Emilía og Ásdís Laufey


Um mig:
Ég kom í heiminn á þeim merkisdegi 9. október 2003, ég á því sama afmælisdag og John Lennon, Giuseppi Verdi og PJ Harvey, tónlistin ætti sem sagt að liggja vel fyrir mér í framtíðinni.

Ég lét heldur betur bíða eftir mér, ég átti að koma í heiminn skv. sónar 26. september en mér leið bara svo vel í bumbunni á mömmu að mér lá ekkert á. Mamma var nú samt orðin svolítið þreytt á því að þurfa að burðast svona með mig. Ákváðu því læknarnir að setja mömmu af stað. Mamma og pabbi voru mætt 8. október kl. 21:00 upp á fæðingardeild, þá fékk mamma stíl, síðan átti hún bara að fara að sofa og fá annan um morguninn. Pabbi átti upphaflega að fara heim og sofa þar en ljósmæðurnar voru svo góðar að leyfa honum að sofa líka. Kl. 5:30 um morguninn eftir þá vaknaði mamma við það að samdrættirnir væru orðnir aðeins harðari og reglulegri en áður. Um kl 9:00 var belgurinn sprengdur. Mamma var svaka dugleg, fékk bara nálastungu meðferð við verkjunum þá um morguninn enn síðan þegar verkirnir fóru að ágerast upp úr hádegi þá fékk hún glaðloft og komst síðan í heitan pott. Útvíkkunin gekk vel framan af og kl. 15:00 var mamma komin með 9 í útvíkkun, en þá strandaði allt.

Mér leið bara svo vel í bumbunni á mömmu að ég var ekki alveg sátt við að koma út strax. Um kl. 18:00 var mamma enn með 9 í útvíkkun og ráðlögðu ljósmæðurnar þá mömmu að fá mænudeyfingu. Mamma var nú ekki alveg sátt við það í byrjun. Ljósmæðurnar sögðust því gefa mömmu klukkutíma í viðbót til þess að fá mig til að snúa sér. Mamma reyndi í 40 mín að ganga um og standa upp á tröppum til þess að fá mig til að snúa sér, en þá gafst hún upp og fékk mænudeyfingu.

Um kl. 20:00 var útvíkkun lokið og þá átti ég að fara að láta sjá mig, ég ákvað nú samt að sína þessum foreldrum mínum hver ræður og þar sem mér leið svo vel í bumbunni á mömmu þá neitaði ég að koma. Mamma er nú samt líka svolítið þrjósk og rembdist hún því við að koma mér út í rúmlega 2 1/2 tíma, læknarnir voru mættir með sogklukkuna sína og öll tæki og tól, en þá áttaði ég mig á því að baráttan væri töpuð og dreif mig út kl. 22:37. Þegar höfuðið mitt birtist þá kom í ljós að ég hafði kúkað í legvatnið (ekki mjög dömulegt). Ekki tókst að soga úr lungunum á mér áður en ég tók fyrsta andardráttinn, við tók þá smá stress hjá öllum við að fá mig til að anda, pabbi fékk ekki einu sinni að klippa á naflastrenginn. Barnalæknirinn kom og hann og pabbi fóru með mig yfir á vökudeildina. Þar kipptu læknarnir mér í lag og fékk ég að fara aftur til mömmu og pabba kl. 4:30.

Ég fékk svo að vera hjá þeim í einn sólarhring, en þá fór ég aftur á vökudeild því ég var komin með smá sýkingu í lungun mín eftir allt vesenið í fæðingunni. Á vökudeildinni var ekkert smá vel hugsað um mig, allar hjúkkurnar og læknarnir dekstruðu við mig, þetta var bara eins og að vera á hóteli. En þó að það hafi verið ósköp notalegt að vera á vökudeildinni þá langaði mig nú að prófa að fara heim með mömmu og pabba. Lyfin virkuðu vel á mig og fékk ég að fara heim af vökudeildinni 19. október á afmælisdeginum hans Jóns Ingibergs litla bróður hennar mömmu.






Annað:
Þegar ég fæddist þá vóg ég 4104 gr.(16,5 merkur) og var 52 cm að lengd. Mamma mín heitir Þórhildur Svava Svavarsdóttir og pabbi minn heitir Torfi Ragnar Sigurðsson, ég er fyrsta barn þeirra.
















Þú ert gestur nr. 27306
0/2 Queries in 0/0 ms
0 ms
DomainInfoV3_barnaland.is(6871B)
ShouldBeLocal:True
IsLocal:True
System.Object get_Item(System.String, Boolean))
Barnaland.DomainInfo GetDomainInfo(System.String, Boolean))
Barnaland.DomainInfo get_Current())
Void OnBeginRequest(System.Object, System.EventArgs))
Void System.Web.HttpApplication.IExecutionStep.Execute())
System.Exception ExecuteStep(IExecutionStep, Boolean ByRef))
Void ResumeSteps(System.Exception))
System.IAsyncResult BeginProcessRequestNotification(System.Web.HttpContext, System.AsyncCallback))
System.Web.RequestNotificationStatus ProcessRequestNotificationPrivate(System.Web.Hosting.IIS7WorkerRequest, System.Web.HttpContext))
Int32 ProcessRequestNotificationHelper(IntPtr, IntPtr, IntPtr, Int32))
Int32 ProcessRequestNotification(IntPtr, IntPtr, IntPtr, Int32))
0 ms
TmxV3_is-barnaland(294609B)
ShouldBeLocal:True
IsLocal:True
T GetContract[T](System.String, Boolean, Boolean))
Frontur.Core.Tmx GetTmx(System.String, System.String, Boolean))
Void Page_Init())
Void ArglessFunctionCaller(IntPtr, System.Object))
Void OnInit(System.EventArgs))