Hæhæ og verið hjartanlega velkomin á heimasíðu fjölskyldunar Baugakór 32!
|
| Við heitum Eygló Ösp & Harpa og erum bestu systur í heimi... |
|
|
Systurnar.
Við erum bestu systur í heimi!!! Við búum í Kópavogi með mömmu okkar sem heitir Lena og honum Eika pabba. Og ekki má gleyma þeim Nölu og Galdri :) Eygló Ösp er fædd 25. mars 1998. Hún ætlar að verða dýralæknir og eiga fullt fullt af köttum þegar hún verður stór :) Harpa er fædd 11. maí 2002 Hún ætlar sér að verða fimlekastjarna og aðstoðarkona dýralæknis (Eyglóar) þegar hún verður stór :) Svo eigum við von á lítilli systur þann 14. nóvember og erum við alveg svakalega spenntar yfir því :)
Dóttir mín Elsku yndislega dóttir mín. Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar. En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið. Mig langar til að segja þér hug minn. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt. Þú ert mér allt. Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa. Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim. Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg. Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið. Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn. Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina. Ég reyni að meta þig að verðleikum. Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við. Hvar væri ég án þín? Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu.
|
|
Eygló Osp er hrútur og hér kemur smá um hann.
HRÚTURINN 21. mars - 19. apríl Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér - það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.
Harpa er naut og hér er líka smá um það.
NAUTIÐ 20. apríl - 20. maí Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. "Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?" Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.
Ekkert er eins róandi og tipl smábarna í húsinu. Því strax og það hljóðnar veit maður að þau eru að gera einhverjar skammir af sér höf. ókunnur Þetta eru uppáhalds síðurnar okkar :)
Kristján Breki
Úlfur Kári Athena Mjöll Vinkona
Kolbrún Birna
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Vertu, guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson)
Nafnið Eygló: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Ey" sem merkir hamingja, - heppni og sögninni að glóa. Í skáldamáli merkir nafnið sól. Nafnið Ösp: Trjáheitið Ösp. Nafnið Harpa: Nafn þetta er komið af hinu forna mánaðarheiti harpa sem var fyrsti íslenski sumarmánuðurinn. Hér getur þú sent mömmu póst.
Nýjar myndir settar inn 1. Júní. Endilega kíkið HÉRNA. Munið svo að kvitta fyrir komu ykkar svo að við getum séð hverjur eru að fylgjast með okkur :D
Heimsóknir síðan í Nóvember 2003. |
| Þú ert gestur nr. 17990 |