Annað:
Ég fæddist á landspítalanum 24. júlí 2003 og var 15 merkur og 52cm.
Sem er frekar stórt miðað við að ég kom rúmum 3 vikum fyrir tímann.
Það gekk nú ýmislegt á þegar ég fæddist, og það var sko EKKI auðvelt að koma í þennan heim,
hvorki fyrir mig né mömmu, en það gekk að lokum með keisara.
Að vísu veiktist ég og varð að vera á spítalanum í rúma viku
Mamma mín heitir Olga Björk Friðriksdóttir, hún er fædd á Siglufirði þann 3. okt. 1979 .
Pabbi minn heitir Grímur Jónsson, hann er fæddur 25. júní 1977.
Hann er frá Gýgjarhólskoti í Biskupstungum.
Þannig að ég á eitt sett af ömmu og afa á Sigló og eitt sett í Biskupstungum. :)
Þetta er uppáhalds bænin mömmu minnar
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
Nafnið mitt:
Friðrik
Merking nafnsins er friðsamur höfðingi.
Friðrik er rólegur og yfirvegaður í öllum samskiptum.
Hann hefur einstaka kímnigáfu og á auðvelt með að koma auga á björtu hliðar tilverunnar.
Árni
 
LJÓN - Kóngur sem vill skapa og hljóta athygli Ljónið er ákveðið og stjórnsamt, en einnig opið, hlýtt og einlægt í skapi.
Það er í eðli sínu lifandi og hefur ríka þörf fyrir að vera áberandi og í miðju í umhverfi sínu.
Það fer því stundum mikið fyrir því.
Þegar það er ánægt geislar af því gleði, en það sýnir einnig óánægju og vanlíðan og á til að vera þungt.
Ljónið hefur ákveðnar skoðanir og telur sig oftast vita hvað sé rétt og hvað rangt.
Það er lítið fyrir að hlusta á aðra eða slá af sannfæringu sinni.
Hið dæmigerða Ljón er orkumikið og hefur getu til að hrinda stórum áformum í framkvæmd,
en inn á milli vill það slappa af og njóta lífsins.
Verkefni Ljónsins verða að vera lifandi, skemmtileg og skapandi.
Það verður að leggja sitt persónulega mark á viðfangsefni sín, annars verður það orkulítið og áhugalaust.
Ljónið er stolt og gjafmilt, laðast að því sem er glæsilegt, litríkt og stórt í sniðum.
Það er fast fyrir, traust og trygglynt.
Ljós í myrkri, langt og mjótt
markar upphafið hjá þér.
Allt í einu ertu komin
inní heiminn, lítil dofin.
Dregur andann hið fyrsta sinn
Þú ert vorið, vindur hlýr
vekur hjá mér nýja kennd.
Og ég græt í gleði minni,
þú gefur mér með návist þinni
svo miklu meira en trúði ég
Líf
ljómi þinn er skínandi skær.
Líf
augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð:
ég svíf
því ég á
þetta líf
Óskadraumur ásýnd þín.
Ekkert jafnast á við það.
Þó mig þúsund drauma dreymi
þessa stund ég alltaf geymi
í mínu sinni ókomin ár
Líf
ljómi þinn er skínandi skær.
Líf
augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð:
ég svíf
því ég á
þetta líf
 Litli bróðir
 Kristinn Dagur frændi minn
ELSKU MAMMA OG PABBI!
Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni
Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir
Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki
Horfðu á mig þegar ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta
Ég hef viðkvæmar tilfinningar
Ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vitlaus
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna
Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki það sem þú segir
Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir eitthvað sem ég geri
 
Það læra börn sem þau búa við!!
Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.
Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska
Elsku Úlfur okkar
Takk fyrir allt sem við fengum að eiga með þér
Við söknum þín rosalega mikið, þú munt alltaf vera hjá okkur
 Ekki gleyma gestabókinni
|