| Við vorum að eignast litla systur - "Litlu Rokk" :) |
| Við höfum ákveðið að læsa síðunni okkar, leyniorðið er fyrra nafn mömmu okkar |
|
|
Um okkur:
Ég er svaka sæt, skolhærð prinsessa brún augu alveg eins og mamma mín. Flottustu augun:)
Ég er sætasti prinsinn í öllum heiminum að mati mömmu og pabbi. Á auðvelt með að bræða þau því ég er svo mikill knúsari og kyssari. Ég Embla Eik fæddist þann 9. október 2003 á Skejby sygehus í Aarhus í Danmörku. Allt gekk voða vel fyrir sig, en ég var tekin með keisaraskurði, því að ég var búinn að sitja alla meðgönguna. Læknarnir hérna voru búnir að reyna að snúa mér 2 sinnum en mér var ekki haggað enda finnst mér best að fá að sitja í dag..... Ég eignaðist lítinn bróður hann Daníel Darra þann 11. nóvember 2006. Hann fæddist á Fæðingardeild Landsspítalans klukkan 15:55, sá kann að velja sér flottar tölur :) Hann var 3560 gr og 50,5 cm. Flottasti bróðurinn í öllum heiminum. "Litla Rokk" fæddist svo 20. júní 2011. Hún fæddist á Fæðingardeild Landsspítalans klukkan 2:54, var fljót að koma sér í heiminn :) Hún var 3525 gr og 50 cm næstum því jafn stór og stóri bróðir. Núna erum við að reyna að velja á hana nafn...spennandi. Embla Eik er í Hvassaleitisskóla og Daníel Darri er á Austurborg Embla Eik er í Hvassó eins og kallar það, æfir skíði og fimleika, jazzballet. Stendur sig svo vel í skólanum og elskar að föndra, perla, lita, líma og vera úti. Daníel Darri er á Ólátagarði þar sem honum finnst rosalega gott að vera. Honum finnst skemmtilegt að vera úti og mála. Bestu vinir hans eru Bergþór Ingi og Siggi Kalli. |
|
|
Annað:
Vogin 23. september - 23. október Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. Sporðdrekinn 24. október - 23. nóvember Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann. Ímynd móður 4 ára ~ Mamma mín getur allt! 8 ára ~ Mamma mín veit mikið! Mjög mikið! 12 ára ~ Mamma veit sko ekki allt! 14 ára ~ Auðvitað veit mamma ekki þetta heldur! 16 ára ~ Mamma? Hún er nú svo gamaldags eitthvað! 18 ára ~ Sú gamla? Hún er nú hálf úrelt! 25 ára ~ Jú, hún gæti vitað eitthvað um það! 35 ára ~ Fáum álit mömmu áður en við ákveðum þetta! 45 ára ~ Hvað ætli mömmu hefði fundist um þetta? 65 ára ~ Ég vildi að ég gæti rætt þetta við hana mömm |
| Þú ert gestur nr. 42231 |