
|
| Ég er / I am Ísak Júlíus Perdue |
|
Um mig:
Ég heiti Ísak Júlíus Perdue. Ég fæddist 10. október 2003 á Landspítalanum í Reykjavík og var víst svolítið að flýta mér í heiminn. Ég átti nefninlega ekki að fæðast fyrr en 22. október. Ég var 3640 g og 52 cm. Ég fæddist með þó nokkuð dökkt hár og dökk augu. Ég var skírður 16. nóvember 2003 heima hjá ömmu og afa í Þorlákshöfn. Presturinn sem skírði mig heitir Baldur Kristjánsson.
Mamma mín heitir Anna Júlíusdóttir og pabbi minn heitir Leon Andri Perdue. Ég og mamma eigum heima í Þorlákshöfn en pabbi býr í Ástralíu
About me:
My name is Ísak Júlíus Perdue. I was born on October 10, 2003 at Landspitalinn in Reykjavik. I was in a bit of a hurry to see this world, I wasn't supposed to arrive until October 22. I weighted 3640 g and my height was 52 cm at birth. I had a lot of dark hair and dark eyes. I was christened November 16, 2003 at my grandparents house in Þorlakshöfn. My mom's name is Anna Júlíusdóttir and we live in Þorlákshöfn. My dad's name is Leon Andri Perdue and he lives in Australia.
|
|

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.
|