Anna Lísa - er að verða stóra systir í janúar 2010 :)
Velkomin í heimsókn :) Endilega kvittið í gestabókina mína! Síðan mín er læst - ekki vera feimin að biðja um lykilorð!


Svona er nú ég:)
Ég fæddist á Landspítalanum þann 15.mars 2004 kl. 2:50.Ég lét hafa soldið fyrir mér þegar ég kom í heiminn en mamma og pabbi fengu svo rosa flott verðlaun - mig:)
Ég var 12,5 merkur og 50 cm - bara mjög passleg - en ég kom 13 dögum fyrir tímann í heiminn.
Ég var með svaka mikið dökkt hár þegar ég fæddist en í dag er ég orðin alveg ljóshærð, með hár niður á bak og komin með slöngulokka.
Ég er alveg svakalega dugleg að stækka og læra ný orð. mömma og pabba finnst ég yndislegust í heiminum og eru að springa úr stolti af mér:)




Litla systir mín að vinka okkur :)
Stjörnumerkið mitt

Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars

Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.
Þú ert gestur nr. 17823