Ég heiti Gústaf Karel og er 5 ára snillingur


Um mig:
Hæhæ allir....heimasíðan mín er nú læst en ef ykkur langar að kíkja þá sendið mömmu bara póst :o)


Ég fæddist á Landspítalanum í Reykjavík þann 19. mars 2004, rúmum tveimur vikum eftir áætlaðan fæðingardag...það var svo gott að kúra þarna inni :o) Ég vildi samt ekki koma þannig að það kom læknir og tók mig bara út úr bumbunni hennar mömmu. Ég var svaka stór og sterkur strákur, ég var 4520 gr. eða rétt rúmar 18 merkur og 52,5 cm...Augun mín eru blá og fæddist ég með mikið kastaníubrúnt hár, meira að segja sítt að aftan, svaka rokkari :o) Mamma mín heitir Lóa og pabbi minn heitir Kalli. Ég er fyrsta barnið þeirra mömmu og pabba og þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þau eru montin með mig:o) Ég er mesta krúttið...hehe Mamma og pabbi segja að ég sé alveg fullkominn!!!! - Alger gullmoli.



Ég sætastur og búttaður, 2ja daga gamall....




Annað:


Ég er alveg ótrúlega hress og kátur strákur. Ég er orðinn 5ára...mamma hreinlega trúir því ekki. Ég er orðinn stóri strákurinn hennar mömmu, mamma er endalaust montin hvað ég er ofsalega fallegur, duglegur, skemmtilegur, klár og alveg rosalega duglegur að læra. Ég er mjög ákveðinn einstaklingur sem hefur sterkar skoðanir á öllu, mamma segir að svoleiðis vilji hún einmitt hafa gullið sitt. Ég er alveg einstaklega hraustur strákur, finnst einmitt mjög gaman í öllum íþróttum og ég geri armbeygjur léttilega, hvort heldur er á báðum eða með annarri :o) Ég er mjög klár strákur og duglegur, ég er einmitt farinn að lesa, skrifa og reikna og það fyrir löngu síðan, ótrúlegur alveg.
Ég stunda nám í skóla lífsins sem heitir Geislabaugur. Ég er að sjálfsögu á stórri deild sem heitir Sólin og þar finnst mér gott að vera. Nú er ég formlega orðinn MEISTARI en það eru krakkarnir sem eru komnir í skólahópa. Meistaravígslan var í september og þykir mér ég orðinn rosalega fullorðinn núna :o) Allar konurnar þar eru rosalega góðar og skemmtilegar.
Ég á marga vini en Arnar Breki er besti besti vinur minn ásamt afa mínum...Ég og Arnar Breki smullum saman á fyrsta degi og fáum við að hittast oft að leika eftir leikskóla.
Ég er algert dekurdýr, en þó ég sé dekurdýr er ég alveg rosalega kurteis ungur maður...eru bæði mamma og afi minn ánægð með hvað ég er duglegur að segja TAKK...og svo skýn af mér þakklætið ef mér er komið á óvart...
Ég er rosalega heppinn ungur drengur því ég á sko risastóra fjölskyldu og þykir öllum ofsalega vænt um mig.
Ég er skírður í höfuðið á móðurafa mínum, honum Gústaf Adolf. Mömmu og pabba fannst ekkert annað koma til greina því hann afi minn er einn af bestu mönnum sem þau hafa kynnst og fannst því við hæfi að gefa mér nafnið hans. Það er reyndar svo skemmtilegt að ég er mesti afastrákur í öllum heiminum, það byrjaði bara um leið og ég fæddist og er ennþá daginn í dag að við afi erum nánast eitt...




NAFNIÐ MITT:
Gústaf = Uppruni er óviss en nafnið er talið merkja sá sem rómaður er af gestum, sá sem hefur góðan orðstír, sá sem gott orð fer af.
KAREL = Nafn þetta er hollensk/slavnesk mynd af nafninu Karl sem merkir karlmaður.


Ég svo til glænýr upp á spítala :o)



Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars


Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.



.....SÆTAST EVER.....

Ekkert er eins uppörvandi eftir erfiðan dag

og brosandi andlit sem lítill sonur

þrýstir að gluggarúðu



Ég og mamma mín besta....


Fyrir mæður drengja!!!

Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit.

Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi.

Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá,

fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá.

Drengur er Sannleikur með óhreinindi í andlitinu,
Viska með tuggugúmmí í hárinu og Von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum.
Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir,
orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra.

Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar,
viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað
til, hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi.
Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn

(í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla,

laugardagsmorgna og brunabíla.
Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur,
spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma.
Enginn er eins árrisull, og enginn eins síðbúinn til matar og hann.
Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja
feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu,
og dularfullu áhaldi, sem enginn þekkir nema hann.
Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni
þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann
burtu úr skrifstofunni þinn, en þú getur ekki fengið hann burtu úr huga
þér.
Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi
og herra - freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með
allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með
tveim töfraorðum - "Halló mamma!"

Halldór Annel frændi minn

turtle
Frændsystkinin mín í Odense

turtle
Yngvar Adam frændi minn

turtle
Gylfi Örn og Dagbjört Arna

turtle
Systkynin á Djúpavogi

turtle









Bless bless..................



Sendið okkur mömmu póst :o)




Þú ert gestur nr. 37513