Ég er sko hún Nanna Björk þessi eina sanna :o)


Ég fæddist á Landspítalanum 28 Maí 2003 kl: 10:54 og ég er keisarabarn. Ég var 4295 gr. og 53 cm.Og ég var með mikið dökkt hár og yndislega falleg blá augu. Ég er sko uppáhald allra :) ég er líka svakalega rík!! ég á 4 systkini þau eru Tinna Margrét "82" og Sandra vilborg "87" og svo koma tvíburarnir Eggert Davíð og Sunna Rós "94" og svo kom ég "03" ekkert smá heppin ÉG!! og þau nottla líka! og auðvitað líka mamma og pabbi :) Foreldrar mínir heita Anna og Jóhann.







Nanna Merkir: Nafn þetta er germanskt að uppruna og er merkingin þá dirfast, - þora.
Einnig er nafnið tengt sögninni "að nenna" sem merkir þá að hafa dug til.

Nanna merkir því hin hugrakka. og Björk Merkir: Nafn þetta er leitt af trjáheitinu björk











Dóttir mín

Elsku yndislega dóttir mín.
Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.
En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.
Mig langar til að segja þér hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.
Þú ert mér allt.
Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.
Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.



Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.
Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.
Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.
Ég reyni að meta þig að verðleikum.
Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.
Hvar væri ég án þín?
Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu



Til þín

Áður en þú varst til þráðum við þig.
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til elsku litla fallega Nanna Björk



Bara í dag....

-ætla ég að brosa til þín þegar augu okkar mætast og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...
-ætla ég að leyfa mér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina þína, og halda á þér í fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan dag...
-ætla ég að leyfa þér að velja hvaða föt þú ferð í,
brosa og hrósa þér fyrir "fullkomna" litasamsetningu...
-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með þér út á leikvöll...
-ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið þitt...
-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni og fara með þér út að blása sápukúlur...
-ætla ég að bjóða þér upp á ís í innkaupaferðinni, í stað þess að byrsta mig um leið og þú ferð að suða um hann...
-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því hvað þú ætlar að vera þegar þú verður stór...
-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir sem ég tek í uppeldinu og fyrir þína hönd...
-ætla ég að leyfa þér að baka með mér bollur og ekki hnoða þær allar aftur þegar þú sérð ekki til...




Bara Í Kvöld....


-ætla ég að halda á þér í fanginu og segja þér frá deginum
þegar þú fæddist og hvers vegna mér þykir svona vænt um þig...

-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta í baðinu
og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...

-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi
og skoða stjörnurnar á himninum...

-ætla ég að kúra hjá þér eins lengi og þú vilt,
þó að ég missi þá af uppáhaldsþættinum mínum...

-ætla ég að dást að þér og vera þakklát
fyrir að eiga gersemi eins og þig.
Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín
vegna veikinda eða slysa og mæðra sem dvelja á sjúkrahúsum
með börnum sínum og berjast fyrir lífi þeirra.
Ég er svo heppin að eiga þig og bið ekki um neitt...
...nema annan dag með þér...




Elsku mamma og pabbi

ég er með svo litlar hendur

ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir

farðu þér hægar svo ég geti fylgt þér.

Ekki slá á hendurnar á mér þegar

ég snerti eitthvað fallegt.

Ég skil það ekki.

Horfðu á mig þegar ég tala við þig

þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar

ekki alltaf vera að skamma mig.

Leyfðu mér að gera mistök

án þess að mér finnist ég vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna

eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið

elskaðu mig bara fyrir að reyna.



Til Pabba míns
Ég elska þig af því að þú elskar mig.
Mér finnst þú frábær og æðislegur og þú verður það alltaf.
Ég elska þig vegna þess að þú vinnur svo mikið til að eiga mat handa okkur og þak yfir höfuðið okkar
Ég elska þig svo mikið vegna þess að þú skammar mig aldrei og gefur mér nammi.
Ég elska þig vegna þess að þú er PABBI MINN !!!!




TIL ALLRA MÆÐRA
Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.
Barnið snýr sér að Guði og segir: Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er? Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur. Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðurðu hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala ? Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð sem þú hefur nokkur tíma heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig? Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig ? Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann lífið. En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar? Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði: Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn ?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,Mömmu"



Mamma

Elsku góða mamma mín
mjúk er alltaf höndin þín
tárin þorna sérhvert sinn
sem þú strýkur vanga minn
þegar stór ég orðin er
allt það launa skal ég þér


















Þú ert gestur nr. 22657