mikið og dundar sér. Brosið við minnsta áreiti og finnst gaman að spjalla. Hann er algjört krútt og hetja.



Guðrún Helga fæddist á Landspítalanum 20.ágúst 2002. Hún var 18 merkur og 53 sentimetrar. Fæðingin tók frekar langan tíma. Stúlkan var í andlitsstöðu, ég ætlaði sko ekkert að snúa mér þannig að hún kæmist í heiminn þessa venjulegu leið. Henni fannst svo gott að vera í bumbunni hjá mömmu þannig að sumar létu bara ná í mig. Hún var ótrúlega falleg þegar ég fæddist (er enn). Var með mikið svart hár og fallega brún. Nú er hún ljóshærð og jafnsæt :) Ljósmóðirin sagði við mömmu og pabba að hún væru mjög ákveðin stelpa, sem er líklega satt :) En ég er samt jafn yndisleg fyrir því.




Lilypie 6th to 18th Ticker

Hrúturinn (Þorkell Máni)

Hrúturinn er vormerki. Á vorin fer birta vaxandi og veður batnandi. Mesti athafnatími ársins er fyrir höndum. Eðli Hrútsins endurspeglar þetta og birtist meðal annars í þörf fyrir athafnasemi og innri vissu um að lífið bjóði uppá ótal tækifæri. Hrúturinn er fyrir vikið drífandi og fljótur að framkvæma ætlunarverk sín. Að sama skapi er honum illa við alla bið. Hann vill gera það strax sem hann fær áhuga á.
Hrúturinn þolir illa reglur, kerfi og vanabindingu, en hefur gaman af nýjum áskorunum. Það má líkja honum við landnema. Hann tendrast upp þegar ný mál eru á dagskrá hans, lifnar við og smitar út frá sér með ákafa sínum, en dofnar og verður leiður ef hann þarf að fást of lengi við það sama. Hann er góður í upphafi, sæmilegur þegar verk er hálfnað en verður oft að beita sig aga til að ljúka verkum. Hann er fæddur brautryðjandi og frumkvöðull, en er síðri í rekstri og vanaverkum.
Hrúturinn kappsfullur og baráttuglaður að upplagi. Hann er því uppá sitt besta þegar honum er stillt upp við vegg, eða þegar þarf að drífa af ákveðin verk fyrir tilsettan tíma. Þá magnast hann upp. Hann er eldsmerki og þarf því að hafa líf í kringum sig og líður best þegar hann er að keppa eða fást við nýja áskorun. Hann þarf sömuleiðis á hreyfingu og líkamlegri útrás að halda, annað hvort með því að stunda líkamlega vinnu eða í íþróttum, líkamsrækt og útivist. Ef umhverfi hans er líflaust og kallar á vanabindingu og endurtekningar þá tapar hann orku.



Ljónið (Guðrún Helga)

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í öllum heiminum, en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjanleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og er því gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.


ELSKU BARN.

Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.

Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.

Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .

Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .

Ást mín verður með þér
í dag og alla daga

Þú ert gestur nr. 26286