Bjartur Snær,
Bjartur Snær,

Við erum hress og kát hér í sveitinni. Bjartur að verða 8 ára, Magni að verða 6 ára og byrjar í skólanum í haust og Haukur Ingi 8 mánaða.

Hér gengur allt sinn vanagang, Jón vinnur í reykjavík einsog er þannig að strákarnir eru með mömmu sinni alla vikuna svo kemur pabbinn heim um helgar og þá eru þær vel nýttar og alltaf gert eitthvað skemmtilegt.

Strákarnir eru svo duglegir í íþróttum og þá sérstaklega Bjartur Snær sem æfir körfubolta, fimleika, fótbolta og frjálsar auk íþróttanna og sunds í skólanum.

Hann á einmitt afmæli eftir 10 daga óskalistinn hljómar svona... alvöru hjólabretti, brettaskó, golfsett, fótboltamörk og nýja takkaskó:) allt á tæru!

Magni er orðinn mjög spenntur að byrja í skólanum. Hann er farinn að fara í skólaheimsóknir að skoða skólann og hitta kennara og skólastjórann. Hann er alveg með á tæru hvernig skólatösku hann vill:) Magni Fannar er mjööög duglegur að borða eiginlega of duglegur. það líða ekki 15 mínútur að milli snarla hjá honum en hann fitnar ekkert bara lengist. Það verður fróðlegt að sjá hvar hann endar í hæð:)

Haukur Ingi er 8 mánaða og hann veit nákvæmlega hvað hann vill. Hann þeytist um í göngugrindinni sinni og harð neitar að liggja á gólfinu. Hann laumar sér allsstaðar sem hann má ekki fara ( mamman biður til Guðs um að fá í lottóinu svo hún geti keypt innihurðar svo að íbúðin hætti að líta út einsog eftir sprengjuárás ) skrifstofan er vinsælust því þar eru svo mörg blöð til að rífa og tæta útum allt. Svo finnst honum æði að vera inni í eldhúsi því þar getur hann tekið allar tuskurnar úr skúffunni og opnað ofninn og stillt eldavélina! Hann er orðin rúm 10 kíló en við eigum að fara í skoðun 13. mars.

Annars er allt gott að frétta hér og við bíðum bara spennt eftir sumrinu sem er á næsta leyti...þangað til næst

bless bless

0 | Fyrir 16 klukkutímum síðan #

jól 2011 + jan.feb 2012

1 | 1 | Fyrir 18 klukkutímum síðan #

jól 2011 + jan.feb 2012

1 | 1 | Fyrir 18 klukkutímum síðan #

nýju gaurinn mættur á svæðið:)

0 | 0 | 12.7.2011 21:41:06 #

Janúar 2010

Komið þið blessuð og sæl aftur eftir laaangt hléSmile

 

Við höfum ákveðið að byrja aftur með síðuna þar sem að við eigum svo mikið af ættingjum og vinum útum allt sem geta lítið fylgst með okkur en geta þó allvega gert smá af því hér:)

Við erum búnir að stækka mikið síðan síðast og höfum alltaf nóg að gera.

Bjartur Snær er byrjaður í 1. bekk og gengur það bara frábærlega vel.Hann til dæmis eeeelskar langa skóladaga:)

Hann á fullt af góðum vinum og æfir íþróttir af miklum krafti. Hann er í fimleikum, körfubolta og fótbolta og finnst það rosalega skemmtilegt.

 

Magni Fannar er orðinn 4 áraog er á leikskólanum Undralandi og er þar á deild sem að heitir Heiðarkot.Þar brallar hann margt skemmtilegt með sínum bestu vinum. Hann lengist endalaust og getur borðað á við 3 fullorðna held ég bara allavega borðar hann meira en við hin þrjú!

Hann æfir líka fimleika og er svo í íþróttaskóla líka sem hann eeeeelskar!

Annars er ekkert mikið að frétta af okkur sem við munum eftir en við ætlum að uppfæra síðuna mánaðarlega þannig að kannski verður eitthvað meira að frétta næst:)

 

Bestu kveðjur úr SuðurhofiSmile

0 | 20.1.2011 23:31:11 #

Jól og áramót 2010

0 | 0 | 20.1.2011 22:51:36 #

Forsíða

og aftur 

Hér erum við með langömmu 79 ára á jólunum 2010.

algjör súkkulaðimoli!krúttmoli


 

0 | 12.3.2010 01:50:39 #

Vetur 2009 jól ofl.

0 | 0 | 22.2.2010 15:06:08 #

Fjöruferð

0 | 0 | 27.10.2009 21:35:13 #

Sumarið 2009

0 | 0 | 27.7.2009 20:45:53 #

Magni Fannar 3 ára ofl.

0 | 0 | 27.7.2009 20:30:55 #

MAÍ 2009 loksins nýjar myndir!!

0 | 0 | 18.5.2009 16:46:49 #

Nóvember 2008

0 | 0 | 12.11.2008 17:46:53 #

sumar ofl. 2008

0 | 0 | 14.9.2008 21:45:05 #

2 ára afmælið hans Magna

0 | 0 | 27.7.2008 14:41:14 #

Maí og júní 2008

0 | 0 | 22.7.2008 16:23:52 #

Páskar 2008 ofl.

0 | 0 | 25.5.2008 16:57:20 #

Bjartur 4. ára

0 | 0 | 22.3.2008 17:52:21 #
Til hamingju með allta saman! Bjartur orðinn 4ja ára og húsið alveg að verða tilbúið. Þið verðið að bjóða okkur í heimsókn í sumar;) Mkv Thelma, Gaui og börn
Guðjón Ægir Gunnarsson | 0 | 13.3.2008 19:11:36 #