Gleðilega jólahátíð allir okkar vinir, nær og fjær :)
Við erum systkinin Anna Magný, Hulda Þórunn og Styrmir Jóhann.


Anna Magný:
Anna Magný fæddist 13. október 2003 klukkan 15:49. Hún var 17 merkur (4245gr) og 55 cm.
Þegar hún fæddist var hún frekar dökk með mikið dökkt hár og dökk blá augu eins og mamma sín, en annars er hún alveg eins og pabbi sinn :)

Anna Magný var skírð 16. nóvember 2003 í Akraneskirkju. Presturinn sem skírði heitir Eðvarð Ingólfsson og hann er alveg frábær. Nafnið, Anna Magný, er í höfuðið á báðum ömmunum hennar. Mamma hans Pabba heitir Anna Ellertsdóttir & mamma hennar mömmu heitir Magný.


Hulda Þórunn fæddist á 80 ára afmælisdegi langafa síns heitins þann 25. apríl 2007 klukkan 08:09. Hún var 15,5 merkur (3845gr) og 52 cm og alveg rosalega lík stóru systur sinni nema ljósari á brún og brá.

Hulda Þórunn var nefnd sama dag og hún fæddist en þann dag hefði afi Dúdó orðið 80 ára hefði hann lifað. Nafnið Hulda er í höfuðið á ömmu Huldu en Þórunn er eftir afa Dúdó (Þórarinn).
Skírnin fór síðan fram þann 3.júní á sjómannasunnudegi í messu í Akraneskirkju. Amma Hulda hélt á nöfnu sinni undir skírn og séra Eðvarð skírði.


Styrmir Jóhann fæddist á sjúkrahúsi Akraness þann 28.júlí 2008 klukkan 12:17. Hann var 15 merkur (3695gr) og 52cm. Hann var mjög dökkur með svarblá augu og fæddist með töffaralegan hanakamb.
Yndislega fallegur eins og systur hans :)
Hann varð síðan fljótlega ljóshærður eins og Hulda Þórunn stóra syss!

Styrmir Jóhann fékk fallega nafnið sitt sama dag og hann fæddist. Mamma og pabbi ákváðu nafnið "Styrmir" mörgum árum áður en hann fæddist því þeim fannst það svo gæjalegt nafn og fer það honum einstaklega vel, enda mikill gæi hér á ferð!
"Jóhann" er í höfuðið á elsku afa Kjartani sem heitir Jóhann Kjartan.

Skírnin fór síðan fram þann 23.ágúst í Akraneskirkju og hélt afi Kjartan á nafna sínum undir skírn.
Séra Eðvarð skírði sem fyrr og gantaðist með að það tæki því varla fyrir okkur að yfirgefa kirkjuna - skírn á hverju ári og að við værum nánast með prest í hálfu starfi hjá okkur!




Meira um Vosnæsparkenvillingana...
Við búum í Árósum þar sem pabbi stundar nám ...og mamma stundar barneignir af miklum móð!
Hér líður okkur mjög vel en að sjálfsögðu söknum við allra á Íslandi alveg hræðilega, hræðilega mikið!!!

Anna Magný byrjaði í leikskólanum Myrhöjen í nóvember 2007 og líkar mjög vel lífið þar! Hún varð fljótlega altalandi á dönsku og er alltaf jafn yndislega lífsglöð og sniðug stelpuskjáta. Hún hóf svo skólagönguna í Sködstrupskole þann 13.ágúst 2009 og er ótrúlega dugleg og ánægð í skólanum.

Hulda Þórunn var heima með mömmu fram til tæplega tveggja ára aldurs. Hún byrjaði í leikskólanum Skæringhuset í janúar 2009 og tókum við okkur sko bara góðan tíma í að byrja þar sem mamman var hvort sem er heima með litla bróður. Frá janúar og fram í maí var hún hálfan daginn í leikskólanum (frá 9-11:30) en í maí fór hún að vera allan daginn og leggja sig í leikskólanum. Hún er mjög kát og glöð og einstaklega skemmtileg stelpa, alltaf dansandi og hlæjandi alla daga

Styrmir Jóhann ætlar sko að vera heima hjá mömmu fram að fermingu. Hann er algjör gullmoli sem brosir allan hringinn við það eitt að einhver lítur í áttina til hans. Hann er voða mjúkur strákur og elskar að láta knúsa sig og kyssa...og við hin elskum auðvitað að knúsa hann og kyssa!

Móðirin á bænum lofar að vera dugleg að setja reglulega inn myndir og fréttir fyrir vini og ættingja sem við hittum því miður svo sjaldan! ...og vinir og ættingjar lofa að kvitta reglulega í gestabókina í staðinn ;)
*knús*